Vitorðsmaður byssumannsins í gæsluvarðhald

Ungur maður hefur verið úrskurðaður í gæslu­varðhald í Kaupmanna­höfn eftir að hafa verið hand­tekinn af lögreglu í gær. Hann er sakaður um að hafa látið Omari El-Hussein sjálfvirk skotvopn í té en sá réðst á Krudttønden á Austurbrú 14. febrúar síðastliðinn, myrti tvo og særði þrjá. Ungi maðurinn hefur hugsanlega verið ákærður fyrir að vera vitorðs­maður árásar­mannsins. DR greinir frá þessu.

Maðurinn sem var hand­tekinn er sagður hafa útvegað El-Hussein árásar­riffil af gerðinni Barrett M95. El-Hussein réðst svo til atlögu á fund um málfrelsi sem sænski teikn­arinn Lars Vilks sótti. Vilks hefur teiknað og birt skop­myndir af Múhameð spámanni og er það talið hafa verið tilefni árásarinnar.

Árásar­maðurinn komst undan og var felldur af lögreglu nokkru síðar á lestarstöð í Norðurbrú í Kaupmanna­höfn.

Lögreglan hefur ekki gefið upp nafn mannsins sem nú hefur verið settur í gæslu­varðhald en frétta­stofa DR hefur eftir heimildum sínum að þeir grunuðu í málinu hafi átt tengsl við klíkuna „Brothas“ sem haldið hefur til í Mjølnerparken í Kaupmanna­höfn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár