Bakkavararbræður reyna að eignast Lýsingu á ný

Bakka­var­ar­bræður bít­ast nú við vog­un­ar­sjóð „herra Íslands“ um hluti í Klakka, áður Exista. Helsta eign félags­ins er Lýsing. Á meðal þeirra sem eru að selja hlut er íslenska ríkið. Bræð­urnir hafa þegar boðið í þann hlut.

Félög í eigu bræðr­anna Ágústar og Lýðs Guð­munds­sona, sem oft­ast eru kenndir við Bakkavör, reyna nú að eign­ast stóran hlut í eigna­um­sýslu­fé­lag­inu Klakka, sem áður hét Exista. Bræð­urnir voru stærstu eig­endur Exista, eins stærsta fjár­fest­inga­fé­lags lands­ins á góð­ær­is­ár­unum, áður en félagið fór í nauða­samn­inga­ferli eftir banka­hrunið og var í kjöl­farið yfir­tekið af kröfu­höfum þess. Langstærsta eign Klakka í dag er 100 pró­sent hlutur í fjár­mögn­ung­ar­fyr­ir­tæk­inu Lýsingu. Á meðal þeirra sem eiga stóran hlut í Klakka sem er til sölu er íslenska ríkið, en Lind­ar­hvol, félag sem heldur utan um stöð­ug­leika­fram­lags­eignir rík­is­ins, á um 18 pró­sent hlut. Bræð­urnir hafa þegar gert til­boð í hlut rík­is­ins. Frá þessu er greint í DV í dag.

Þar segir að einnig að vog­un­ar­sjóð­ur­inn Burlington Loan Mana­gement, sem var einn umsvifa­mesti kröfu­hafi föllnu íslensku bank­anna, sé að bít­ast við bræð­urna um hluta­bréf í Klakka. Burlington er þegar stærsti eig­andi Klakka með um 57 pró­sent hlut eftir að hafa keypt mikið af kröfum á Exista á sínum tíma og eftir að hafa keypt hlut eign­ar­halds­fé­lags utan um eft­ir­stand­andi eignir slita­bús Glitnis nýverið. Sjóð­ur­inn hefur nú gert hlut­höfum sem eiga 43 pró­sent í félag­inu yfir­tökutil­boð sem rennur út á fimmtu­dag, 20. októ­ber. Í DV segir að Burlington muni greina á bil­inu 3-3,5 millj­arða króna fyrir þann hlut verði til­boðið sam­þykkt. Sá sem stýrir Burlington er Jeremy Lowe, oft kall­aður „herra Ísland“ vegna umsvifa hans hér­lendis eftir hrun, en Burlington hefur verið fyr­ir­ferða­mestur allra sjóða í við­skiptum með kröfum á fallna íslenska banka og önnur íslensk fyr­ir­tæki.

Félögin BBR ehf. og Rask ehf., sem eru í eigu Bakka­vara­bræðra, áttu sam­tals tæp­lega þrjú pró­sent hlut í Klakka í árs­lok 2015 sam­kvæmt hlut­haf­alista í árs­reikn­ingi.

Bræður ná vopnum sínum að nýju

Bræð­urnir Ágúst og Lýður voru á meðal fyr­ir­ferða­mestu manna í íslensku við­skipta­lífi fyrir banka­hrun. Fjár­fest­inga­fé­lag þeirra Exista var stærsti ein­staki eig­andi stærsta banka lands­ins, Kaup­þings, átti ráð­andi hlut í alþjóð­lega fyr­ir­tæk­inu Bakkavör Group, átti VÍS og Lýsingu, svo fátt eitt sé nefnt. Exista hélt einnig á umtals­verðum erlendum eignum.

Eftir banka­hrunið rið­aði veldi þeirra til falls og kröfu­hafar þeirra töp­uðu gríð­ar­legum fjár­munum. Þeirra á meðal var fjöldi íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Bræð­urnir hafa hins vegar hægt og rólega verið að ná vopnum sínum að nýjum. Í byrjun þessa árs greindi Kjarninn frá því að þeir væru aftur orðnir eig­endur að nán­ast öllu hlutafé í Bakkavör Group að nýju. Þá höfðu þeir, ásamt með­fjár­festum sínum, keypt hlut íslenskra líf­eyr­is­sjóða og Arion banka í félag­inu.

Með kaup­unum lauk ára­langri bar­áttu um yfir­ráð yfir Bakkavör Group, fyr­ir­tæki sem Ágúst og Lýður stofn­uðu upp­haf­lega á Suð­ur­nesj­unum á níunda ára­tug síð­ustu aldar, og er nú risa­vaxið alþjóð­legt mat­væla­fyr­ir­tæki. Og það má vel færa rök fyrir því að bræð­urnir hafi staðið uppi sem algjörir sig­ur­veg­arar í þeirri bar­áttu.

Fyrirferðamiklir í Panamaskjölunum

Bræð­urnir komu líka fyrir í hinum frægu Panama­skjölum. Þar kom fram að þeir áttu að minnsta kosti sex félög sem skráð eru til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Eitt þeirra félaga var á meðal kröfu­hafa í bú Kaup­þings. Félagið, New Ortland II Equities Ltd., gerði sam­tals kröfu upp á 2,9 millj­arða króna í búið. Um var að ræða skaða­bóta­kröfu. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Kaup­þingi ehf., sem stofnað er á grunni slita­bús Kaup­þings, var skaða­bóta­kröf­unni hafnað með end­an­legum hætti við slita­með­ferð Kaup­þings. Tals­maður félags­ins vildi að öðru leyti ekki tjá sig um inni­hald eða upp­runa kröf­unnar þegar Kjarninn leit­aði upp­lýs­inga um það og bræð­urnir svör­uðu ekki fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Bræð­urnir voru, líkt og áður sagði, stærstu ein­stöku eig­endur Kaup­þings fyrir fall bank­ans í gegnum fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Exista. Bjarn­freður Ólafsson, lög­maður þeirra, sat í stjórn bank­ans fyrir þeirra hönd og félög bræðr­anna voru á meðal stærstu skuld­ara Kaup­þings. Samkvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis skuld­aði Exista og tengd félög Kaup­þingi, sem breytt­ist í Arion banka við kenni­tölu­flakk í hrun­inu, 239 millj­arða króna. Eitthvað hefur feng­ist upp í þær kröfur vegna nauða­samn­inga Existu og Bakka­varar, og sölu á hlut í Bakkavör, en ljóst er að sú upp­hæð er fjarri þeirri fjár­hæð sem Kaupþing lán­aði sam­stæð­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár