Nigel Farage deilir ESB-skoðun Bjarna á Twitter

Ummæli Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, um að viðræður Íslendinga við Evrópu­sambandið væru komnar á endastöð hafa vakið athygli víðar en á Íslandi. Í ræðu sinni á flokks­ráðsfundi Sjálfstæðis­flokksins um helgina sagði Bjarni meðal annars að „þær viðræður sem fyrri stjórn setti af stað eru komnar á endastöð. Aðdragandi málsins á Alþingi, sýndar­viðræðurnar síðasta kjör­tímabil og viðskilnaður vinstri stjórnarinnar við málið var með þeim hætti að það er rétt að hreinsa borðið og hefja umræðuna á nýjum og réttum forsendum.“

Í morgun birti blogg­arinn Paul Staines, sem skrifar undir nafninu Guido Fawkes og er yfir­lýstur hægri­maður, ummæli eftir Bjarna í flokknum ummæli dagsins (e. Quote of The Day). Hann gerir reyndar þau mistök að halda Bjarna vera utan­ríkis­ráðherra. Guido Fawkes bloggið er mjög mikið lesið og var meðal annars lýst af breska dagblaðinu The Daily Telegraph sem „einni af mest leiðandi pólitisktu blogg­síðunum“ í Bretlandi árið 2007.

guidofawkes
guidofawkes

Síðar í dag birti Guido Fawkes síðan ummælin á Twitter. Þar tók Nigel Farage, leiðtogi UKIP-flokksins í Bretlandi, sem er mjög andsnúinn Evrópu­sambandinu, færsluna upp og endur-twittaði henni.

nigel faragae
nigel faragae
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár