Útgjöld ríkissjóðs jukust um 27 milljarða og tekjur um 14 milljarða króna

Útgjöld ríkisins jukust um 26,6 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 saman­borið við fyrstu sex mánuðina 2014. Á sama tíma jukust tekjur um 14,2 milljarða króna. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 30,3 milljarða króna saman­borið við jákvætt handbært fé upp á rúma ellefu milljarða króna í fyrra. Tekju­jöfnuður, munur á tekjum og gjöldum, var jákvæður um 779 milljónir króna.

Greiðslu­afkoma ríkis­sjóðs fyrir fyrri helming árs 2015 var birt í dag. Þar segir að neikvæð staða handbærs fjárs skýrist að stærstum hluta með því að leið­rétting verð­tryggðra húsnæðis­lána sem gjaldfærð var á árinu 2014 kom til greiðslu nú í byrjun árs 2015. „Þetta hefur eingöngu áhrif á sjóðs­hreyfingar en ekki rekstrar­stöðu ársins 2015 og hafði sambærileg jákvæð áhrif á handbært fé í lok árs 2014,“ segir í tilkynningu frá fjármála­ráðuneytinu.


Bjarni Benediktsson er fjármála­ráðherra.


Hér að neðan má lesa um helstu tekjur og gjöld ríkis­sjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins.

Tekjur af tekjum, tóbaki og tollum

Innheimtar tekjur námu 320,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins sem er 4,6 prósent meira en innheimtist á sama tímabili í fyrra. Niður­staða tímabilisins er 25,3 milljörðum yfir áætlun fjárlaga, eða 8,6 prósentum hærra en áætlað var. Það er sagt umtals­vert. „Það skýrist þó að miklu leyti af ýmsum óreglu­legum og tilfall­andi þáttum sem nánar verður farið yfir hér á eftir. Þegar litið er til þróunar skatt­stofna á fyrri helmingi ársins er hún í megin­dráttum í samræmi við áætlun fjárlaga.“


Nærri 86 prósent heildar­tekna eru af innheimtu hinna ýmsu skatta og trygginga­gjalda. Sá hluti jókst um 6,1 prósent milli ára. Skattar á tekjur og hagnað jukust um 9,6 prósent milli ára og námu samtals 116,7 milljörðum króna. Tekju­skattur einstaklinga nam 65,3 milljörðum króna sem er 3,8 prósentum meira en í fyrra. Tekju­skattur lögaðila jókst um 34 prósent milli ára og nam 26,6 milljörðum króna. Þar af nam sérstakur fjár­sýslu­skattur 4,9 milljörðum króna. Fjármagns­tekju­skattur skilaði 24,7 milljörðum króna og jókst um 4,5 prósent milli ára. Fjármagns­tekju­skattur greiddur af ríkinu sjálfu nam 5,6 milljörðum. Það skýrist af arðgreiðslu Lands­bankans til eiganda síns, ríkis­sjóðs.


Eignar­skattar drógust saman milli ára um 35,2 prósent og námu 3,5 milljörðum króna. Það skýrist af brott­falli auðlegðar­skatts frá og með síðustu áramótum. Stimpil­gjöld námu 1,8 milljarði króna sem er aukning um 14,7 prósent frá því í fyrra. Tekjur af erfðafjár­skatti drógust saman um 15,4 prósent milli ára og námu 0,9 milljörðum.


Skattar á vöru og þjónustu jukust um 5,8 prósent milli ára og námu samtals 112,5 milljörðum króna. Virðis­aukaskattur vegur þar þyngst og skilaði 77,9 milljörðum.


Vörugjöld af ökutækjum námu 3,4 milljörðum og eykst um 33,7 prósent milli ára. Það skýrist af auknum innflutningi bifreiða. Vörugjöld af bensíni skiluðu 5,6 milljörðum og olíu­gjaldið, sem jókst um 6,7 prósent milli ára, skilaði 3,4 milljörðum. Kolefnis­gjaldið skilaði 1,6 milljarði króna.


Tekjur af tóbaks­gjaldi námu 2,9 milljörðum króna og drógust saman um 3,7 prósent. Tekjur af áfengis­gjaldi námu 5,9 milljörðum og var rétt yfir áætlun. Sala áfengis á fyrstu sex mánuðum ársins mæld í vínanda jókst um rúmlega 1 prósent en tóbaks­sala dróst saman um 3,2 prósent að magninu til.


Tollar og aðflutnings­gjöld námu 2,6 milljörðum króna. Það er samdráttur um 3,7 prósent og skýrist af áhrifum fríverslunar­samnings Íslands og Kína frá 1. júlí 2014.


Aðrir skattar námu samtals 4 milljörðum.

Gjöld vegna lánaniðurfærslna, heilbrigðismála og löggæslu

Greidd gjöld námu 319,7 milljörðum króna og jukust um 26,6 milljarða króna frá fyrra ári, eða um 9,1 prósent, sem er minna en gert hafði verið ráð fyrir.


Útgjöld til almennrar opinberar þjónustu voru svipuð milli ára og námu 70,8 milljörðum króna. Fjármagns­kostnaður ríkis­sjóðs skýrir stærstan hluta upphæðarinnar, eða 64 prósent. Hann nam 45,4 milljörðum króna á tíma­bilinu. Greiðslur til Jöfnunar­sjóðs sveitar­félaga námu 8,8 milljörðum og útgjöld vegna utan­ríkismála námu 4,7 milljörðum króna. Útgjöld vegna fjármála­stjórnsýslu ríkisins voru 5,3 milljarðar og útgjöld til annarra liða sem falla undir almenna opinbera þjónustu voru um 6,6 milljarðar.


Útgjöld vegna lögð og réttar­gæslu námu um 10,8 milljörðum og voru svipuð milli ára. Útgjöld til efnahags- og atvinnu­mála námu 45,4 milljörðum króna og jukust töluvert. Fjármála­ráðuneytið segir það í samræmi við það sem gert var ráð fyrir. Stærsti útgjalda­liðurinn, 17,1 milljarður króna, er vegna niður­færslu verð­tryggðra húsnæðis­lána. Útgjöld til samgöngu­mála námu 11,3 milljörðum, um 6,7 milljörðum til land­búnaðarmála og útgjöld vegna almennra atvinnu­mála og markaðs­eftirlits námu 3,1 milljarði.


Útgjöld til heilbrigðis­mála námu rúmum 73 milljörðum króna og jukust um 5,1 milljarð. Útgjöld til menningar- og félags­mála námu um 9,5 milljörðum króna. Útgjöld vegna almanna­trygginga og velferðar­mála námu 63,9 milljörðum króna.


Útgjöld vegna atvinnu­leysis námu 6,4 milljörðum saman­borið við 7,7 milljarða í fyrra. Önnur útgjöld námu 15,4 milljörðum. Útgjöld vegna lífeyris­skuld­bindinga námu 6,1 milljarði króna.


Hreinn lánsfjár­jöfnuður ríkis­sjóðs er neikvæður um 12,4 milljarða króna en var á sama tíma í fyrra jákvæður um 3,7 milljarða. Afborganir lána námu samtals 54,2 milljörðum. Lántökur á fyrri helmingi árs námu alls 29,5 milljörðum og voru allar innlendar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár