Ríflega tveir áratugir eru síðan Huldar Breiðfjörð sendi frá sér fyrstu bók sína, ferðasöguna Góðir Íslendingar (1998), þar sem hann lýsir ferðalagi sínu hringinn í kringum Ísland á Lapplanderjeppa á útmánuðum. Huldar hélt síðan áfram að skrifa ferðasögur: 2004 kom Múrinn í Kína og 2009 Færeyskur dansur, þar sem ferðast var annars vegar um stærsta ríki veraldar og hins vegar um eitt það smæsta. Í fyrstu bókinni, Góðum Íslendingum, fór saman löngun sögumanns til að kynnast heimalandi sínu og um leið sjálfum sér í skemmtilegri frásögn af ytra og innra ferðalagi. Í nýju bók Huldars, Sólarhringli, er hann að hluta á svipuðum slóðum og í Góðum Íslendingum; aftur er lýst ferðalagi í kringum Ísland, en einnig annars konar ferðum; til útlanda, um …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir