Spjót CIA beinast að krónprinsinum

Washington Post greindi frá því í gær að bandaríska leyni­þjónustan CIA telji krónprins Sádí-Arabíu hafa fyrir­skipað morðið á pistla­höfundi blaðsins í sendiráðs­bústað í Istanbul 3. október síðastliðinn.

Bandaríska leyni­þjónustan CIA telur krónprins Sádí-Arabíu, Mohammed bin Salman, hafa fyrir­skipað morðið á Jamal Khashoggi, pistla­höfundi Washington Post, en hann var drepinn af aftöku­sveit 3. október síðastliðinn í sendiráðs­bústað Sádí-Arabíu í Istanbul.

Erdogan Tyrklands­forseti hefur fullyrt að krónprinsinn hafi fyrir­skipað morðið og bandaríska leyni­þjónustan tekur undir þetta, samkvæmt fréttum Washington Post.

Í Washington Post er fullyrt að CIA búi yfir upplýsingum sem sanni aðild krónprinsins að morðinu, meðal annars upptökur af samtali hans við bróðu sinn, Khalid bin Salman, sem er sendi­herra Sádí-Arabíu gagnvart Banda­ríkjunum.

Samkvæmt frásögn Washington Post þá talaði Khalid við Khashoggi í síma og sagði honum að ná í gögn í sendi­ráðið í Istanbul, sem hann þurfti til að geta gifst tyrkneskri kærustu sinni.

Fimmtán manna aftöku­sveit eru grunuð um að hafa framkvæmt morðið, en það er nú opinber­lega rannsakað bæði í Tyrkland og Sádí-Arabíu.

Í yfir­lýsingu frá sendiráði Sádí-Arabíu í Washington er því harðlega neitað að krónprinsinn hafi átt þátt í morðinu, og því er einnig neitað sendi­herrann hafi rætt við Khashoggi um að fara í sendi­ráðið í Istanbul.

Washington Post hefur fjallað ítarlega um öll skref rann­sóknar í málinu. Khashoggi var gagn­rýnandi stjórn­valda í Sádí-Arabíu og skrifaði meðal annars pistla, þar sem hann sagði stríðið í Jemen verða skammarlegt fyrir Sádí-Arabíu og Banda­ríkin og að það þyrfti að stöðva.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár