Vill vita hverjir raunverulega eiga Arion banka

Þingmaður hefur spurt fjármála- og efnahags­ráðherra af hverju foreldra­félög þurfi að gefa upp raun­verulega eigendur en lögaðilar sem skráðir eru á hlutabréfa­markaði, eins og Arion banki, þurfi þess ekki.

ÓIafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins.
ÓIafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins, hefur lagt fram skriflega fyrir­spurn til Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra þar sem hann fer fram á að vita hverjir séu raun­verulegir eigendur Arion banka. Í fyrir­spurninni er vísað í lög um aðgerðir gegn peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka þegar kemur að skilgreiningu á raun­verulegum eiganda.

Ólafur spyr einnig hvers vegna lögaðilar sem skráðir eru á skipulögðum markaði, eins og íslenskum hlutabréfa­markaði, fái undanþágu frá því að upplýsa um hverjir séu raun­verulegir eigendur þeirra, á sama tím að og „lögaðilar sem hafa ófjárhagslegan tilgang, svo sem almanna­heilla­samtök, foreldra­félög, áhugamanna­félög og fleiri í úr þeim ranni þurfi að upplýsa um raun­verulega eigendur.

Ísland á gráum lista

Ísland var sett á gráan lista alþjóð­legu samtak­anna Financial Action Task Force (FATF) í október í fyrra. Ein af ástæðum þess var sú að ekki lágu fyrir upplýsingar um hverjir væru raun­verulegir eigendur lögaðila hérlendis með boðlegum hætti, en það er ein megin­reglan í vörnum gegn peninga­þvætti að slíkar upplýsingar liggi skýrt fyrir.

Í fyrra­sumar höfðu tekið gildi lög sem gerðu það að verkum að öll íslensk félög, sem skipta tugum þúsunda, áttu að gera grein fyrir því hver ætti þau í raun fyrir 1. júní 2020. Eftir að Ísland var sett á gráa listann var þeim tíma­mörkum flýtt til 1. mars með laga­breytingu sem var samþykkt í desember.

Samkvæmt upplýsingum Kjarnans er staða mála varðandi skráninguna í dag, þegar tíma­fresturinn er liðinn, þannig að langur vegur er frá því að hún sé fullnægjandi. Sérstak­lega á það við skráningu raun­verulegra eigenda ýmissa tegunda félaga sem hafa ekki þann tilgang að hagnast fjárhags­lega, heldur eru búin til utan um ýmis konar félags­starfsemi.

Skortur á skráningu á raun­verulegum eigendum var ein ástæða þess að Ísland var áfram á gráa listanum við síðustu endur­skoðun FATF á honum, sem fram fór í síðasta mánuði. Næsta endur­skoðun er í júní.

Seldu sjálfum sér íslenskan banka

Arion banki var lengi vel að uppistöðu í eigu Kaupþings ehf., félags sem heldur utan um eftir­standandi eignir hins fallna banka eftir að kröfu­hafar hans kláruðu gerð nauða­samnings í kjölfar stöðugleika­samkomulags við íslenska ríkið snemma árs 2016.

Á árinu 2017 keyptu fjórir af stærstu eigendum Kaupþings, Taconic Capital, Och-Ziff Capital Management Group, sjóðir í stýringu Attestor Capital og Goldman Sachs, samtals 29,6 prósent hlut í Arion banka.

Tveir þeirra, Attestor og Goldman Sachs, bættu við sig 2,8 prósent hlut 13. febrúar 2018. Sama dag var kaup­réttur Kaupþings á 13 prósent hlut ríkisins í Arion banka virkjaður. Sá kaup­réttur var form­gerður í samningi frá árinu 2009, var fortaks­laus og einhliða. Ríkið mátti því ekki hafna tilboðinu án þess að gerast brotlegt við gerða samninga.

Erlendu eigendur Kaupþings, og þar með Arion banka á þessum tíma, voru, og eru, að uppistöðu skammtíma­sjóðir. Það þýðir að þeir ætla sér ekki að eiga bankann til lengri tíma, heldur að hámarka virði eigna sinna á nokkrum árum. Svo verður sjóðnum slitið og þeir sem eiga hlut í honum fá greitt út ágóðann af fjár­festingunni.

Engar upplýsingar veittar um endanlega eigendur Arion banka

Íslensk stjórn­völd hafa ekki talið ástæðu til þess að upplýsa um það hverjir „raun­verulegir eigendur“ (e. beneficial owner) þessarra sjóða eru.

Í dag eiga sjóðir í stýringu Taconic, Och -Ziff og Goldman Sachs samtals tæplega 37 prósent í Arion banka. Auk þess eiga sjóðir í stýringu Eaton Vance og Lansdowne Partners 6,78 prósent í viðbót.

Arion banki hefur skorið sig úr á meðal íslensku bankanna síðustu ár, þar sem stefna hans er mjög skýr: að greiða út eigið fé til hluthafa og minnka umfang bankans til að auka arðsemi þeirrar starfsemi sem mun standa eftir. Kjarninn hefur fjallað ítarlega um þessi áform og hægt er að lesa um þau hér.

Í þeim felast meðal annars áfram­haldandi breytt fjár­mögnun, samdráttur í útlánum, stórtæk uppkaup á eigin bréfum og arðgreiðslur sem eru langt umfram hagnað. Grein­endur spá því að arðgreiðslu­geta Arion banka geti aukist um allt að 50 milljarða á næstu 12 mánuðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár