Í þá tíð… Jesú kristur og upprisan

Var Jesú til í raun og veru og áttu síðustu dagar hans sér stað um páskana?

Um þetta leyti fyrir réttum, tjah, eigum við að segja 1984 árum, lögðu nokkrar konur leið sína að gröf Jesús frá Nasaret sem hafði tveimur dögum fyrr verið líflátinn á krossi fyrir guðlast. Rak þær í rogastans þegar þær sáu að gröfin hafði verið opnuð og var tóm, en engill birtist þeim þar og tjáði þeim að allt væri í sóma og vel það, því að Jesú væri upprisinn. Frá þessu segir alltjent í guðspjöllunum, forsöguna og fram­haldið kannast flestir við.

Sögurnar af ævi Jesús, afrekum hans, dauða og upprisu eru að sjálfsögðu trúar­kenningar fremur en sannanlegar sagn­fræðilegar heimildir, en hversu mikið af því sem sagt er að hafi gerst síðustu daga Jesús má gefa sér að sé staðreynd?

Var Jesú til?

Stutta svarið er: Að öllum líkindum.

Fyrir utan guðspjöll biblíunnar, sem voru skrifuð nokkru eftir að hann átti að hafa látist, er minnst á Jesú í að minnsta kosti tveimur sagn­fræðiritum.

Sagna­ritarinn Flavíus Jósefus minnist á Jesú á tveimur stöðum í riti sínu um sögu gyðingdóms, sem ritað var um árið 93 e.kr. samkvæmt gildandi tímatali (það er svo önnur pæling, hvort ártals­kerfið rími fullkomlega við tíma­setningu fæðingar Jesús). Þar er annars vegar minnst á dauða og upprisu Jesús og hins vegar talað um Jakob, „bróður Jesús, hins svokallaða Krists“. Margir hafa viljað meina að fyrr­nefndi kaflinn sé seinni tíma viðbót þar sem afritari hafi brugðið jákvæðara ljósi á Jesú en var að finna í uppruna­legu útgáfu Jósefusar.

Þá er Jesús einnig getið í annálum rómverska sagna­ritarans Tacítusar. Hann getur þess að Jesú hafi verið tekinn af lífi á valdatíð Pontíusar Pílatusar í Palestínu, en hún er talin hafa staðið frá 26-36 e.kr. og passar það vel við það sem kemur fram í guðspjöllunum.

Þar að auki má nefna rit Plíníusar yngri, sem var land­stjóri Rómar þar sem Tyrkland er í dag. Í bréfi hans til Trajanusar keisara, sem ritað er um 112 e.kr. minnist hann á kristna menn á umsjónar­svæði sínu og spyr hvernig eigi að refsa þeim fyrir einhverja ótilgreinda glæpi. Þó ekki sé minnst á Jesú beint, er þetta heimild um að fylgjendur hans hafi verið farnir að láta til sín taka á þessum tíma.

Þannig má teljast líklegra en ekki að maður að nafni Jesú hafi verið til í Palestínu, nokkurn veginn á þeim tíma sem um er rætt, þótt engar beinar sannanir liggi fyrir því.

Átti dauði hans og upprisa sér stað um páska?

Stutta svarið er: Já.

Þrátt fyrir að upprisan, líkt og önnur yfir­náttúruleg afrek Jesús, sé háð því að fólk trúi á kenni­setningar kristni, er dauða hans getið í ofan­greindum heimildum.

Sögurnar í biblíunni ganga út frá því að dauða Jesús hafi borið upp á páska­hátíðinni, sem er forn hátíð sem Hebrear tengdu sauðburði, og gyðingar síðar flóttanum frá Egypta­landi.

Jesú reið, samkvæmt biblíunni, inn í Jerúsalem á pálma­sunnudag og allt sem frá segir eftir það á að hafa gerst innan páska­hátíðar gyðinga.

Hvað sem svo gerðist nákvæmlega þessa daga er ómögulegt að segja til um. Hins vegar ómar enn af þeim til dagsins í dag, og jafnvel þótt verald­legur þanka­gangur og efahyggja hafi breytt eðli páskanna halda menn, konur og börn áfram að halda þá hátíðlega, sama hvað spurningunum hér að ofan líður.

Hér var meðal annars stuðst við:

Sverrir Jakobsson. „Er hægt að sanna það sagn­fræðilega að Jesús Kristur hafi verið til?“ Vísinda­vefurinn, 12. desember 2000. Sótt 15. apríl 2017.

Hjalti Hugason. „Hvers vegna heita páskar Gyðinga og páskar kristinna manna það sama þó að verið sé að fagna svo ólíkum atburðum?“ Vísinda­vefurinn, 9. apríl 2001. Sótt 15. apríl 2017.

„What is the historical evidence that Jesus Christ lived and died?“ The Guardian, 14. apríl 2017. Sótt 15. apríl 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár