Seðlabankinn kallar eftir endurskipulagningu hjá ferðaþjónustufyrirtækjum

Seðla­bankinn segir brýnt að huga að endur­skipulagningu skulda ferða­þjónustu­fyrirtækja, þar sem greiðslu­vandi þeirra fari að breytast í skulda­vanda þegar greiða á upp lánin sem tekin voru í upphafi faraldursins.

Fjármálastöðugleikanefnd SÍ
Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd SÍ Mynd: Seðlabanki Íslands

Greiðslu­vandinn sem ferða­þjónustu­fyrirtæki hafa glímt við undan­farið ár vegna tekju­falls gæti breyst í skulda­vanda hjá stórum hluta greinarinnar þegar fyrir­tækin byrja að greiða af lánum sínum á ný. Þetta kemur fram í ritinu Fjármála­stöðugleika, sem Seðla­bankinn gaf út fyrr í dag.

Skuldir aukast

Samkvæmt Seðla­bankanum hafa skuldir ferða­þjónustu­fyrirtækja aukist nokkuð í kjölfar farsóttarinnar og var útlána­vöxtur kerfis­lega mikil­vægra banka til ferða­þjónustu rúmlega 11% á síðasta ári. Stór hluti aukningarinnar skýrist af frestuðum afborgunum og vaxta­greiðslum á árinu, auk nýrra stuðnings- og brúarlána.

Til viðbótar hafði gengis­lækkun krónunnar á árinu þau áhrif að lán í erlendum gjaldeyri hækkuðu í krónum talið en þau nema tæplega þriðjungi útlána til ferða­þjónustu. Sú hækkun jók einnig á skuld­setningu ferða­þjónustu­fyrir­tækjanna

Seðla­bankinn segir að gjaldþrot í greininni hafi enn sem komið er verið fátíð og endur­skipulagning skulda fyrir­tækja í greininni eiga að stórum hluta eftir að fara fram. „Nú þegar hillir undir endalok faraldursins er brýnt að fara að huga að því verkefni,“ stendur í ritinu.

Ekki allir hagnast á íslensku ferðaþjónustusumri

Seðla­bankinn bætir við að útlit sé fyrir því að komandi sumri muni svipa til þess síðasta að því leyti að innlend ferða­mennska verði í farar­broddi, svo lengi sem létt verði á sótt­varnar­aðgerðum innanlands. Þetta ástand kæmi sér ekki vel fyrir hluta greinarinnar sem reiðir sig að nær öllu leyti á þjónustu við erlenda ferðamenn, t.d. gististaðir á höfuð­borgar­svæðinu, ýmis afþreyinga­fyrirtæki og ferða­skrifstofur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár