Frjálsi og Birta samþykktu ekki kauprétt nýrra stjórnenda SKEL

Næstum tveggja milljarða króna kaup­réttur nýrra stjórn­enda SKEL voru ekki samþykktir af lífeyris­sjóðunum Frjálsa og Birtu, sem eru á meðal stærstu hluthafa félagsins. Samkvæmt sjóðunum var kaup­rétturinn óljós og meiri en almennt gerist á markaði.

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður SKEL.
Jón Ásgeir Jóhann­es­son, stjórn­ar­for­maður SKEL. Mynd: Skeljungur / Hörður Sveinsson

Nýráðinn forstjóri og fjármála­stjóri SKEL fjár­festinga­félags munu fá kauprétti að andvirði 1,6 milljarða króna næstu fimm árin, miðað við uppgefið nýtingar­verð sem er 16,4 krónur á hlut. Þeir munu eiga fimm prósent í Skel þegar réttirnir eru full­nýttir.

Arðgreiðslur og aðrar útgreiðslur til hluthafa munu koma til lækkunar á nýtingar­verðinu. Sé horft framhjá því nemur kaupréttar­gengið um 20 krónum á hlut. Miðað við það gengi getur virði samninganna orðið tæplega 1,9 milljarðar króna.

Tillaga um breytingu á starfs­kjarastefnu Skel þess efnis að tekið yrði upp kaup­réttakerfi sem heimilar þetta var lögð fram á aðalfundi Skel í síðasta mánuði. Lífeyris­sjóðirnir Frjálsi og Birta, sem eiga samtals um 12 prósenta hlut í félaginu, samþykktu ekki veitingu þessara kauprétta, sem eru á meðal þeirra stærstu sem hafa boðist einstökum starfs­mönnum fyrir­tækja hérlendis frá síðasta fjármála­hruni. Þær mótbárur báru ekki árangur og kerfið var samþykkt á aðalfundi Skel í síðasta mánuði.

Félagið Strengur, sem stýrt er af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnar­formanni Skel, á rúmlega helmings­hlut í fjár­festingar­félaginu.

Öll heimildin nýtt á tveimur nýjum starfsmönnum

SKEL tilkynnti í gærmorgun að Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, aðstoðar­bankastjóri Arion banka, hefði verið ráðinn forstjóri félagsins og að Magnús Ingi Einarsson, framkvæmda­stjóri banka­sviðs Kviku banka, hefði verið ráðinn fjármála­stjóri þess.

Í tilkynningu sem birtist eftir lok markaða í gær greindi SKEL svo frá því að bæði Ásgeir Helgi og Magnús Ingi fengju kauprétti um hluti í félaginu í samræmi við kaup­réttaáætlun þess sem samþykkt var á síðasta aðalfundi.

Samkvæmt þeirri áætlun, sem tók gildi þann 10. mars, var SKEL heimilt að úthluta kauprétti til lykil­stjórnenda félagsins af 5 prósentum af útgefnu heildar­hlutafé þess. Markaðs­verð þessara kauprétta er um 1,6 milljarðar króna, ef miðað er við meðal­gengi hluta­bréfa félagsins síðustu daga.

Þessi kaup­réttar­heimild, sem gildir til ársins 2027, er fullnýtt í nýjum samningum við Ásgeir Helga og Magnús Inga. Samkvæmt tilkynningu SKEL nemur virði kaup­réttar Ásgeirs 1,02 milljörðum króna, á meðan virði kaup­réttar Magnúsar Inga nemur 572 milljónum króna.

Stórir samningar

Kaupréttar­samningarnir eru á meðal þeirra umfangsmestu sem hafa verið gerðir til einstakra starfs­manna á íslenskum hlutabréfa­markaði frá síðasta fjármála­hruni. Til saman­burðar innleiddi Arion banki kaupréttar­áætlun til allra 628 fastráðinna starfs­manna bankans, en samkvæmt henni gat hver og einn þeirra keypt fyrir 600 þúsund krónur einu sinni á ári í fimm ár.

Stuttu síðar var hámarkið hækkað upp í 1,5 milljónir króna, og nemur það því 7,5 milljónum króna fyrir fimm ár. Það er um 0,7 prósent af virði kauprétta Ásgeirs Helga í SKEL fyrir næstu fimm árin.

Í febrúar ákvað stjórn Marels, sem er lang­stærsta félagið í Kaup­höllinni, að veita 300 starfs­mönnum sínum kauprétti að andvirði 6 milljarða króna fyrir næstu þrjú árin. Þar af var heildar­virði kauprétta fyrir alla framkvæmda­stjórn fyrir­tækisins 1,3 milljarðar.

Stjórn Haga ákvað í fyrra að veita lykil­starfs­mönnum félagsins kauprétti fyrir eitt prósent af hlutafé félagsins fyrir næstu sex árin, en líkt og Viðskipta­blaðið greindi frá nam heildar­markaðs­virði þess 741 milljón króna. Þar var kaup­réttinum dreift jafnt á milli átta lykil­stjórnenda félagsins.

Studdu ekki kaupréttina

Arnaldur Loftsson er framkvæmda­stjóri Frjálsa lífeyris­sjóðsins sem er þriðji stærsti hlut­hafinn í SKEL með 8,57 prósenta eignar­hlut. Í samtali við Kjarnann segir hann Frjálsa ekki vera almennt á móti kaup­réttum, en þótti umfang kaupréttar­áætlunarinnar sem lögð var fram á síðasta aðalfundi félagsins meira en almennt gerist hér á markaði. Því hafi sjóðurinn ákveðið að styðja ekki tillöguna.

Birta lífeyris­sjóður er fimmti stærsti hlut­hafinn í SKEL með 4,45 prósenta eignar­hlut. Í samtali við Kjarnann sagði Ólafur Sigurðsson, framkvæmda­stjóri sjóðsins, að Birta hefði heldur ekki samþykkt tillöguna um kauprétti sökum þess hversu óljós og opin hún hefði verið.

Líkt og Frjálsi segir Ólafur að Birta hafi enga sterka skoðun á kaup­réttum almennt eða árangurs­tengingu launa þegar áætlanir séu skýrar og hóflegar. Þó sé hann hugsi yfir því að kaup­réttar­heimildin, sem sé til fimm ára, hafi verið fullnýtt nú þegar í tvo starfs­menn félagsins sem séu nýbyrjaðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár