Svar við spurningum Bjarna: Án frjálsrar blaðamennsku þrífst ekkert lýðræði

Lagaleg sérstaða blaða- og frétta­manna í störfum sínum ætti að vera skýr samkvæmt Blaðamanna­félagi Íslands og Félagi frétta­manna, sem segja sér ljúft og skylt að svara spurningum sem Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra varpaði fram í gær varðandi stöðu blaða­manna sem fá réttar­stöðu sakbornings.

„Eru fjölmiðla­menn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu eins og almennir borgarar?“ spurði Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins í gærkvöldi: „Hvernig getur það talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?“

Í stöðu­uppfærslu á Facebook fjallaði Bjarni um þá stöðu að lögreglu­stjórinn á Norður­landi Eystra hefur kallað fjóra blaðamenn í yfirheyrslu þar sem þeir fá réttar­stöðu sakbornings á grund­velli brota á friðhelgi einkalífs vegna umfjöllunar um skæruliða­deild Samherja. Blaðamanna­félagið og Félag frétta­manna hafa nú sent frá sér yfir­lýsingu þar sem þessum spurningum og öðrum í stöðu­uppfærslu Bjarna er svarað. Yfir­lýsing félaganna tveggja er birt í heild sinni hér að neðan er þar er meðal annars bent á að sem einstaklingar séu blaða- og frétta­menn jafnir öðrum að lögum, „til dæmis ef þeir eru grunaðir um ölvunar­akstur, fjársvik eða ofbeldis­brot.“ Um störf þeirra gegni hins vegar öðru máli, um þau gildi önnur lög og reglur en um önnur störf, vegna hlutverks fjölmiðla í lýðræðis­ríki. Frelsi blaða­manna til að fjalla um mikilvæg fréttamál og veita valdhöfum aðhald séu lýðræðis­samfélagi lífs­nauðsynleg, án þess þrífist ekki lýðræði. Að auki eru blaðamenn ein fárra stétta sem er óheimilt samkvæmt lögum að svara spurningum er varða heimildar­menn og fyrir því séu ríkar ástæður.

Í því ljósi samþykkti Alþingi breytingar­tillögu á lögum um kynferðis­lega friðhelgi þar sem kveðið var á um að ákvæði um brot á friðhelgi einkalífs ætti ekki við þegar háttsemin væri réttlætanleg með vísan til almanna- eða einka­hagsmuna. Bjarni var á meðal þeirra þingmanna sem greiddu atkvæði með laga­breytingunni. Eins hefur komið fram að blaða­mennirnir hafi verið boðaðir í skýrslu­töku með vísan í meint brot gegn friðhelgi einkalífs, en Bjarni dregur það í efa í stöðu­uppfærslunni, gagnrýnir frétta­flutning af málinu því hann hafi byggt á orðum þeirra sem var gefið að sök að hafa framið brot. „Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?” spurði Bjarni, sem gagnrýndi fleiri atriði við frétta­flutning RÚV. Til að mynda það að rætt hafi verið lögmann sem taldi ólíklegt að gefin yrði ákæra á hendur blaða­mönnum á grund­velli þeirra laga­greina sem vísað var til í boðuninni. Velti hann því síðan upp hvort það væri eitthvað sérstak­lega íþyngjandi fyrir blaðamenn að fá réttar­stöðu sakbornings vegna frétta­flutnings, „er það mjög íþyngjandi?“ spurði hann, „meira íþyngjandi en almennir borgarar þurfa að þola í málum sem eru til rann­sóknar lögreglu?“ Þeir sem hefðu hreinan skjöld gætu mætt óhræddir til lögreglu og þar væru sum mál felld niður, önnur færu í ákæru, sýknað í sumum, sakfellt í öðrum. „Þarf öll þessi stóryrði áður en lögreglan spyr fyrstu spurningarinnar undir rannsókn málsins?“

Svar við spurningum Bjarna

Hér að neðan er yfir­lýsing Blaðamanna­félags Íslands og Félags frétta­manna: 

Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, fjallaði í gær á Facebooksíðu sinni um þá ákvörðun lögreglunnar á Norður­landi eystra, að boða fjóra blaða- og frétta­menn í yfirheyrslu með réttar­stöðu sakborninga, vegna umfjöllunar um svokallaða skæruliða­deild Samherja. Þar setti hann fram þessar spurningar:

Eru fjölmiðla­menn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu eins og almennir borgarar? Hvernig getur það talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?

Okkur er bæði ljúft og skylt að svara þessari spurningu.

Blaða- og frétta­menn eru sem einstaklingar jafnir öðrum að lögum, t.d. ef þeir eru grunaðir um ölvunar­akstur, fjársvik eða ofbeldis­brot. Um störf þeirra gegnir hins vegar öðru máli. Um þau gilda önnur lög og reglur en um önnur störf, vegna hlutverks þeirra.

Frelsi blaða­manna til að fjalla um mikilvæg fréttamál og veita valdhöfum aðhald eru lýðræðis­samfélaginu lífs­nauðsynleg. Án frjálsrar blaða­mennsku þrífst ekkert lýðræði. Blaða­mennska getur verið, og á að vera óþægileg fyrir fólk, stofnanir og fyrirtæki í valda­stöðum, því hún afhjúpar mistök, bresti og spillingu í kerfinu. Til þess að greina frá slíkum brestum getur verið nauðsynlegt að nota gögn sem ekki hefur verið aflað með lögmætum hætti. Dómstólar hafa staðfest að notkun blaða­manna á slíkum gögnum geti samræmst hlutverki þeirra að taka við og miðla upplýsingum sem erindi eiga við almenning.

Það liggur í eðli valdsins að verjast, og handhafar þess geta freistast til að takmarka frelsi fjölmiðla til að fjalla um þá með gagnrýnum hætti. Þessi freistni­vandi hefur valdið óheilla­þróun í ríkjum eins og Póllandi og Ungverja­landi, þar sem lögreglu hefur verið beitt til að yfirheyra og ákæra blaðamenn sem reynst hafa valdhöfum óþægur ljár í þúfu. Þessi vald­beiting gegn blaða­mönnum, ásamt veikburða og einsleitu fjölmiðla­umhverfi, hefur veikt undir­stöður lýðræðisins í þessum ríkjum enn frekar.

Íslendingar hafa, eins og margar aðrar lýðræðis­þjóðir, slegið ákveðna varnagla til að tryggja blaða­mönnum athafna­frelsi til að sinna störfum sínum. Þá má t.d. finna í lögum um fjölmiðla, þar sem blaða­mönnum er beinlínis bannað að rjúfa trúnað við heimildar­menn sína, hafi þeir óskað nafn­leyndar:

25. gr.

Starfs­mönnum fjölmiðla­veitu sem hlotið hafa leyfi eða skráningu hjá fjölmiðla­nefnd er óheimilt að upplýsa hver sé heimildar­maður að grein, riti, frásögn, tilkynningu eða öðru efni, hvort sem það hefur birst eða ekki, hafi heimildar­maður eða höfundur óskað nafn­leyndar. Starfs­mönnum fjölmiðla­veitu er jafnframt óheimilt að láta af hendi gögn sem hafa að geyma upplýsingar um heimildar­mann eða höfund í slíkum tilvikum.

Blaðamenn eru sömuleiðis ein fárra stétta sem samkvæmt lögum um meðferð einkamála og sakamála er óheimilt að svara spurningum um heimildar­menn sína og það sem þeim hefur verið trúað fyrir í starfi. Fyrir þessari sérstöku stöðu blaða­manna, sem viðurkennd er í lögum um bæði meðferð einkamála og sakamála, eru gildar ástæður.

Árið 2021 var almennum hegningar­lögum breytt, og bætt við þau ákvæðum um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Þau höfðu ekki áður verið refsiverð. Nýju ákvæðin hljóða svo:

228. gr.

Hver sem brýtur gegn friðhelgi einkalífs annars með því að hnýsast í, útbúa, afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heimildar­leysi skjölum, gögnum, myndefni, upplýsingum eða sambærilegu efni um einka­málefni viðkomandi, hvort heldur sem er á stafrænu eða hliðrænu formi, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári, enda sé háttsemin til þess fallin að valda brotaþola tjóni.

Sömu refsingu varðar það að ónýta eða skjóta undan einka­gögnum þeim, sem nefnd eru í 1. mgr.

Sektum eða fangelsi allt að 3 mánuðum skal sá sæta, sem hnýsist í hirslur annars manns án nægilegra ástæðna.

Ákvæði 1.–3. mgr. eiga ekki við þegar háttsemin er réttlætanleg með vísan til almanna- eða einka­hagsmuna. [Feitletr. höf.]

229. gr.

Hver sem í heimildar­leysi verður sér úti um aðgang að gögnum eða forritum annarra sem geymd eru á tölvutæku formi skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við þegar háttsemin er réttlætanleg með vísan til almanna- eða einka­hagsmuna. [Feitletr. höf.]

Feit­letruðu máls­greinunum var bætt inn til að tryggja að nýju ákvæðin hömluðu ekki störfum og tjáningar­frelsi fjölmiðla.

Lagaleg sérstaða blaða- og frétta­manna í störfum sínum ætti því að vera skýr. Vandséð er hverju blaða- og frétta­mennirnir fjórir geta svarað umfram það í yfirheyrslum hjá lögreglu.

Því er við að bæta, að margar hættur steðja að frjálsri og óháðri blaða- og frétta­mennsku á Íslandi. Frétta­miðlar eru fáir og eins­leitir, og starfandi blaða- og frétta­mönnum fækkaði um tæpan helming á árunum 2018-2020. Í nýlegri rannsókn Worlds of Journalism Study kom í ljós að 45% íslenskra blaða- og frétta­manna höfðu upplifað hótanir eða ógnanir í starfi á undan­förnum fimm árum. 16% höfðu orðið fyrir umsáturs­einelti, og 15% verið lögsótt vegna starfa sinna.

Við þessar þröngu starfs­aðstæður bætist nú sú ógn að lögregla boði blaða- og frétta­menn til yfirheyrslu með réttar­stöðu sakbornings fyrir hegningar­lagabrot, fyrir það eitt að stunda vinnu sína.

Blaðamanna­félag Íslands og Félag frétta­manna ítreka stuðning sinn við þá blaða- og frétta­menn sem hafa verið boðaðir til yfirheyrslu með réttar­stöðu sakborninga vegna starfa sinna, og hvetja valdhafa til að standa vörð um frjálsa fjöl­miðlun í landinu, frekar en að freistast til að ráðast gegn henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér finnst of mikið af tilfinningum í þessu máli, við þurfum meira af skynsemi. Í fyrsta lagi segir ályktun Blaðamannafélagsins allt sem segja þarf.
    Í öðru lagi er orðið skæruliði samkvæmt Íslenskri orðabók hermaður í óreglulegum hernaði en það þýðir að skæruliði er ofbeldismaður. Eitt dæmi um skæruliðahernað var Rauða herdeildin (Rote Armeefracktion) í Þýskalandi ósællar minningar. Hafa lögregluvöld á Íslandi fylgst með starfsemi svokallaðar "Skæruliðadeildar" sem kallar sig svo (hvaða fyrirtæki sem hún tengist)?
    Er lögreglan í alvöru að yfirheyra fréttamenn fyrir það að reyna að upplýsa um ofbeldissamtök? Bjarni Benediktsson heldur að lesendur blaða séu of einfaldir til að átta sig á hversu gagnsæjar spurningar hans eru. Þær eru að formi og innhaldi líkar þeim sem heyrst hafa frá mönnum eins og Pútin, Erdogan, Orban og fleirum. Tilgangurinn er að strá sandi í augun á fólki og dylja hluti sem ekki eiga að fréttast.
    1
  • Það er svo kristalstært í þessu ati Bjarna með hverjum hann er í liði að það jaðrar við að vera opinskátt í anda spilltra pólitíkusa. Hér veður hann áfram eins og naut í flagi á fullkomlega ósvífinn og heimskulegur. Er ekki komið nóg?
    1
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    ...Pravda.
    -1
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Bjarni Bein er að afhúpa hver hann er í raun og veru ,eða varhundur manna eins og voru með áróður gegn ákveðnum blaðamönnum ,með hótunum og hotunum um að gera þeirra fjölskildur eitthvert ógann .
    Bjarni ben er samsagt að verja glaðamensku Samherjamanna og aför svolkallaðra skaeruliða Samherjamanna við að níða skóinn af fréttamönnum og leggja þá í einelti .
    Málið snýst ekkert um stolin síma af einhverjum lasnum skipstrjóra í öndunar vel á sjúkrahúsi (kanski með kóvít hvar veit ),og hann á að passa símann sin ef hann er svona mikilvaegur .
    Það er eigin nílunda að stolið sé símum .
    En stolin sími og liflátsagerð ganveta manni sem blandaður er í eitt staersta brotamál ganvart fiskveiðum á íslandi .
    Þessi skipstjóri er í ákveðni krísu og aetti að vera í vitnavernd hjá vinum sínum á Akureyri .
    En þeta mal sínir bara Í HNOTSKURN FYRIR HVERN BJARNI FURSTI AF EINGEY ER AÐ VINNA
    4
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Sem flokksformaður verður Bjarni að sýna að hann geri sitt til að verja samherjana, helstu styrktaraðila flokksins ljóst og leynt. "Æ er gjöf til gjalds".
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár