Ríkið selur vogunarsjóði hlut sinn í Klakka

Helsta eign Klakka er fjármögnunarfyrirtækið Lýsing.
Helsta eign Klakka er fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Lýsing.

Stjórn Lind­ar­hvols, eign­ar­halds­fé­lags í eigu íslenska rík­is­ins, hefur sam­þykkt að selja 17,7 pró­sent hlut rík­is­ins í Klakka, sem hét áður Exista, til vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement. Eftir við­skiptin á Burlington um 75 pró­sent hlut í Klakka, en helsta eign félags­ins í dag er fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Lýsing. Burlington, sem var einn umsvifa­mesti kröfu­hafi föllnu bank­anna og keypti gríð­ar­legt magn af kröfum á þá á eft­ir­mark­aði fyrir lágar fjár­hæðir, mun greiða 505 millj­ónir króna fyrir hlut rík­is­ins í Klakka. Alls bár­ust þrjú til­boð í hlut­inn. Bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, oft­ast kenndir við Bakkavör, buðu næst­hæst, 501 milljón króna, í hann. Þeir voru aðal­eig­endur Existu fyrir hrun. Frá þessu er greint í DV í dag.

Lind­ar­hvoll, sem tók við stöð­ug­leika­fram­lags­eignum rík­is­ins, aug­lýsti til sölu eignir í umsýslu félags­ins í lok sept­em­ber. Það vakti athygli, enda mán­uður í kosn­ingar þegar eign­irnar voru aug­lýstar til sölu.

Burlington hefur gert öðrum hlut­höfum Klakka yfir­tökutil­boð sem átti að renna út síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Það hefur verið fram­lengt um eina viku sam­kvæmt því sem fram kemur í DV.

Kröfuhafi Íslands

Vog­un­ar­sjóð­ur­inn Burlington Loan Mana­gement, sem er fjár­magn­aður og stýrt af banda­ríska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Dav­id­son Kempner, hóf upp­kaup á bréfum í Klakka í jan­úar þegar hann keypti 31,8 pró­sent hlut Arion banka í félag­inu. Fyrir átti Burlington 13,2 pró­sent hlut í félag­inu. Kaupin voru gerð í nafni BLM Fjár­fest­inga ehf., íslensks dótt­ur­fé­lags Burlington. Sjóð­ur­inn hefur verið stærsti erlendi kröfu­hafi íslensks atvinnu­lífs á eft­ir­hrunsár­unum.

Klakki er móð­ur­fé­lag fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lýs­ing­ar, sem sér­hæfir sig í að fjár­magna atvinnu­tæki, atvinnu­hús­næði og bif­reiðar fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga.

Burlington eign­að­ist gríð­ar­lega mikið af eignum á Íslandi á und­an­förnum árum. Á árinu 2013 jók sjóð­ur­inn til að mynda eignir sínar á Íslandi um 70 pró­sent og í lok þess árs voru 18 pró­sent af fjár­fest­inga­eignum hans á Íslandi. Í lok árs 2014 voru íslensku eign­irnar tíu pró­sent af fjár­fes­inga­eignum hans, en sjóð­ur­inn jók mjög umsvif sín á því ári.

Stærsta ein­staka eign hans lengi vel voru kröfur í þrotabú Glitn­is, en Burlington var einn stærsti kröfu­hafi bús­ins. Nafn­virði krafna Burlington í bú bank­ans var að minnsta kosti vel á þriðja hund­rað millj­arð króna. Burlington fékk rúm­lega 30 pró­sent af nafn­virði þeirra krafna í kjöl­far þess nauða­samn­ingur Glitnis var stað­festur af dóm­stólum í des­em­ber 2015.

Sjóð­ur­inn var einnig einn stærsti kröfu­hafi slita­bús Kaup­þings. Í nóv­em­ber 2012 átti hann kröfur í búið að nafn­virði 109 millj­arðar króna. Til við­bótar hefur Burlington átt fullt af öðrum eignum hér­lend­is. Sjóð­ur­inn átti umtals­verðar kröfu í bú Lands­bank­ans og er á meðal eig­anda ALMC (áður Straumur fjár­fest­inga­banki). Þá hefur sjóð­ur­inn, líkt og áður sagði, átt hlut í Klakka um nokk­urt skeið. Mikla athygli vakti þegar hann keypti 26 millj­arða króna skuldir Lýs­ingar skömmu fyrir ára­mót 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár