Embættismaður á hlut í félagi sem hann samdi við um hergagnaflutning

Utan­ríkis­ráðuneytið hefur flogið hergögnum til Úkraínu í á annan tug skipta undan­farna mánuði. Ráðuneytið vill ekki gefa upp hversu mörg flugin eru, hver kostnaðurinn sé eða hvað hafi verið flutt. Ráðuneytið telur ekkert óeðlilegt við að embættis­maður sé hluthafi í flug­félaginu sem oftast var samið við. Sama félag er sakað um félagsleg undirboð og að brjóta kjara­samninga.

Tvö íslensk flugfélög hafa tekið að sér hergagna­flutning fyrir íslensk stjórn­völd frá því brugðist var við beiðni Úkraínu­manna um aðstoð við varnir landsins í lok febrúar, flug­félögin Air Atlanta og Bláfugl, mun oftar síðarnefnda flug­félagið. Bláfugl, eða Bluebird Nordic, er rekið á íslensku flug­rekstrar­leyfi, en er í eigu litáísks stór­fyrirtækis, Avia Solutions Group (ASG), sem skráð er á eynni Kýpur.

Utan­ríkis­ráðuneytið vill ekki svara því hversu oft hefur verið samið við Bláfugl um hergagna­flug. Þó hefur komið fram að vélar Bláfugls hafi séð um mikinn meirihluta þeirra þrettán ferða sem farnar höfðu verið í byrjun apríl, þegar Kjarninn fjallað um málið. Ráðuneytið vill ekki svara því hversu mörg flug hafa bæst við á þeim mánuði sem liðinn er.

Stjórn­völd fást heldur ekki til að gefa upplýsingar um hvers kyns hergögn voru flutt í þessu flugi, enda sé um að ræða málefni sem falli utan gildis­sviðs upplýsinga­laga þar sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    VIÐ eigum þetta ,VIÐ megum þetta.
    2
  • Þorsteinn Bjarnason skrifaði
    Gamla góða spillta Ísland 😁
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár