Níu mánaða tap Play 1,4 milljarðar – Opna skrifstofu í Litáen í desember

Flug­félagið Play greinir frá því í uppgjörs­tilkynningu í dag að það ætli sér að opna skrif­stofu í Vilníus í Litáen í desember. Höfuð­stöðvar, auk allra áhafna og flug­reksturs, verði þó áfram hér á landi.

Flugfélagið Play hóf sig á loft fyrr á árinu eftir langan undirbúningstíma.
Flug­fé­lagið Play hóf sig á loft fyrr á árinu eftir langan und­ir­bún­ings­tíma. Mynd: PLAY

Flug­félagið Play tapaði 10,8 milljónum bandaríkja­dala, jafnvirði 1,4 milljarða króna, á fyrstu níu mánuðum ársins. Sæta­nýting félagsins í október­mánuði var 67,7 prósent og hefur verið stígandi í henni frá því í sumar, en í júlí var sæta­nýtingin einungis 41,7 prósent.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá félaginu í dag, en þar er einnig sagt frá því að í desember muni Play opna útibú í Litáen, í höfuð­borginni Vilníus.

Play segir að höfuð­stöðvar félagsins verði áfram á Íslandi, auk allra áhafna og flug­reksturs, en að starfs­menn í Litáen muni sinna ýmsum stoð- og tækni­hlutverkum. Félagið segir að reiknað sé með að fimmtán til tuttugu manns muni starfa á skrif­stofu þess í Litáen innan fárra mánaða.

Með því að staðsetja hluta verkefna í Vilníus segist Play fá „gott aðgengi að sérfræðingum innan upplýsinga­tækni, staf­rænnar þróunar, markaðs­mála, fjármála og þjónustu“ samkvæmt því sem kemur fram í frétta­tilkynningu félagsins, en þar má lesa að til standi að vera með þjónustuver þar ytra, þrátt fyrir að þjónustu við íslenska viðskipta­vini verði áfram sinnt frá Íslandi.

„Nýja útibúið mun enn fremur ýta undir alþjóð­lega menningu og skapa tengingar við nýja birgja, þjónustu­veitendur og samstarfs­aðila sem geta boðið hagkvæm og álitleg kjör,“ segir í tilkynningu Play.

„Hugmyndin er sú að halda niðri kostnaði“

Þar segir einnig að Play etji kappi við flugfélög sem hafi lágan kostnaðar­grundvöll og aðgengi að sérþekkingu á alþjóð­legum markaði. „Það er því nauðsynlegt fyrir PLAY að geta mætt þeim sem jafningjum. Hugsunin er sú að halda niðri kostnaði og lágmarka yfir­byggingu svo hægt sé að bjóða lág fargjöld í hörðu samkeppnis­umhverfi. Opnun skrif­stofunnar í Vilníus er mikilvægt skref í þá átt að tryggja lágan kostnaðar­grundvöll PLAY á sama tíma og félagið hefur starfsemi beggja vegna Atlantshafsins og undirbýr framtíðar­vöxt,“ segir í tilkynningu félagsins.

Samkvæmt frétta­tilkynningu um uppgjörið og stöðu félagsins flutti Play alls tæplega 25 þúsund farþega í október og hefur alls flutt 68 þúsund farþega frá því félagið fór fyrst í loftið.

Áttu 77 milljónir dollara í eigið fé

Félagið segir að reksturinn á þriðja ársfjórðungi hafi verið undir væntingum, vegna áhrifa COVID-19 á tekjur, en að allir aðrir fjárhags­liðir hafi verið í samræmi við væntingar. „Fjárhags­staða PLAY er sterk og lausafé mikið sem gerir félaginu kleift að fylgja viðskipta­áætlun sinni á komandi mánuðum þegar innviðir eru undir­búnir fyrir flug til Norður-Ameríku. Eigið fé þann 30. september var 77 milljónir bandaríkja­dollara sem jafn­gildir 29,2% eiginfjár­hlutfalli,“ segir í tilkynningu félagsins.

Nokkuð hefur farið fyrir tilkynningar um manna­ráðningar Play á undan­förnum vikum og mánuðum. Fyrir­tækið segir að 63 starfs­menn hafi bæst í hópinn á þriðja ársfjórðungi, 41 flugliði, 12 flugmenn og 10 starfs­menn á skrif­stofu. Heildar­fjöldi starfs­manna félagsins er sagður kominn upp í 135.

Play er í dag með 16 áfanga­staði í flug­áætlun sinni og hefur boðað að þeim fjölgi enn frekar á næstunni, bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. Félagið, sem er skráð á First North-markað Kaup­hallarinnar, mun kynna uppgjör sitt á opnum kynningar­fundi sem hefst klukkan 15:30 föstu­daginn 5. nóvember.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár