Meðgangan að Fríríkinu var löng

Fanney Hrund Hilmars­dóttir, lögfræðingur og rithöfundur, fékk fyrst hugmyndina að bókinni Fríríkinu þegar hún lærði lögfræði. Síðan átti hún eftir að fara í ferðalag um heiminn og búa í eitt ár í Ástralíu til að kynnast hugmyndinni nógu vel og skrifa sjálfa bókina.

Fanney Hrund Hilmars­dóttir var á fjórða ári í laganámi þegar hún fékk fyrst hugmyndina að þeim ævintýra­heimi sem síðar varð að bókinni Fríríkið. „Meðgangan var því löng,“ útskýrir hún.

Á skólabekk kynntist hún kenningum réttar­heim­spekingsins John Rawls og hugmyndum hans að svokölluðum Fávísis­feldi en Fanney útskýrir hann svona: „Hann felur í sér að þeir sem leggjast undir hann tapa sjálfs­meðvitundinni og þeir hafa ekki hugmynd um af hvaða kyni þeir eru, á hvaða aldri, hvaða stétt þeir tilheyra, hvaða starfi þeir sinna eða yfirhöfuð vita neitt um það sem snýr að þeim persónu­lega. Í þessari sjálfs­vitundar­legu óvissu er þeim gert að semja grunnlög samfélagsins.“

Fanney útskýrir að hugmyndin Rawls hafi sætt ákveðinni gagnrýni á þeim tíma sem hún kom út en hún hafi sjálf ekki verið tilbúin að leggja hana undir feld alveg strax. „Ég var ekki alveg tilbúin til að skilja við fávísis­feldinn þarna, sem einhvers konar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hugleiðslu

Í bókinni Allir fuglar fljúga í ljósið riðlast tilvera ráfarans Bjartar og lífssaga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rithöfundur og skapari sögunnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hugleiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draumurinn kominn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár