Fimmtungur embættisskipana frá 2009 án auglýsingar

Á síð­ustu tólf árum hefur emb­ætt­is­maður 67 sinnum verið fluttur í annað emb­ætti án aug­lýs­ingar, sam­kvæmt sam­an­tekt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins yfir flutn­ing emb­ætt­is­manna milli emb­ætta frá 2009 til 2022.

Frá 2009 hefur embættismaður verið fluttur til í annað embætti, án þess að starfið sem um ræðir sé auglýst.
Frá 2009 hefur emb­ætt­is­maður verið fluttur til í annað emb­ætti, án þess að starfið sem um ræðir sé aug­lýst. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í 67 til­fellum af 334 emb­ætt­is­skip­unum frá 2009 hefur emb­ætt­is­maður verið skip­aður án aug­lýs­ingar, ýmist á grund­velli flutn­ings­heim­ildar í lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands eða sér­stakra laga­heim­ilda. Í 39 til­fellum af 67 þar sem emb­ætt­is­maður var fluttur í annað emb­ætti, var það gert í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana eða ráðu­neyta.

Þetta kemur fram í sam­an­tekt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins yfir flutn­ing emb­ætt­is­manna milli emb­ætta á tíma­bil­inu 2009 til 2022. Í um 80% til­fella hefur verið skipað í emb­ætti í kjöl­far aug­lýs­ingar á umræddu tíma­bili. Ef flutn­ingar emb­ætt­is­manna sem gerðir voru í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana eða ráðu­neyta eru ekki taldir með, fer hlut­fall skip­ana í kjöl­far aug­lýs­ingar upp í rúm 90%.

Skipan emb­ætt­is­manna hefur ítrekað verið til umræðu í sam­fé­lag­inu, nú síð­ast eftir að Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði Hörpu Þórs­dóttur, fyrr­ver­andi safn­stjóra Lista­safns Íslands, í starf þjóð­minja­varðar.

Skipan Hörpu í emb­ætti þjóð­minja­varðar vakti hörð við­brögð þar sem emb­ættið var ekki aug­lýst laust til umsókn­ar. Þess í stað nýtti ráð­herra sér heim­ild í lögum sem gerir henni kleift að færa emb­ætt­is­menn til í starfi. Í til­felli Hörpu taldi Lilja að það væri far­sælt að taka safn­stjóra úr einu höf­uð­safni og færa yfir í það næsta.

[links]Félag forn­­­leifa­fræð­inga og stjórn Félags íslenskra safna og safn­­­manna (FÍSOS) sendu nær sam­­stundis frá sér harð­orðar yfir­­­lýs­ingar vegna ákvörð­unar Lilju um að skipa Hörpu í emb­ætt­ið.

Síðar sendi Starfs­­manna­­fé­lag Þjóð­minja­safns­ins frá sér yfir­­lýs­ingu þar sem það tók undir gagn­rýn­ina á verk­lagið og sagði það lýsa „metn­að­­­ar­­­leysi ráðu­­­neyt­is­ins í garð Þjóð­minja­safns Íslands, ber vott um ógagn­­­sæja stjórn­­­­­sýslu og kastar rýrð á mála­­­flokk­inn í heild.“

Í síð­ustu viku sendi Félag forn­leifa­fræð­inga aftur frá sér til­kynn­ingu, þar sem farið er fram á að Lilja færi Hörpu aftur í sitt fyrra starf.

Hlutfallslega flestir flutningar í embætti ráðuneytisstjóra

Í sam­an­tekt ráðu­neyt­is­ins kemur fram að 267 emb­ætt­is­skip­ana af 334 síð­ustu 12 ár voru gerðar í kjöl­far aug­lýs­ingar en í 67 til­fellum var emb­ætt­is­maður fluttur í annað emb­ætti, ýmist á grund­velli flutn­ings­heim­ildar í lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands eða sér­stakra laga­heim­ilda. Í 39 til­fellum af 67 þar sem emb­ætt­is­maður var fluttur í annað emb­ætti, var það gert í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana eða ráðu­neyta.

Embættum er skipt í þrjá flokka í sam­an­tekt­inni; ráðu­neyt­is­stjóra, skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum og aðra emb­ætt­is­menn og er hlut­fall milli skip­unar í emb­ætti í kjöl­far aug­lýs­ingar og í kjöl­far flutn­ings mis­mun­andi milli teg­unda emb­ætta.

Hlut­falls­lega flestir flutn­ingar áttu sér stað þegar skipað var í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Alls voru átta ráðu­neyt­is­stjórar skip­aðir í kjöl­far aug­lýs­ingar á tíma­bil­inu en ell­efu emb­ætt­is­menn voru fluttir í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Tveir af þeim flutn­ingum voru gerðir á grund­velli breyt­inga á skipan ráðu­neyta.

Tæplega tveir af hverjum þremur skrif­stofu­stjórum í ráðu­neytum hafa verið skip­aðir í kjöl­far aug­lýs­ingar. Hins vegar var flutn­ingur 30 skrif­stofu­stjóra af 38 gerður í tengslum við breyt­ingar á skipan ráðu­neyta eða breyt­inga á innra skipu­lagi ráðu­neyta. Séu þau til­vik dregin frá hafa tæp­lega 89% skip­ana skrif­stofu­stjóra í emb­ætti verið gerðar í kjöl­far aug­lýs­ingar.

Samkvæmt sam­an­tek­inni hafa tæp­lega 92% ann­arra emb­ætt­is­manna á tíma­bil­inu verið skip­aðir í kjöl­far aug­lýs­ingar. Í 7 af þeim 18 til­fellum þar sem aðrir emb­ætt­is­menn voru fluttir milli emb­ætta var sá flutn­ingur gerður í tengslum við breyt­ingar á skipu­lagi stofn­ana. Í flestum til­vikum var um að ræða flutn­ings­heim­ild í lögum vegna sam­ein­ingar stofn­ana. Sé litið fram hjá þeim til­vikum er hlut­fall skip­unar í emb­ætti í kjöl­far aug­lýs­ingar tæp­lega 95%.

Í sam­an­tekt­inni er ekki að finna upp­lýs­ingar um lög­reglu­menn en afstaða dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er sú að almennt komi ekki til skoð­unar að flytja lög­reglu­menn milli starfs­stiga án aug­lýs­ingar, nema uppi séu sér­stakar aðstæður. Þá var sér­stakri flutn­ings­heim­ild í lögum beitt við end­ur­skipu­lagn­ingu á emb­ætta­skipan lög­reglu og sýslu­manna 2015 en þá fækk­aði m.a. sýslu­manns­um­dæmum úr 24 í 9. Þá var ekki kallað eftir upp­lýs­ingum um skip­anir dóm­ara í sam­an­tekt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár