Eldfimt ástand í Louisiana - Þrír lögreglumenn skotnir

Lögreglan telur fleiri en einn árásar­mann hafa verið að verki, og er nú í gangi viðamikil leitar­aðgerð.

Þrír lögreglu­menn voru skotnir til bana í borginni Baton Rouge í Louisiana-fylki í Banda­ríkjunum um níuleytið í morgun að staðar­tíma. Einn árásar­maður hefur verið skotinn til bana, en samkvæmt fréttum New York Times er fleiri árásar­manna leitað.

Lögregla hefur lokað öllum götum milli höfuð­stöðva lögreglunnar í borginni og þjóðvegs tólf, en innan þess svæðis er talið að árásar­mennirnir geti hafa haldið sig.

Samkvæmt frétta­miðlum vestanhafs voru lögreglu­mennirnir skotnir nálægt Old Hammond þjóð­veginum.

Baton Rouge hefur verið í brennidepli að undan­förnu eftir að lögreglu­menn skutu hinn 37 ára gamla Alton Sterling til bana á dögunum, eftir að hann hafi verið yfir­bugaður. Lögreglu­mennirnir hafa borið fyrir sig að Sterling hafi verið að seilast eftir byssu þegar þeir skutu hann, en það var ekki svo. Kærasta hans sýndi beint frá því með aðstoð Facebook Live þegar lögreglan skaut Sterling. Hann var að teygja sig eftir skilríkjum sínum þegar lögreglu­maður skaut Sterling fjórum sinnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár