Ríkisendurskoðandi annast ekki eftirlit með bróður sínum

Sveinn Arason rík­is­end­ur­skoð­andi ann­ast ekki eft­ir­lit með Lind­ar­hvoli ehf., eign­ar­halds­fé­lagi í eigu rík­is­ins sem fer með stöð­ug­leika­eignir þess. Ástæðan er sú að Þór­hallur Arason, bróðir Sveins, er stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols. Þór­hallur er skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og situr fyrir hönd þess í stjórn félags­ins. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Sala á eignum Lind­ar­hvolshefur verið mikið í umræð­unni að und­an­förnu, og sér­stak­lega sala félags­ins á hlut rík­is­ins í Klakka, áður Exista, til banda­rísks vog­un­ar­sjóðs fyrir skemmstu. Ásakanir hafa verið um brotala­mir í sölu­ferl­inu og því haldið fram af öðrum bjóð­endum að trún­að­ar­gögnum hafi mögu­lega verið lekið til þess sem fékk að kaupa hlut­inn. Í Við­skipta­blað­inu í dag er greint frá því að for­svars­menn félags­ins Frigus II, sem bauð í hlut­inn, hafi sent Fjár­mála­eft­ir­lit­inu bréf og kraf­ist þess að salan á bréf­unum í Klakka verði stöðvuð.

Í til­kynn­ingu rík­is­end­ur­skoð­unar segir að Sigurður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, hafi verið hinn 19. sept­em­ber settur rík­is­end­ur­skoð­andi til að ann­ars end­ur­skoðun Lind­ar­hvols. „Eftir að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti ákvörðun sína um að til­nefna bróður rík­is­end­ur­skoð­anda, Þórhall Arason, í stjórn Lind­ar­hvols ehf. rit­aði rík­is­end­ur­skoð­andi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu bréf þann 28. apríl þar sem hann vakti athygli á tengslum sínum við Þórhall. Í bréf­inu var bent á að þessi tengsl hefðu í för með sér van­hæfi rík­is­end­ur­skoð­anda til þess að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd samn­ings Lind­ar­hvols og fjár­mála­ráð­herra, líkt og lög mæltu fyrir um. Jafn­framt rit­aði rík­is­end­ur­skoð­andi for­seta Alþingis bréf þann 12. maí þar sem hann lýsti sig van­hæfan af þessum sökum til að ann­ast lög­boðið eft­ir­lit með Lind­ar­hvoli ehf.

Með hlið­sjón af fram­an­sögðu setti for­seti Alþingis Sigurð Þórð­ar­son sem setu­rík­is­end­ur­skoð­anda til að ann­ast end­ur­skoðun Lind­ar­hvols ehf. og lög­boðið eft­ir­lit Rík­is­end­ur­skoð­unar með samn­ingi Fjármála- og efna­hags­ráð­herra og Lind­ar­hvols ehf. um sölu eigna sem rík­is­sjóður fékk sem stögug­leika­fram­lag skv. nauða­samn­ingum gömlu bank­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár