Landsréttur staðfestir peningaþvættisdóm yfir fyrrverandi borgarfulltrúa

Júlíus Vífill Ingv­ars­son var í des­em­ber 2018 dæmdur í tíu mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir pen­inga­þvætti. Lands­réttur hefur nú stað­fest þann dóm.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Júlíus Vífill Ingv­ars­son Mynd: Skjáskot

Lands­réttur hefur stað­fest tíu mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm sem Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, hlaut í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir pen­inga­þvætti. Lands­réttur dæmdi Júlíus Vífil einnig til að greiða allan máls­kostnað og kostnað við áfrýjun dóms­ins. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Júlíus Vífill var í des­em­ber 2018 dæmdur í tíu mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir pen­inga­þvætti, eins og áður segir. Sak­sókn­ari í mál­inu hafði farið fram á átta til tólf mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi.

Kjarn­inn greindi fyrstur miðla frá því að Júl­íus Víf­ill hefði verið ákærður í ágúst 2018. Hann við­­ur­­kenndi við rann­­sókn á meintum efna­hags­brotum hans að hann hefði framið skatta­laga­brot. Þetta kom fram í ákæru á hendur honum sem hér­­aðs­sak­­sókn­­ari gaf út 28. júní síð­ast­lið­inn. Í þeirri játn­ingu fólst að Júl­­íus Víf­ill við­­ur­­kenndi að hann gaf ekki upp til skatts tekjur sem honum hlotn­uð­ust árið 2005, eða fyrr, og geymdar eru á aflands­­reikn­ingi. Júl­­íus Víf­ill hefur ekki viljað upp­­lýsa um hvenær umræddra tekna var aflað og því er ekki hægt að segja með vissu hver ávinn­ingur hans af skatta­laga­brot­unum hefur ver­ið.

Skatta­laga­brot fyrn­­ast hins vegar á sex árum. Það þýðir að ef við­kom­andi fremur slík, og kemur sér þannig undan að greiða lög­­bund­inn skatt eins og aðrir þegnar ríkja þurfa að gera, en nær að hylja þau í þann tíma þá kemst hann upp með það. Öðru máli gegnir hins vegar um pen­inga­þvætti. Lögum lands­ins var breytt árið 2009 þannig að refsi­vert var að þvætta ávinn­ing af eigin afbrot­­um. Því var Júl­­íus Víf­ill ákærður fyrir pen­inga­þvætti frá þeim tíma sem lögin tóku gildi, eða frá 30. des­em­ber 2009. Dómur hefur nú fallið í því máli.

Var í Panama­skjöl­unum

Júl­­­íus Víf­ill var einn þeirra stjórn­­­­­mála­­­manna sem voru opin­beraðir í Pana­ma­skjöl­unum og greint var frá í sér­­­­­stökum Kast­­­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl í 2016. Þar kom meðal ann­ars fram að hann hefði í árs­­­byrjun 2014 stofnað félagið Silwood Founda­tion á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félags­­­ins að nafn Júl­í­usar Víf­ils kæmi hvergi fram í tengslum við félag­ið, sam­kvæmt umfjöll­un­inni.

Tveimur dögum áður en að Kast­ljós­þátt­ur­inn var sýndur sendi Júl­íus Víf­ill frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði að til­gang­ur­inn með stofnun aflands­fé­lags­ins væri að stofna eft­ir­launa­sjóð í Sviss. „Allt sem við kemur þessum sjóði er í sam­ræmi við íslensk lög og regl­ur, enda naut ég sér­fræði­ráð­gjafar til að tryggja að rétti­lega og lög­lega væri að málum stað­ið. Mér var ráð­lagt að skrá stofnun sjóðs­ins í Panama. Ég hef hvorki fengið neitt greitt úr sjóðnum né haft af honum ann­ars konar tekjur og hef ekki heim­ild til að ráð­stafa fjár­munum úr hon­um.”

Júl­íus Víf­ill sagði af sér sem borg­ar­full­trúi 5. apríl 2016, tveimur dögum eftir að þátt­ur­inn var sýnd­ur.

Sak­aðir um að koma ætt­ar­auð undan

Syst­k­ini Júl­í­usar Víf­ils og erf­ingjar for­eldra hans hafa sakað hann og bróður hans, Guð­mund Ágúst Ingv­ars­son, um að komið ætt­­­ar­auð for­eldra þeirra undan og geymt hann á aflands­­reikn­ing­­um. Það gerðu þau meðal ann­ars í Kast­ljós­þætti sem sýndur var í maí 2016. Meintur ætt­a­r­auður eru sjóðir sem urðu til vegna starf­semi Ingv­ars Helga­sonar hf., sem um ára­bil var eitt stærsta bíla­um­boð lands­ins.

Þessum ávirð­ingum hefur Júl­íus Víf­ill ávallt hafnað með öllu. Í við­tali við Morg­un­blaðið í maí 2016 sagði hann þvert á móti að systk­ini hans hefðu dregið af sér tugi millj­óna króna af banka­reikn­ingi móður þeirra og í yfir­lýs­ingu sem Júl­íus Víf­ill sendi frá sér sagði hann að ásak­anir systk­ina sinna væru algjör ósann­indi og ómerki­leg ill­mælgi.

Þann 5. jan­úar 2017 kærði skatt­rann­­­sókn­­­ar­­­stjóri Júl­­íus Vífil til emb­ætti hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ara vegna meintra brota á skatta­lögum og vegna gruns um pen­inga­þvætti. Við síð­­­­­ara brot­inu getur legið allt að sex ára fang­els­is­­­dóm­­­ur.

Í kærunni kom fram að Júl­­­íus Víf­ill hafi átt fjár­­­muni á erlendum banka­­­reikn­ingum að minnsta kosti frá árinu 2005. Frá árinu 2014 hafi þeir verið hjá svis­s­­­neska bank­­­anum Julius Bär í nafni aflands­­­fé­lags Júl­í­us­­ar Víf­ils.

Ráð­legg­ingar „svo þetta endi ekki allt í skatti“

Hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ara barst hljóð­­­upp­­­­­taka frá emb­ætti skatt­rann­­­sókn­­­ar­­­stjóra þann 27. mars 2017. Um svipað leyti var sama upp­­­­­taka send á fjöl­miðla.

Á upp­­­tök­unni, sem er af fundi sem fór fram þremur dögum eftir birt­ingu Panama­skjal­anna, mátti heyra Júl­­­íus Víf­ill og lög­­­­­mann hans, Sig­­­urð G. Guð­jóns­­­son, ræða um þá fjár­­­muni sem vistaðir voru í svis­s­­­neska bank­­­anum við ætt­­­ingja Júl­í­usar Víf­ils, sem höfðu ásakað hann um að hafa komið ætt­­­­­ar­auð for­eldra sinna undan og geymt á aflands­­­reikn­ing­­­um. Júl­­­íus Víf­ill vildi að Sig­­­urður G. Guð­jóns­son myndi verja sig í mál­inu sem hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ari hefur rann­sakað á hendur hon­­­um. Á það vildi hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ari ekki fall­­­ast þar sem emb­ættið vildi kalla Sig­­­urð til skýrslu­­­töku í mál­inu og það úti­­­lok­aði ekki að Sig­­­urður fái stöðu sak­­­born­ings í því. Ástæðan eru þær ráð­­­legg­ingar sem Sig­­­urður veitir á hljóð­­­upp­­­tök­unni, um hvernig sé hægt að kom­­­ast hjá því að greiða fjár­­­mun­ina til syst­k­ina Júl­í­usar Víf­ils án þess að „þetta endi ekki allt í skatt­i“.

Þessi upp­taka átti þátt í því að ákæra var gefin út á hendur Júl­íusi Vífli og er ferl­inu nú lokið með dómi Lands­réttar í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár