Rússneskar herþotur minni Íslendinga á mikilvægi þjóðaröryggisstefnu og fullveldis

Lilja Alfreðs­dóttir utan­ríkis­ráðherra benti á að rússneskar herflugvélar hefðu flogið undir íslenskri farþega­þotu í vikunni: „Nýsamþykkt lög um þjóðar­öryggisráð og -stefnu eru ekki upp á punt, heldur snúast um raun­veruleg mál sem varða fullveldi Íslands og öryggi almennings.“

Lilja D. Alfreðs­dóttir, utan­ríkis­ráðherra og þing­fram­bjóðandi Framsóknar­flokksins, var frum­mælandi flokksins á eldhúsdags­umræðunum á Alþingi í kvöld. Hvorki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, né Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætis­ráðherra, héldu ræðu.

Lilja vakti athygli á því í ræðu sinni að rússneskar herflugvélar hefðu flogið undir íslenskri farþega­þotu á leið til Stokk­hólms í síðustu viku. Vélarnar hefðu ekki látið vita af sér og flogið án auðkennis.

„Þótt ekki hafi verið um að ræða brot á alþjóða­lögum minna atvik af þessu tagi okkur á að þótt við búum á eyju er Ísland svo sannarlega ekki eyland þegar kemur að öryggis­málum,“ sagði Lilja og bætti við: „Atvik af þessu tagi staðfesta, að vera okkar í Atlantshafs­bandalaginu með tilheyrandi eftirliti og vöktun er ekki aðeins skyn­samleg heldur nauðsynleg.“ Þá sagði hún að nýsamþykkt lög um þjóðar­öryggisráð og þjóðar­öryggis­stefnu væru ekki upp á punt, heldur snerust um fullveldi Íslands og öryggi almennings.

Í ræðu sinni nefndi Lilja að fyrir átta árum hefði „íslenska efnahags­rútan“ keyrt út í skurð og setið þar föst í nokkur ár. „En við erum komin af stað á ný með sterkar hendur á stýri. Til að byrja með var leiðin hál og brekkan brött, en með mikilli seiglu erum við komin á jafn­sléttu á ný og leiðin er greið,“ sagði hún og bætti við: „Hins vegar hefur aldrei verið mikil­vægara en nú, að hafa augun á veginum og tryggja að við keyrum ekki of hratt. Því jafnvel þótt vegurinn hafi batnað eru beygjurnar krappar, og augna­bliks kæruleysi getur verið dýrkeypt. Þess vegna skiptir máli, að við stýrið sitji reynslu­mikill bílstjóri sem kunni að keyra við ólíkar aðstæður.“ Þá minntist Lilja á deiluna um vöru­merkið Iceland og að þar ættu Íslendingar að standa á rétti sínum sem þjóð eins og í Icesave-málinu. Lagði Lilja áherslu á að þingmenn ynnu saman að stóru hagsmuna­málunum. „Við verðum að ávinna okkur traust hvert annars og takast á um stefnur og málefnalegar áherslur, en ekki um einstakar persónur,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár