Auðna Tótu og Tomma í 20 þúsund daga og nætur

Þegar fór að líða að gull­brúðkaupi Tómasar Jónssonar, ljós­myndara og grafísks hönnuðar, og Þórunnar Elísabetar listakonu fór Tómas í gegnum myndasafn lífs þeirra og úr varð bók sem er myndræn frásögn um samlífi samlyndra hjóna í hálfa öld en Tómas hefur myndað Þórunni og listaverk hennar í rúm 50 ár. Í spjalli á heimili þeirra þar sem boðið var upp á jurtate með bragð­miklu blóðbergi sögðu Tommi og Tóta ástar­söguna sem er leidd áfram af vináttu og trausti, hlýju og húmor, sköpunar­krafti og músík.

,,Við leyfum hvort öðru að vera nákvæmlega eins og við erum því að þar er mýktin og þar er virðingin.”
,,Við leyfum hvort öðru að vera nákvæm­lega eins og við erum því að þar er mýktin og þar er virð­ingin.” Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég vakna glöð og þakklát á hverjum degi. Ég vakna til minnar ástríðu. Hún er mín auðna,“ segir Tóta um leið og hún bíður mér sæti við ákaflega fallegt borð­stofuborð í íbúðinni þeirra í Miðstræti í Reykjavík. Íbúðin, sem er í húsi sem byggt var fyrir 117 árum, er ævintýri líkust, hvert sem litið er má sjá einstaka antíkmuni og listaverk og þótt andrúms­loftið sé afar afslappað er dálítið erfitt að halda fókus og einbeita sér að því að hlusta á sögurnar því augun vilja ekki láta trufla sig meðan þau taka inn alla fegurðina. „Við erum knúin áfram af eigin sköpunar­krafti og tónlist annarra og músíkin hefur verið okkar besti ferða­félagi frá því við vönguðum fyrst á balli í Mennta­skólanum á Akureyri í nóvember árið 1968,“ segir Tommi og mér tekst að beina augunum frá lista­verkunum og antík­munum og að bununni sem rennur úr tekönnunni þegar hann hellir jurtatei …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár