Bjarni Benediktsson stóð ekki við loforð til aldraðra en sakaði spyril um rangfærslu

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði rétta full­yrðingu frétta­konunnar Sigríðar Hagalín Björns­dóttur „alranga“ en viðurkenndi skömmu síðar að ríkis­stjórnin væri ekki búin að standa fyllilega við loforð flokksins um afnám tekju­tenginga elli­lífeyris.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, sagði „alrangt“ hjá Sigríði Hagalín, umsjónar­manni leiðtoga­umræðna Ríkis­útvarpsins í gær, að ríkis­stjórnin hefði ekki staðið við loforð sem hann gaf öldruðum um afnám tekju­tengingar elli­lífeyris í aðdrag­anda síðustu þing­kosninga.

Ásökunin um að spyrillinn færi með rangt mál stenst ekki skoðun. Tekju­tenging elli­lífeyris er ennþá hluti af lífeyris­kerfi Trygginga­stofnunar og viðurkenndi Bjarni skömmu síðar í þættinum að grunn­lífeyrir lífeyris­trygginga skerðist ennþá vegna atvinnu­tekna. Þá sagðist hann ekki vera að halda því fram að verkinu væri lokið.

 

„Fyrir síðustu Alþingis­kosningar sendirðu eldri borgurum bréf, lofaðir að aftur­kalla tekju­skerðingu aldraðra frá eftir­hrunsárunum og afnema tekju­tengingar elli­lífeyris, hvers vegna var ekki staðið við þessi loforð?“ spurði Sigríður Hagalín, annar af umsjónar­mönnum leiðtoga­umræðna.

Vísaði hún þar til bréfs (sjá hér til hliðar) sem Bjarni sendi eldri borgurum þann 22. apríl 2013 rétt áður en gengið var til kosninga.

Fram kemur í bréfinu að Sjálfstæðis­flokkurinn ætli að „aftur­kalla kjara­skerðingu elli­lífeyrisþega, sem komið var á árið 2009“ en jafnframt að flokkurinn ætli að „afnema tekju­tengingar elli­lífeyris“. 

Þegar Sigríður Hagalín spurði Bjarna hvers vegna ekki hefði verið staðið við þessi loforð sagði hann: „Þetta er bara alrangt hjá þér. Við þessi loforð var staðið“ og bætti við: „Fyrsta verk ríkis­stjórnarinnar var að afnema tekju­tengingar vegna lífeyris­greiðslna á móti elli­lífeyri, við lögfestum það sumarið 2013.“

Bjarni benti jafnframt á að ríkis­stjórnin hefði hækkað frítekjumörk og lækkað skerðingar­hlutföll hjá öldruðum. Skömmu síðar sagði hann að þótt tekju­tenging vegna lífeyris­greiðslna hefði verið afnumin væri rétt hjá spyrlinum að „það er enn skert vegna atvinnu­tekna“. 

Á Vísinda­vefnum er að finna samantekt á breytingum sem orðið hafa á tekju­tengingu elli­lífeyris á tíma­bilinu apríl 2013 fram í september 2016. Rakið er hvernig frítekjumörk hafa hækkað og skerðingar­hlutföll lækkað í tíð sitjandi ríkis­stjórnar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár