Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður og Lilja Alfreðsdóttir ráðherra menningarmála.
Harpa Þórs­dóttir þjóð­minja­vörður og Lilja Alfreðs­dóttir ráð­herra menn­ing­ar­mála. Mynd: Af vef Stjórnarráðsins

Grundvallarafstaðan til opinberra stöðuveitinga – og svo „heimurinn sem við búum við“

Lilja Alfreðs­dóttir ráð­herra menn­ing­ar­mála hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að skipa þjóð­minja­vörð án aug­lýs­ingar. Árið 2018 lýsti hún þeirri afstöðu sinni að almennt ætti að aug­lýsa störf for­stöðu­manna og segir þau orð standa, hvað sem öðru líði.

Lilja Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra lýsti því í við­tali við Frétta­blaðið árið 2018 að hennar afstaða til manna­ráðn­inga hins opin­bera væri sú að störf for­stöðu­manna skyldu aug­lýst. „Það er mín skoðun að almennt eigi að aug­lýsa stöður for­stöðu­manna rík­is­ins til að tryggja fag­legt mat, eðli­lega end­ur­nýjun og gagn­sæi í opin­berri stjórn­sýslu,“ sagði Lilja við blaðið.

Umfjöllun Frétta­blaðs­ins þarna í upp­hafi árs 2018 sner­ist um að ómögu­legt hafði verið að aug­lýsa stöðu for­stöðu­manns Kvik­mynda­sjóðs lausa til umsóknar vegna mis­taka sem höfðu í tvígang verið gerð hjá ráðu­neyti menn­ing­ar­mála við að skrá niður skip­un­ar­tíma for­stöðu­manns sjóðs­ins. Því fram­lengd­ist skip­anin ein­fald­lega sjálf­krafa, þar sem ekki var hægt að láta þáver­andi for­stöðu­mann vita af því að til stæði að aug­lýsa stöð­una með sex mán­aða fyr­ir­vara.

Fremur und­ar­legt mál – og ekki endi­lega gott afspurnar fyrir fag­leg­heit íslenskrar stjórn­sýslu. Hvað sem því líður, þá hefur annað mál sem snýr að manna­ráðn­ingum hins opin­bera tröll­riðið umræð­unni und­an­farna daga – skipan Lilju í emb­ætti þjóð­minja­varðar, for­stöðu­manns Þjóð­minja­safns Íslands, án aug­lýs­ingar.

Það að Lilja kaus að aug­lýsa ekki starfið hefur verið harð­lega gagn­rýnt af ýmsum.

Fagfélög stétta á borð við forn­leifa­fræð­inga, sagn­fræð­inga og þjóð­fræð­inga hafa til dæmis verið harð­orð í garð Lilju og jafn­vel kraf­ist þess að skipun Hörpu Þórs­dóttur í stöð­una verði aft­ur­kölluð. Sér­stak­lega er tekið fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu Félags forn­leifa­fræð­inga og Félags þjóð­fræð­inga, sem gerðu þá kröfu, að gagn­rýnin bein­ist ekki að Hörpu, sem verið hefur safn­stjóri Lista­safns Íslands und­an­farin ár, heldur að vinnu­brögðum ráð­herra við setn­ingu í emb­ættið.

Ekki „heimurinn sem við búum við“ að allar stöður séu auglýstar

Þau vinnu­brögð eru sann­ar­lega á skjön við þau vinnu­brögð sem ráð­herra sagði í áður­nefndu við­tali við Frétta­blaðið árið 2018 að hún teldi að almennt skyldi beita við skipan for­stöðu­manna hjá hinu opin­bera – að aug­lýsa allar stöður til að „tryggja fag­legt mat, eðli­lega end­ur­nýjun og gagn­sæi í opin­berri stjórn­sýslu“ eins og ráð­herr­ann sagði sjálf.

Kjarninn ræddi við Lilju um þessi mál í vik­unni og hún sagði að í grund­vall­ar­at­riðum hefði sú afstaða sem hún lýsti við Frétta­blaðið árið 2018 ekki breyst. „Það við­tal við mig sem var tekið við mig árið 2018 stendur,“ sagði Lilja við blaða­mann – grund­vall­araf­staða hennar til þess hvernig ætti almennt að standa að skipan for­stöðu­manna hjá hinu opin­bera stæði enn.

„Hins vegar er það svo að það er bara ekki sá heimur sem við búum við [að allar stöður séu aug­lýstar]. Það er þessi heim­ild í lögum um opin­bera starfs­menn [...] og almennt væri ég fylgj­andi því að öll störf væru aug­lýst, en þar sem þessi heim­ild er til staðar og verið er að nýta hana taldi ég til dæmis í þessu til­felli að það gæti verið far­sælt að taka safn­stjóra úr einu höf­uð­safni yfir í það næsta,“ sagði Lilja.

„Umræðan“ gæti skaðað tilflutning

Hún segir hins vegar að við­brögðin hafi verið slík við skipan þjóð­minja­varðar „að maður hugsar um það hvort það sé skyn­sam­legt að nýta þessa heim­ild yfir höfuð.“

„Við sjáum það af umræð­unni að hún gæti verið til þess fallin að hún gæti verið til þess fallin að skaða svona til­flutn­ing,“ segir Lilja og aðspurð segir hún að eftir á að hyggja hefði hún getað nálg­ast skip­un­ina með öðrum hætti.

„Ef það er þannig að umræða í kringum flutn­ing­inn sætir gagn­rýni og sé þá kannski til þess fallin að það geti verið ákveðin áskorun fyrir við­kom­andi for­stöðu­mann að hefja störf, að þá er ég bara eins og allir aðrir og hugsa: Ég hefði nú getað gert þetta öðru­vísi,“ segir Lilja og bætir við að tím­inn eigi eftir að leiða í ljós hvernig fari.

„Ég tek á móti gagn­rýni, hlusta á hana og reyni að meta það hvernig ég vinn með hana og vil styðja umhverfið í tengslum við söfn. Í minni ráð­herra­tíð hef ég lagt mikla áherslu á söfn og aukið fjár­veit­ingar til höf­uð­safn­anna,“ segir Lilja og hvetur fólk til þess að horfa til þess.

Í ljósi auk­inna fjár­veit­inga til höf­uð­safn­anna þriggja, Lista­safns Íslands, Þjóð­minja­safns­ins og Nátt­úru­minja­safns­ins, segir ráð­herra að „allt tal um metn­að­ar­leysi og áhuga­leysi“ eigi ekki við rök að styðj­ast.

„Það er ekki í þeim anda sem ég vil starfa að veikja sam­vinnu og sam­starf við safna­fólk í land­inu og þess vegna hlustar maður á þetta, fer yfir hverja ein­ustu ályktun og ég hef verið að boða til funda með við­kom­andi félögum til að hlusta á þau og heyra þeirra mál­flutn­ing. En ég er alltaf opin fyrir því að gera betur, það er ekk­ert leynd­ar­mál,“ segir Lilja.

Tilbúin að ræða kosti og galla undanþáguheimilda

Í umræðu um þessi mál í vik­unni steig Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ingar fram og boð­aði að er þing kæmi saman núna á í upp­hafi hausts hygð­ist hann leggja fram frum­varp sem ætlað væri að þrengja „veru­lega að heim­ildum ráða­manna til að víkja frá meg­in­reglu starfs­manna­réttar um aug­lýs­inga­skyldu við skipun í emb­ætti“.

Lilja segir að sjálf­sögðu sé hægt að fara yfir þessi mál á Alþingi og taka kosti og galla til skoð­unar. „Þessi heim­ild er nýtt af ráðu­neytum og stjórn­sýsl­unni vegna þess að það hefur verið talið að hreyf­an­leiki innan stjórn­sýsl­unnar sé jákvæður og til þess fall­inn að efla við­kom­andi starfs­menn og hvetja þá áfram. Ef ein­hver hefur staðið sig vel á einum stað er hann lík­legur til að standa sig vel á þeim næsta,“ segir ráð­herra.

Í umræðu um skipun þjóð­minja­varðar hefur verið bent á að eitt geti átt við um til­flutn­ing starfs­manna innan ráðu­neyta, og annað um til­flutn­ing yfir í emb­ætti for­stöðu­manna við stofn­anir eins og Þjóð­minja­safns Íslands.

Jón Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands og for­maður starfs­hóps sem skip­aður var af for­sæt­is­ráð­herra um leiðir til þess að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu, sagði til dæmis við frétta­stofu RÚVað honum þætti til­færslur starfs­manna innan ráðu­neyta yfir í stöðu ráðu­neyt­is­stjóra án aug­lýs­ingar stundum gagn­rýndar að ósekju, þær væru stundum „eðli­legar og mjög góðar“.

Þetta mál væri hins vegar öðru­vísi vaxið, vegna eðlis emb­ættis þjóð­minja­varðar. „Þarna er ráð­herra að túlka þessa heim­ild til að færa fólk innan stjórn­sýsl­unnar sem svo, að hún geti bara skipað hvern sem er úr stjórn­sýsl­unni, í hvaða starf sem er. Það er að mínu mati ekki réttur skiln­ingur á þessu,“ sagði Jón, sem tal­aði í fyr­ir­sögnum og sagði þessa til­teknu skipun jaðra við mis­beit­ingu á valdi.

Harpa standi fyrir gildi sem Lilja telji farsæl fyrir safnastarf

Í umræð­unni um málið í vik­unni hafa sem áður segir komið fram kröfur um að ráð­herra dragi skip­an­ina til baka. Það segir Lilja ekki koma til greina og ítrekar að fram­komin gagn­rýni hafi ekki beinst gegn Hörpu Þórs­dóttur sem skipuð var í emb­ættið.

„Ég held að við ættum að gefa þessu tæki­færi og líta á reynsl­una og það sem hún hefur áorkað á Lista­safni Íslands. Ég lít bara á það sem fólk er að segja og tek það til mín, en það er búið að skipa við­kom­andi ein­stak­ling,“ segir Lilja.

Lilja segir við blaða­mann að hún hafi „auð­vitað ákveðna sýn á safna­starf í land­inu“ og á henni er að heyra að nýr þjóð­minja­vörður smellpassi við þá sýn.

„Ég tel að við eigum að opna þau enn frekar og það sé mark­mið okkar að fá sem flesta inn í söfnin til að kynna sér sögu lands­ins, listir, menn­ingu og vís­indi. Sér­stak­lega börn og ungt fólk, því söfnin eiga að taka þátt í menn­ing­ar­legu og vís­inda­legu upp­eldi barna. Það hefur verið mitt meg­in­mark­mið öll þessi ár,“ segir Lilja.

„Það er líka hug­mynda­fræði­leg nálgun sem knýr þetta áfram, að vera með góðan stjórn­anda og stjórn­anda sem hefur sýnt það að geta farið af stað, umbreytt safni og opnað það. Hún stendur fyrir ákveðin gildi sem ég tel að séu far­sæl fyrir safna­starf í land­inu,“ segir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið undanfarið ár