Í dag eru 80 ár frá fundi í Kreml sem réði úrslitum í orrustunni um Stalíngrad

Þeir hittust í Kreml: Vasilévskí, Stalín, Sjúkov.
Þeir hitt­ust í Kreml: Vasilé­v­skí, Stalín, Sjúkov. „Enginn, fyrir utan okkur þrjá, má vita af þessu í bili,“ sagði Stalín

Í dag, 13. sept­em­ber, eru rétt 80 ár frá því fundur var hald­inn í Kreml þar sem segja má að örlög hafi ráð­ist í einni gríð­ar­leg­ustu orr­ustu seinni heims­styrj­aldar en sú var þá nýhafin við Stalín­grad í Suður-Rúss­landi.

Þjóð­verjar og banda­menn þeirra höfðu að skipan Adolfs Hitlers ráð­ist inn í Sov­ét­ríkin í júní 1941. Markmið þeirra var að ger­sigra hinn Rauða her Sov­ét­ríkj­anna í einu vet­fangi og knýja Stalín leið­toga þeirra til upp­gjafar. Í fyrstu virt­ist allt ganga Þjóð­verjum í hag. Þeir unnu gríð­ar­leg land­svæði og drápu eða tóku höndum millj­ónir sov­éskra her­manna.

Illskeyttur vetur

Í des­em­ber voru þýskir skrið­drekar komnir að borg­ar­mörkum Moskvu, þeir sátu um Lenín­grad (Pét­urs­borg) og höfðu náð undir sig Kyiv.

En þá stöðv­að­ist sóknin, meðal ann­ars vegna þess að ill­skeyttur vetur fór í hönd. Þá var mót­spyrna Rauða hers­ins — þrátt fyrir alla ósigr­ana — miklu meiri en Hitler og nótar hans höfðu ímyndað sér, og sömu­leiðis fram­leiðslu­geta her­gagna­iðn­að­ar­ins í Sov­ét­ríkj­unum.

Vorið eftir réðu Þjóð­verjar enn stórum svæðum Sov­ét­ríkj­anna en nú ákvað Hitler að næsta stór­sókn skyldi ekki bein­ast að Moskvu — eins og Stalín var þó lengi viss um — heldur skyldi stefnt suður til Kákasus og olíu­lind­anna miklu í Bakú í Aserbædjan.

Málið var að þýska hern­að­ar­vélin stóð frammi fyrir sívax­andi elds­neyt­is­skorti og brýnt að útvega nýjar olíu­lindir.

Hitler beinir sjónum að Stalíngrad

Sókn Þjóð­verja í átt til Kákasus hófst um mitt sumar 1942 og virt­ist ganga vel til að byrja með. Eftir því sem leið á sum­arið varð Hitler hins vegar upp­tekn­ari af borg­inni Stalín­grad við Volgu, sem var þó eig­in­lega í útjaðri þess svæðis sem þýska hernum var ætlað að ná í þessum áfanga.

Stalín­grad var vissu­lega mik­il­væg iðn­að­ar­borg og sam­göngu­mið­stöð við Volgu neð­an­verða en í hinu stóra sam­hengi skipti hún Þjóð­verja þó nán­ast engu máli. Það myndi ekki ráða neinu um fram­gang stríðs­rekst­urs­ins í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð hvort Þjóð­verjar réðu Stalín­grad eða ekki.

Fyrir Hitler var stríðið hins vegar í ótrú­lega miklum mæli per­sónu­legt upp­gjör hans við heim­inn og hann afréð því að nið­ur­lægja Stalín með því að leggja undir sig borg­ina sem við hann var kennd.

Heilum þýskum her, 6. hernum, var því snúið frá sókn­inni til Kákasus og beint til Stalín­grad.

Afleið­ingin var sú að sóknin til olíu­lind­anna í Bakú rann út í sand­inn.

En framan af virt­ist allt ganga Þjóð­verjum í hag við Stalín­grad. Í byrjun sept­em­ber var þýski her­inn kom­inn inn í úthverfi borg­ar­innar, en hún stóð þá fyrst og fremst á vest­ari bakka Volgu. Rauði her­inn reyndi gagn­sókn en hún fór út um þúfur. Örlög borg­ar­innar virt­ust ráðin.

Tíu dagar eftir

Þann 12. sept­em­ber var hald­inn fundur Hitlers með Paulusi yfir­manni 6. hers­ins, Halder yfir­manni þýska hers­ráðs og fleiri pót­in­tátum þýska hers­ins.

Fund­ur­inn fór fram í borg­inni Vinnitsa í miðri Úkraínu, sem Þjóð­verjar héldu þá, og þýsku her­for­ingj­unum varð fljótt ljóst að Hitler hafði ekki áhuga á neinu nema að taka Stalín­grad.

Hann spurði hreint út hve langt yrði þangað til borgin félli.

Paulus svar­aði að hann þyrfti tíu daga til við­bótar til að hrekja Rauða her­inn burt úr borg­inni og svo tvær vikur til að „hreinsa til“.

Í byrjun októ­ber yrði borgin sem sé tryggi­lega á valdi Þjóð­verja.

En sama dag var líka hald­inn fundur í Kreml þar sem helstu her­for­ingjar Rauða hers­ins, þeir Georgí Sjúkov og Alex­ander Vasilé­v­skí, gengu á fund Stalíns.

Ein­ræð­is­herrr­ann krafð­ist þess að fá að vita hvers vegna gagn­sóknin fyrr­nefnda hefði ekki gengið. Sjúkov svar­aði því til að það hefði ein­fald­lega vantað bæði her­gögn og mann­skap og stuðn­ing úr lofti.

„Hvað þýðir „önnur lausn“?“

Stalín fór að rann­saka kort en þeir Sjúkov og Vasilé­v­skí fóru saman út í horn á her­berg­inu í Kreml og ræddu í hálfum hljóðum um hvað hægt væri að gera. Þeir voru báðir sam­mála að það yrði að finna aðra lausn en bara að henda sífellt meiri mann­skap og her­gögnum inn í Stalín­grad.

Stalín hafði næma heyrn og kall­aði allt í einu til þeirra:

„Og hvað þýðir „önnur lausn“?“

Þeir hrukku í kút en höfðu ekki svör á reiðum höndum. Stalín sagði þeim þá að fara í aðal­stöðvar her­ráðs­ins og finna lausn sem dygði. Þeir gerðu það og næsta sól­ar­hring­inn skoð­uðu þeir alla kosti gaum­gæfi­lega.

Og undir kvöld þann 13. sept­em­ber 1942 voru þeir komnir aftur á fund Stalíns.

Stalín heils­aði þeim með handa­bandi sem var óvenju­legt að sögn Antony Beevors sem rann­sakað hefur orr­ust­una við Stalín­grad flestum betur.

„Við erum sammála“

„Hvað lausn hafið þið fundið?“ spurði Stalín svo. „Hvor ykkar ætlar að gefa mér skýrslu?“

„Skiptir ekki máli,“ sögðu þeir, „við erum sam­mála.“

Og svo sýndu þeir Stalín áætl­un­ina sem þeir höfðu sett saman.

Í mjög stuttu máli gekk hún út á að spenna Stalín­grad sem gríð­ar­lega gildru fyrir 6. þýska her­inn. Rauði her­inn skyldi hopa inn í borg­ina, verj­ast af öllum sínum mætti og berj­ast um hvert hús, en samt gera í raun­inni ekki alvöru til­raun til að stöðva sókn Þjóð­verja inn í borg­ina.

Planið var að draga orr­ust­una á lang­inn.

Ef tæk­ist að tefja fyrir Þjóð­verjum í tvo mán­uði, og halda þeim upp­teknum við götu­bar­daga í Stalín­grad, þá mætti á meðan safna ógrynni liðs og her­gagna beggja megin við víg­lín­una við borg­ina og sækja svo fram í skynd­ingu og umkringja Stalín­grad og 6. her­inn einmitt þegar Hitler héldi að borgin væri end­an­lega að falla.

Áætlun Úranus

Stalín var ekki ánægður. Hann var hræddur um að Stalín­grad myndi falla löngu áður en tæk­ist að safna nægum her­afla til að hefja tang­ar­sókn­ina óvæntu. 

En þeim Sjúkov og Vasilé­v­skí tókst að sann­færa hann og þennan 13. sept­em­ber fyrir 80 árum varð ætlun Úranus til.

Skemmst er frá því að segja að allt gekk nákvæm­lega eins og Sjúkov og Vasilé­v­skí ætl­uðu. Bardagar í Stalín­grad urðu gríð­ar­lega grimmir og mann­skæðir en Rauði her­inn hélt velli þangað til 19. nóv­em­ber þegar Úranus brast á— sókn úr norðri tölu­vert handan við Stalín­grad. Þann 25. nóv­em­ber hófst svo sókn úr suðri.

Áætlun Mars var sú sókn kölluð.

Þýski her­inn lok­að­ist inn í Stalín­grad eins og Sjúkov og Vasilé­v­skí höfðu séð fyrir og í byrjun febr­úar 1943 gáfust örmagna leifar hans upp. 

Svo fund­ur­inn í Kreml fyrir 80 árum var heldur betur örlaga­ríkur.

Því ef Rauði her­inn hefði farið þá leið sem Stalín vildi fyrst — og sótt strax fram við Stalín­grad — hefði orr­ustan orðið jafn­vel enn blóð­ugri en raun bar vitni og hefði getað endað alla­vega. Og þýski her­inn hefði alt­ént áreið­an­lega ekki beðið jafn afdrátt­ar­lausan ósigur og raun varð á.

Stríðið hefði eflaust dreg­ist á lang­inn.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár