Eitur: Fagmennska og vandvirkni

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Eitur eftir Lot Vekemans sem sýnt er í Borgar­leikhúsinu.

Borgarleikhúsið: Eitur

Höfundur: Lot Vekemans

Þýðing: Ragna Sigurðar­dóttir

Leik­stjórn: Kristín Jóhannesdóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Þórunn María Jóns­dóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist og hljóðmynd: Garðar Borgþórsson

Leikarar: Nína Dögg FIlippusdóttir, Hilmir Snær Guðnason

Hún er máttug og voldug, leikmynd Barkar Jónssonar, kirkjan sem gnæfir yfir sviði og sal Litla sviðsins í Borgar­leikhúsinu; kirkju­blær en samt andar hlýju frá glugga, ekki síst vegna trjánna útivið sem hvíla í fölleitri birtu, anda frá sér kyrrð og vekja hugrenninga­tengsl við japanskt landslag. Það er ákveðinn hátíð­leiki og form­legheit yfir sviðs­myndinni, veggirnir líkt og byggðir úr steinsteypu­blokkum og hverfa upp í loftið. Aðeins einn inn- og útgangur baksviðs, við gluggann nokkrir harðir bekkir eða stólar. Á þessari leikmynd hvílir stílhrein lýsing Bjarnar Bergsteins Guðmunds­sonar og með búningum Þórunnar Maríu Jóns­dóttur verður hin sjónræna mynd að fallegri umgjörð um þá atburðarás sem senn fer af stað.

Nína Dögg Filippusdóttir og Hilmir Snær Guðnason leika einu hlut­verkin, þau eru nafnlaus og nefnast í leikskrá eingöngu "Hún" og "Hann". Við fáum næsta lítið að vita um fortíð þeirra annað en að fljótlega verður ljóst að þau hafa verið gift, en skildu í kjölfar slyss sem eina barn varð fyrir og er jarðsett í kirkju­garði þessarar kirkju. Svo virðist sem nokkur tími sé liðinn frá skilnaðinum og þau hafa ekki haft neitt samband síðan; en svo hefur Hann fengið bréf frá yfir­völdum þar sem tjáð er að vegna eiturs í jarðvegi kirkju­garðsins þarf að flytja grafir og aðstand­endur þurfa að mæta til að hægt sé að ganga frá praktískum atriðum varðandi þá aðgerð.

Hann kemur í kirkjuna og á nokkurn veg að baki; Hún er mætt til að taka á móti honum og nú fer af stað uppgjör. Í ljós kemur að hér hefur verið trassað að takast á við allt sem vekur með manninum sorg: barns­missir, skilnaður, brostnar vonir, hamingju­missir. Eitrið er víða, ekki síst í hugum okkar mannanna.

Lot Vekemans er hollensk og Eitur mun vera fyrsta verk hennar á íslensku leiksviði. Það er vel valið verk. Það fjallar um mannlegt eðli og þjáningu sem allir hafa einhvern tímann kynnst, annað hvort á sjálfum sér eða af einhverjum í nánasta umhverfi. Sorgin er sammannleg og þó ekki - einatt er sagt að enginn fái lært af annars reynslu og sjaldan á það betur við en þegar um er að ræða jafn gegnum­grípandi tilfinningu og sorgina. En Lot Vekemans tekst í samræðu Hans og Hennar að komast hjá því að gera sorgina að einkamáli persónanna, það er ljóst þegar í upphafi leiks að þau eiga allar þessar sorgir saman. Missir barns, upplausn hjóna­bands, sem ekki verður annað skilið en hafi verið ástríkt og hamingju­samt í upphafi, og vanmátturinn að takast á við hvort tveggja, sem að sínu leyti vekur upp enn eitt sorgar­ferlið. Eitt er að takast ekki að standa saman, annað að geta ekki gert upp mistökin, horft aftur fram á veg.

Uppgjörið er mikilvægt til að geta sæst við fortíð sína og sögu og hér er það kirfilega undir­strikað. Í viðtali við höfundinn sem birt er í leikskrá talar hún um hvernig við manneskjur forðumst að tala um það sem gerst hefur, persónurnar Hún og Hann forðast af öllum mætti augljósar spurningar, spurningar sem verður að taka á og svara svo unnt sé að öðlast sátt, ró, frið.

Leikrits­formið hentar hér efninu betur en margt annað listrænt form; leik­skáldið hefur eingöngu hið talaða orð til að knýja áfram atburða­rásina og þróun sögunnar, tilfinninga persónanna - en með því fylgir einnig það tæki sem oft er vanmetið: þögnin. Hér er snilldar­lega farið með hvort tveggja: samtalið – og þögnina.

Það skal segjast eins og er að samleikur þeirra Nínu Daggar og Hilmis Snæs er með miklum ágætum. Þau eru bæði í hópi okkar albestu leikara og geta með smáum meðulum í fasi, látæði, svip­brigðum og augngotum skapað og viðhaldið spennu. Hér eru þau bæði í sínu albesta essi og auðfundið að varfærin og ákveðin leik­stjórn Kristínar Jóhannesdóttur leiðir þau farsæl­lega frá upphafi til enda.

Auðvitað má velta því fyrir sér, hvert höfundur fer með hinar tragísku persónur sínar. Hvernig endar þessi saga? Hann er nokkuð óvæntur, endirinn, þótt hann sé í fullkomlega rökréttu samhengi við það sem lagt er upp með. Ekki skal upp ljóstrað hvernig uppgjöri Hennar og Hans lýkur, en eins og venja er þegar horft er á gott leikhús, þá tekur hver það til sín sem þurfa þykir – og það er sitthvað sem má nærast á hér.

Það er vitaskuld auðfundið þegar á heiti verksins, Eitur, að hér er engin grínbomba á ferðinni. Efnið er háalvarlegt og úr því unnið í samræmi við það. En hver sá sem vill sjá leikverk sem á erindi og sjá það gert af fagmennsku og vandvirkni á ekki að láta Eitur framhjá sér fara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár