„Gerði ráðherra enga kröfu um að aðstoðarmaðurinn færi ekki að vinna fyrir sömu kröfuhafa og hann var að kljást við?“

Oddný G. Harðar­dóttir, þingkona Samfylk­ing­ar­innar, segir hneyksli að sami maður og vann að stöðugleika­skilyrðum gagnvart kröfu­höfum fyrir Bjarna Benediktsson vinni nú fyrir aðilana sem stöðugleika­skilyrðin voru sniðin að.

Oddný G. Harðar­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir hneyksli að Benedikt Gíslason, sami maður og vann að gerð stöðugleika­skilyrða, samnings­markmiða og annarra útfærslna gagnvart kröfu­höfum sem aðstoðar­maður Bjarna Benedikts­sonar í tíð ríkis­stjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, vinni nú fyrir Kaupþing og stærstu eigendur Arion banka, þá aðila sem stöðugleika­skilyrðin voru sniðin að.

Benedikt Gíslasonfyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar sem nú stafar í fjár­mála­geir­anum.

Þetta kom fram í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma á Alþingi í morgun, en Oddný benti á að Benedikt hefði hafið störf fyrir umrædda aðila aðeins nokkrum vikum eftir að hann hætti störfum sem aðstoðar­maður fjármála­ráðherra.

„Við erum fámenn hér á landi. En erum við virkilega svo fámenn að sú staða hafi verið óumflýjanleg?“ sagði Oddný og spurði Bjarna hvort hann teldi eðlilegt að fyrr­verandi aðstoðar­maður hans gæti eina stundina unnið með viðkvæmar trúnaðar­upplýsingar fyrir hið opinbera en stuttu seinna farið að vinna fyrir þá aðila sem hafa augljós­lega mikla hagsmuni af því að sýsla með þær sömu upplýsingar. „Gerði hæstvirtur ráðherra enga kröfu um að aðstoðar­maðurinn sem starfaði í umboði hans færi ekki að vinna fyrir sömu kröfuhafa og hann var að kljást við fyrir hæstvirtan ráðherra? Telur hæstvirtur ráðherra ekki augljós­lega að starfs­maður sem býr yfir slíkum upplýsingum sé afskaplega verðmætur starfs­maður fyrir Kaupþing? Hvað gerði hæstvirtur ráðherra til að koma í veg fyrir að mögulegir hagsmuna­árekstrar ættu sér stað?“

Bjarni sakaði Oddnýju um dylgjur og sagði hana gefa í skyn að farið hefði verið illa með trúnaðar­upplýsingar sem mönnum var treyst fyrir. „Ég verð bara að biðja hátt­virtan þingmann um að færa einhver rök fyrir máli sínu ef svo er,“ sagði hann og bætti við: „Það sem var verkefni umrædds starfs­manns eru opinberar upplýsingar í dag. Það er ekkert sem leiddi af störfum hans eða þeirra sem tóku þátt í þeirri vinnu, og það voru fjölmargir aðilar — það er allt saman bundið í samninga sem m.a. voru lagðir fyrir í efnahags- og viðskipta­nefnd í vikunni. En um hvað hv. þingmaður er að dylgja átta ég mig ekki á, hún verður að gera betur grein fyrir því hér.“

Oddný svaraði á þá leið að hún væri ekki að dylgja um nokkurn skapaðan hlut. „Ég var að spyrja hæstvirtan ráðherra spurningar sem hann svaraði ekki. En svona atriði skipta máli. Afstaða hæstvirts fjármála­ráðherra skiptir mjög miklu máli. Ef honum finnst ekkert óeðlilegt við þessa stöðu, sem flestum öðrum finnst, er það eitt og sér sannarlega áhyggju­efni.“ Hún benti á að sú ákvörðun að fara aðra leið með Arion banka en Íslands­banka hefði verið tekin að kröfu sjálfstæðis­manna að sögn fyrrum samstarfs­manns Bjarna í ríkis­stjórn, Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar.

„Sporin hræða þegar kemur að fjármála­kerfinu og aðkomu Sjálfstæðis­manna. Allt ferlið þarf að vera gegnsætt og opið. En það er það ekki. Söluferli Arion banka er óljóst. Samningar við ríkið hafa ekki allir verið gerðir opinberir. Við vitum ekki hverjir eiga vogunar­sjóðina. Er ekki kominn tími til að við hættum þessu pukri og fúski og viðurkennum að það vinnur gegn hagsmunum almennings? Getur hæstvirtur fjármála- og efnahags­ráðherra að minnsta kosti ekki verið sammála mér um það?“

Bjarni svaraði: „Þetta eru algjör­lega innihalds­laus orð sem falla hér úr ræðustól. Pukur og fúsk. Það er ekkert pukur og það er ekkert fúsk. Hátt­virtur þingmaður sat í ríkis­stjórninni sem gerði kaup­réttinn við Kaupþing á sínum tíma, hún kannast bara ekki við það. Hún sat í ríkis­stjórninni sem gerði kaup­réttinn sem nú er verið að virkja en kemur hér upp og talar um pukur og fúsk. Kannast ekki einu sinni við eigin verk.“ 

Bjarni sagði stöðugleika­samninga og niður­stöður þeirra sýna að allt hefði gengið fullkomlega upp. „Þrýstingur á krónuna var enginn. Verkefnið var til þess ætlað að draga úr gjaldeyris­ójöfnuði sem hætta var á að myndaðist við uppgjör gömlu slita­búanna. Það tókst 100%. Og stöðugleika­framlögin, sem metin hafa verið á sínum tíma upp á rétt um 380 milljarða, eru í dag metin á um 74 milljarða umfram það sem þá var.“

Oddný hefur áður gert hagsmuna­árekstra við gerð stöðugleika­skilyrða að umtals­efni á Alþingi. Hún átti orða­skipti við Bjarna um málið fyrir tæpu ári, sjá hér, og nýlega birti hún svo eftir­farandi hugleiðingu á Facebook:

„Benedikt Gíslason, fyrr­verandi aðstoðar­maður Bjarna Benedikts­sonar þegar Bjarni var fjármála- og efnahags­ráðherra í ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, var einn helsti ráðgjafi þeirrar ríkis­stjórnar um losun gjaldeyris­hafta. Eitt af því sem fólst í vinnu Benedikts var að koma að gerð stöðugleika­skilyrðanna. Benedikt hefur síðan því lauk, unnið fyrir kröfuhafa Kaupþings sem eru stærstu eigendur Arion banka og hafa verið að kaupa hlut í sjálfum sér, að því er virðist eingöngu svo að ríkið fái ekki sinn hlut greiddan á raunvirði bankans. Hvers vegna var ekki komið í veg fyrir þetta með stöðugleika­samkomu­laginu? Ráðlagði Benedikt Gíslason Bjarna eitthvað í þessum efnum? Og hvað ætli Benedikt hafi svo ráðlagt Kaupþingi um þetta? Þessi staða Benedikts beggja vegna borðsins er sannarlega tortryggileg þó ómögulegt sé að fullyrða um afleiðingar hennar. Samkvæmt svari Bjarna við fyrir­spurn minni frá því í fyrra hafði hann ekki miklar áhyggjur af þessum tengslum fyrrum aðstoðar­manns hans. En ætli aðstoðar­maðurinn fyrr­verandi verði samt ekki einn af þeim sem fær háar bónus­greiðslur þegar að fléttunni sem nú gengur yfir með Arion banka verður lokið?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár