Bakkavararbræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir leggja ekki fram hluta þess fjármagns sem notað er til kaupa nærri 46 prósenta hlut í matvælafyrirtækinu heldur er það meðfjárfestir bræðranna sem leggur fram kaupverðið. Meðfjárfestirinnn er bandaríski vogunarsjóðurinn The Baupost Group L.L.C., eða sjóðir sem eru í stýringu hjá honum. Þetta herma heimildir Stundarinnar. „Baupost kemur með allan peninginn,“ segir einn af heimildarmönnum Stundarinnar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir