Þurfa að borga fyrir að losna við hlut sinn í Klakka

Hlut­hafar sem eiga lít­inn hlut í Klakka, áður Exista, þurfa að greiða banda­rísku fyr­ir­tæki 2.000 evrur í umsýslu­gjald fyrir að fram­selja hluti sína í félag­inu. Taki þeir fyr­ir­liggj­andi yfir­tökutil­boði munu þeir þurfa að borga með söl­unni.

Smærri hlut­hafar Klakka (áður Exista), sem eiga hlut sem er verð­met­inn á undir 2.000 evrur, munu skulda banda­ríska fyr­ir­tæk­inu Wilmington Trust fé ef þeir ganga að yfir­tökutil­boði vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement í hluti þeirra. Ástæðan er sú að Wilmington Trust, sem sér um umsýslu á kröfum og hluta­bréfum fyrir Klakka, rukkar 2000 evrur, um 248 þús­und krónur, í umsýslu­gjald fyrir að sjá um fram­sal á eign­ar­hlut­unum. Magnús Scheving Thor­steins­son, for­stjóri Klakka, stað­festi í sam­tali við Kjarnann að umsýslu­gjaldið væri ófrá­víkj­an­legt og það yrðu allir að greiða sem tækju yfir­tökutil­boð­inu. Um er að ræða upp­hæð sem ákveðin var árið 2010 og hafi hald­ist óbreytt síðan.

For­svars­maður eins lít­ils hlut­hafa, sem hafði sam­band við Kjarnann, sagði að sá myndi vera í um 160 þús­und króna skuld við Wilmington Trust ef hann myndi taka yfir­tökutil­boði Burlington Loan Mana­gement í hlut hans í Klakka. Fjöl­margir aðrir litlir hlut­hafar eru í sömu stöðu.

Klakki er móð­­ur­­fé­lag fjár­­­mögn­un­­ar­­fyr­ir­tæk­is­ins Lýs­ing­­ar, sem sér­­hæfir sig í að fjár­­­magna atvinn­u­tæki, atvinn­u­hús­næði og bif­­reiðar fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­l­inga.

Burlington einn stærsti kröfuhafi Íslands

Burlington Loan Mana­gement, sem er fjár­magn­aður og stýrt af banda­ríska sjóðs­­stýr­ing­­ar­­fyr­ir­tæk­inu Davidson Kempner, hefur verið stærsti erlendi kröf­u­hafi íslensks atvinn­u­lífs á eft­ir­hrunsár­un­um. Á árinu 2013 jók sjóð­­ur­inn til að mynda eignir sínar á Íslandi um 70 pró­­sent og í lok þess árs voru 18 pró­­sent af fjár­­­fest­inga­­eignum hans á Íslandi. Í lok árs 2014 voru íslensku eign­­irnar tíu pró­­sent af fjár­fest­inga­eignum hans, en sjóð­­ur­inn jók mjög umsvif sín á því ári.

Stærsta ein­staka eign hans lengi vel voru kröfur í þrotabú Glitn­is, en Burlington var einn stærsti kröf­u­hafi bús­ins. Nafn­virði krafna Burlington í bú bank­ans var að minnsta kosti vel á þriðja hund­rað millj­­arð króna. Burlington fékk rúm­­lega 30 pró­­sent af nafn­virði þeirra krafna í kjöl­far þess nauða­­samn­ingur Glitnis var stað­­festur af dóm­stólum í des­em­ber 2015.

Sjóð­­ur­inn var einnig einn stærsti kröf­u­hafi slita­bús Kaup­­þings. Í nóv­­em­ber 2012 átti hann kröfur í búið að nafn­virði 109 millj­­arðar króna. Til við­­bótar hefur Burlington átt fullt af öðrum eignum hér­­­lend­­is. Sjóð­­ur­inn átti umtals­verðar kröfu í bú Lands­­bank­ans og er á meðal eig­anda ALMC (áður Straumur fjár­­­fest­inga­­banki).

Þá hefur sjóð­ur­inn átt hlut í Klakka um nokk­urt skeið. Mikla athygli vakti þegar hann keypti 26 millj­­arða króna skuldir Lýs­ingar, helstu eignar Klakka, skömmu fyrir ára­­mót 2013.

Keypti hlut rikisins á hálfan milljarð

Í upp­hafi árs var hlutur sjóðs­ins í Klakka 13,2 pró­sent. Í jan­úar keypti hann 31,8 pró­­sent hlut Arion banka í félag­inu. Kaupin voru gerð í nafni BLM Fjár­­­fest­inga ehf., íslensks dótt­­ur­­fé­lags Burlington. Nýverið keypti Burlington svo hlut eign­ar­halds­fé­lags utan um eft­ir­stand­andi eignir slita­bús Glitnis og átti eftir það 57 pró­sent hlut. Sam­þykktir Klakka eru þannig að ef ein­hver fer yfir 50 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu þá þarf hann að gera öðrum hlut­höfum yfir­tökutil­boð. Á meðal þeirra sem fengu slíkt til­boð var Lind­ar­hvoll, eign­ar­halds­fé­lag í íslenska rík­is­ins sem heldur á stöð­ug­leika­eignum sem það fékk afhent sam­kvæmt sam­komu­lagi um slit gömlu bank­anna. Stjórn Lind­ar­hvols hefur þegar sam­þykkt að selja hlut sinn, 17,7 pró­sent, til Burlington.

Á meðal ann­arra eig­enda eru félög í eigu bræðr­anna Ágústar og Lýðs Guð­munds­sona, sem oft­ast eru kenndir við Bakka­vör. Fé­lögin BBR ehf. og Rask ehf., sem eru í eigu Bakka­vara­bræðra, áttu sam­tals tæp­lega þrjú pró­sent hlut í Klakka í árs­lok 2015 sam­kvæmt hlut­haf­alista í árs­reikn­ingi. Bræð­urnir, sem voru stærstu eig­endur Exista fyrir hrun, reyndu sjálfir að eign­ast stóran hlut í Klakka í þeirri lotu sem nú stendur yfir og buðu m.a. 501 milljón króna í hlut rík­is­ins. Það dugði þó ekki til því að Burlington bauð 505 millj­ónir króna og hreppti hlut­inn. Eftir við­skiptin átti Burlington 75 pró­sent hlut í Klakka.

Magir litlir hluthafar

Þótt að nokkrir stórir aðilar hafi átt bróð­ur­part hluta­fjár í Klakka eftir að félagið lauk nauða­samn­ings­ferli þá áttu líka margir minni aðilar hlut. Alls voru hlut­hafar í Klakka 178 tals­ins um síð­ustu ára­mót. Þar á meðal ein­stak­lingar sem áttu skulda­bréf útgefin af Existu fyrir hrun sem feng­ust aldrei greidd. Þeir fengu þess í stað hluta­bréf og skulda­bréf í Klakka. Allir þessir aðilar fengu einnig yfir­tökutil­boð frá Burlington sem rann út í gær.

Í bréfi þar sem til­boðið er sett fram, og Kjarninn hefur undir höndum, er sér­stak­lega vakin athygli á því að þeir sem sam­þykki til­boð Burlington um sölu á hlutum þeirra í félag­inu þurfi að greið­ast 2.000 evrur, um 248 þús­und krónur, í umsýslu­kostnað vegna fram­sals hlut­anna. Þar segir einnig að sá kostn­aður verði dregin frá kaup­verð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár