Brotalamir á ferlinu þegar ríkið seldi vogunarsjóði í Klakka

Helsta eign Klakka er fjármögunarfyrirtækið Lýsing.
Helsta eign Klakka er fjár­mög­un­ar­fyr­ir­tækið Lýsing.

Stjórn­ar­manni í Klakka, áður Exista, var falið að opna til­boð í hlut Lind­ar­hvols, eigna­um­sýslu­fé­lags rík­is­ins, í félag­inu. Heima­síðan Linda­hvoll­eignir.is – en gerð til­boð voru send á net­fang tengt henni – er enn fremur skráð á lög­fræði­stofu stjórn­ar­manns­ins, Steinars Þórs Guð­geirs­sonar. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir að til­boðin hafi verið send inn á þannig formi að við­tak­andi þeirra var gert kleift að sjá inni­hald þeirra um leið og þau bár­ust. Ekkert í ferl­inu tryggði að inni­hald til­boð­anna héld­ist óað­gengi­legt þar til að til­boðs­frestur væri runn­inn út. Í starfs­reglum stjórnar Lind­ar­hvols segir meðal ann­ars að til­gangur þeirra sé að auka gagn­sæi, hlut­lægni, jafn­ræði og hag­kvæmni, koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra, auka trú­verð­ug­leika félags­ins og stuðla að óhlut­drægni við með­ferð og afgreiðslu mála.

Steinar Þór Guð­geirs­son var for­maður skila­nefndar Kaup­þings um nokkura ára skeið. Á und­an­för­unm árum hefur Steinar unnið sem ráð­gjafi fyrir Seðla­banka Íslands og situr meðal ann­ars í stjórnum margra félaga sem voru fram­seld til rík­is­ins í byrjun þessa árs sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­hafa gömlu bank­anna. DV greindi til að mynda frá því í apríl að Steinar hefði fengið það hlut­verk að gæta

hags­muna íslenska rík­is­ins sam­hliða sölu­ferli á 87 pró­sent hlut Kaup­þings í Arion banka sem sér­stakur eft­ir­lits­maður inni í Kaup­þingi.

Ríkið seldi vogunarsjóði

Stjórn Lind­ar­hvols, eign­ar­halds­fé­lags í eigu íslenska rík­is­ins, sam­þykkti í lok októ­ber að selja 17,7 pró­sent hlut rík­is­ins í Klakka, sem hét áður Exista, til vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement. Eftir við­skiptin á Burlington um 75 pró­sent hlut í Klakka, en helsta eign félags­ins í dag er fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Lýs­ing. Burlington, sem var einn umsvifa­mesti kröfu­hafi föllnu bank­anna og keypti gríð­ar­legt magn af kröfum á þá á eft­ir­mark­aði fyrir lágar fjár­hæð­ir, greiddi 505 millj­ónir króna fyrir hlut rík­is­ins í Klakka. Alls bár­ust þrjú til­boð í hlut­inn. Bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir, oft­ast kenndir við Bakka­vör, buðu næst­hæst, 501 milljón króna, í hann. Þeir voru aðal­eig­endur Existu fyrir hrun.

Lind­ar­hvoll, sem tók við stöð­ug­leika­fram­lags­eignum rík­is­ins, aug­lýsti til sölu eignir í umsýslu félags­ins í lok sept­em­ber. Það vakti athygli, enda mán­uður í kosn­ingar þegar eign­irnar voru aug­lýstar til sölu.

Burlington gerði öðrum hlut­höfum Klakka yfir­tökutil­boð. Smærri hlut­hafar, sem áttu hlut sem er verð­met­inn á undir 2.000 evr­ur, myndu skulda banda­ríska fyr­ir­tæk­inu Wilm­ington Trust fé ef þeir myndu ganga að yfir­tökutil­boði Burlington Loan Mana­gement í hluti þeirra. Ástæðan er sú að Wilm­ington Trust, sem sér um umsýslu á kröfum og hluta­bréfum fyrir Klakka, rukkar 2000 evr­ur, um 248 þús­und krón­ur, í umsýslu­gjald fyrir að sjá um fram­sal á eign­ar­hlut­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár