Umræður innan ráðuneytis leiddu til þess að leitað var til Hörpu

Í svari við fyr­ir­spurn frá þing­manni Sam­fylk­ingar segir Lilja Alfreðs­dóttir að ein­ungis mál­efna­leg sjón­ar­mið hafi ráðið för, að und­an­geng­inni ítar­legri rann­sókn, er hún ákvað að skipa nýjan þjóð­minja­vörð án aug­lýs­ingar.

Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir er menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Drög að aug­lýs­ingu vegna stöðu þjóð­minja­varðar höfðu verið skrifuð af tveimur emb­ætt­is­mönnum í yfir­stjórn menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu, en við umræður innan ráðu­neyt­is­ins um fram­hald máls­ins kom svo til tals hvort ein­hverjir af safn­stjórum höf­uð­safna, eða ann­arra stærri safna, myndu vilja taka að sér emb­ættið og væru hæfir til þess.

Í fram­hald­inu var svo „horft til nokk­urra safna og hvernig starf­semi þeirra hefði verið og laga­skil­yrði fyrir flutn­ingi emb­ætt­is­manns á milli safna könnuð“ og nið­ur­staðan úr þeirri athugun var að Lista­safn Íslands þætti „standa fram­ar­lega með fram­sækna og fjöl­breytta starf­semi á und­an­förnum árum“ og að ljóst væri að „frammi­staða safn­stjóra Lista­safns Íslands, hæfni við­kom­andi, reynsla og þekk­ing var eft­ir­tekt­ar­verð og að starfið í safn­inu bæri með sér að þar færi kröft­ugur safn­stjóri og leið­togi“.

„Aðrir eig­in­leikar við­kom­andi, svo sem hæfni í mann­legum sam­skiptum, stjórn­un­ar­reynsla og lausn­a­miðuð nálgun, gerðu það enn fremur að verkum að safn­stjór­inn þótti vel hæfur til þess að taka við emb­ætti þjóð­minja­varðar,“ segir í skrif­legu svari Lilju Alfreðs­dóttur menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Jóhann Páls Jóhanns­sonar þing­manns Sam­fylk­ingar um skipan þjóð­minja­varðar án aug­lýs­ingar.

Lilja til­kynnti undir lok ágúst að hún hefði skipað Hörpu Þórs­dóttur í emb­ætti þjóð­minja­varðar, með því að flytja hana úr stöðu safn­stjóra Lista­safns Íslands. Óhætt er að segja að ráð­herra hafi fengið bágt fyrir frá ýmsum fag- og stétt­ar­fé­lögum, auk starfs­manna Þjóð­minja­safns­ins, sem töldu að ráð­herra hefði átt að aug­lýsa emb­ættið.

Stjórnendaþátturinn væri farinn að skipta miklu

Jóhann Páll kall­aði í fyr­ir­spurn sinni eftir skýr­ingum á því, hvers vegna ráð­herra hefði ákveðið að aug­lýsa ekki emb­ætti þjóð­minja­varðar eins og í lögum segir að almennt skuli gera og fór einnig fram á að fá upp­lýs­ingar um það hvers konar rann­sókn ráð­herra hefði fram­kvæmt við und­ir­bún­ing ákvörð­unar sinnar.

Í svar­inu kemur fram að við þá vinnu sem ráð­ist var í við að und­ir­búa aug­lýs­ingu um starfið hafi orðið ljóst að „horfa þyrfti til þess hversu safn­stjórnin er orðin viða­mikil í störfum safns­ins“ og er þá átt við „hve stjórn­enda­þátt­ur­inn er far­inn að skipta miklu í dag­legum störfum þjóð­minja­varðar og allar líkur eru á að fari vax­andi á næstu árum“.

Einnig var horft til þess að heim­sóknir safn­gesta skiptu meira máli en áður, í ljósi auk­ins fjölda þeirra og til ann­arra þátta, eins og við­töku safn­muna, og þeirra breyt­inga sem hefðu orðið á Þjóð­minja­safn­inu með stofnun Forn­leifa­verndar rík­is­ins og breyt­inga á þjóð­minja­lögum árið 2001 og svo lögum um menn­ing­arminjar árið 2012.

Með ofan­greint í huga var nið­ur­staðan að „safn­stjórn Þjóð­minja­safns­ins skipti meira máli í ljósi þess að stjórn­sýsla forn­leifa hafði færst til Minja­stofn­unar og að einka­fyr­ir­tæki önn­uð­ust forn­minja­rann­sóknir að stærstum hluta“.

Í svari Lilju segir að við ákvörðun um flutn­ing Hörpu frá Lista­safni Íslands til Þjóð­minja­safns­ins hafi verið gætt að grund­vall­ar­reglum um lög­mæti, rétt­mæti og mál­efna­legar ástæður flutn­ings­ins.

„Þar ber helst að nefna að farið var vand­lega yfir alla þætti sem mestu skipta þegar kemur að starfs­lýs­ingu og hlut­verki þjóð­minja­varðar. Má þar einkum nefna stjórn­un­ar­reynslu, menntun sem nýt­ist í starfi, þekk­ingu á mál­efnum Þjóð­minja­safns­ins, þekk­ingu á safna­starfi í land­inu, per­sónu­lega eig­in­leika, sam­starfs­hæfni, mann­kosti og aðra per­sónu­bundna þætti. Nið­ur­staðan af öllu fram­an­greindu var að Harpa Þórs­dóttir upp­fyllti öll þau skil­yrði sem ráðu­neytið taldi að þjóð­minja­vörður þyrfti að hafa til að bera,“ segir í svari ráð­herra.

Einungis byggt á málefnalegum forsendum

Jóhann Páll spurði Lilju einnig um það hvernig ákvörðun um flutn­ing­inn sam­rýmd­ist rétt­mæt­is­reglu stjórn­sýslu­reglu, sem felur það í sér að allar ákvarð­anir og athafnir stjórn­valda skuli byggj­ast á mál­efna­legum sjón­ar­miðum.

Í svari Lilju segir að ákvarð­anir sem teld­ust ómál­efna­legar væru til dæmis reistar á óvild eða per­sónu­legum ástæðum, eða þá að þær bæru það með sér að vera af póli­tískum, per­sónu­legum eða fjár­hags­legum toga. Ekkert af þessu hafi átt við þegar kæmi að ákvörðun um skipan þjóð­minja­varðar.

„Flutn­ingur safn­stjór­ans er reistur á mál­efna­legum for­sendum og grund­vall­ast á því að hæfur for­stöðu­maður í einu af þremur höf­uð­söfnum þjóð­ar­innar er fluttur í annað höf­uð­safn, Þjóð­minja­safnið, eftir vand­lega athugun og rann­sókn á því hvort öll skil­yrði væru upp­fyllt sem rétt­læta við­kom­andi flutn­ing,“ segir í svari Lilju, sem segir ein­göngu mál­efna­leg sjón­ar­mið hafa legið til grund­vallar ákvörð­un­inni.

„Umræddur emb­ætt­is­maður hefur með störfum sínum og reynslu sýnt fram á fram­úr­skar­andi hæfni til að gegna emb­ætti þjóð­minja­varðar. Fjölþætt reynsla við­kom­andi við safn­stjórn, lög­áskilin þekk­ing á mál­efnum Þjóð­minja­safns­ins, starfs­um­hverfi opin­berra stofn­ana og lögum um opin­ber fjár­mál auk margra ára stjórn­un­ar­reynslu und­ir­strika að ein­göngu mál­efna­leg sjón­ar­mið lágu að baki ákvörðun um flutn­ing, til sam­ræmis við rétt­mæt­is­reglur stjórn­sýslu­réttar. Vegna til­vís­unar til rétt­mæt­is­regl­unnar skal tekið fram að ákvörð­unin var ekki á nokkurn hátt byggð á per­sónu­legum tengslum né heldur var hún af póli­tískum toga og hafði engan fjár­hags­legan eða ann­ars konar ávinn­ing í för með sér fyrir nokkurn hlut­að­eig­andi. Við skip­un­ar­ferlið var gætt að öllum grund­vall­ar­reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins sem við áttu, auk ann­arra laga og reglna,“ segir í svari ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár