Hæð byggðar í Mjódd lækkuð og blásið á hugmyndir um búðarkjarna við Bauhaus

Aðal­skipulag Reykja­víkur fram til ársins 2040 var samþykkt í skipulags- og samgöngu­ráði borgarinnar á miðvikudag. Helsta breytingin frá auglýstri tillögu er sögð sú að viðmið­un­arhæð byggðar í Mjódd lækkar niður í 4-7 hæðir.

Breytt aðal­skipulag Reykja­víkurborgar fram til ársins 2040 var samþykkt í skipulags- og samgöngu­ráði borgarinnar á miðvikudag. Þær breytingar hafa helst verið gerðar frá auglýstri tillögu að hæða­viðmið bygginga í Mjódd verður 4-7 hæðir, en hundruð íbúa í grenndinni mótmæltu því að fyrir­hugað væri að viðmið um byggðina yrði 5-8 hæðir, eins og Kjarninn sagði frá á dögunum.

Í svari frá borginni við athuga­semdum sem settar voru fram af hálfu íbúa í Neðra-Breið­holti er áréttað að aðeins stakar byggingar muni geta notið hámarks­heimilda og því sé „hæpin forsenda“ að gefa sér að byggðin verði almennt 8 hæðir eða jafnvel hærri, eins og gert var í sumum innsendum athuga­semdum frá íbúum.

Þá segir einnig í svarinu frá borginni að „við mótun byggðar yrði væntanlega leitast við að skala byggðina niður næst hinni lágreistu íbúðar­byggð og lágmarka þannig skugga­varp,“ og að við mótun byggðarinnar á þessu svæði þurfi einnig að gæta að mögulegri útsýnis­skerðingu, sem þó sé „erfitt að komast hjá í öllum tilvikum“.

Þéttleikinn væntanlega svipaður og á RÚV-reit

Í þessu svari borgarinnar við athuga­semdum íbúa í Neðra-Breið­holti vegna fyrir­hugaðrar uppbyggingar á reitum í Mjóddinni segir að ekki hafi verið teknar endanlegar ákvarðanir um mögulegan íbúða­fjölda né byggingar­magn á svæðinu – og að sú ákvörðun muni meðal annars grundvallast á mati á áhrifum uppbyggingar á grunn­skóla og áhrifum á samgöngur.

„Miðað við þau þéttleika­viðmið sem gefin eru upp vegna nálægðar við Borgar­línu – m.v. uppgefið hámark – þá yrði meðal þéttleiki á svæðinu full­byggðu svipaður og er á RÚV-reit í dag,“ segir í svarinu frá borginni og er þá vísað til þeirra íbúðar­húsa sem hafa sprottið upp á síðustu árum við hlið Útvarps­hússins í Efstaleiti.

Blásið á hugmynd um matvöruverslun á bílaplani Bauhaus

Eins og Kjarninn sagði nýlega frá vildi fasteigna­félagið Lambhaga­vegur, sem á húsnæðið sem hýsir byggingar­vöru­verslunina Bauhaus, fá leyfi til þess að byggja nýjan 3.-4.000 fermetra verslunar­kjarna með matvöru­verslun og annarri þjónustu á bíla­planinu framan við Bauhaus.

Skipulags­yfirvöld taka heldur fálega í þá hugmynd, samkvæmt svari við innsendu erindi Bauhaus. Í því svari segir að einkenni starfsemi og skipulags á svæðinu sé þess eðlis að svæðið uppfylli ekki skilyrði þess að vera borgarhluta­kjarni fyrir viðkomandi borgar­hluta.

Vegna þessa, og í samræmi við það markmið stefnu um matvöru­verslanir sem sé í aðal­skipulagi borgarinnar – „að þær séu einkum innan íbúðar­byggðar eða í fjöl­breyttum kjörnum í jaðri hennar“ – er ekki gert ráð fyrir heimildum um nýjar matvöru­verslanir á umræddu svæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár