Sjálfstæðisflokkurinn lenti í milljóna króna vanskilum

Gerð var skil­mála­breyt­ing á 125 millj­óna króna láni Sjálf­stæð­is­flokks­ins hjá Íslands­banka eftir þriggja millj­óna króna van­skil. Flokk­ur­inn tók lánið árið 2011 til að end­ur­skipu­leggja fjár­hag sinn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur á síð­ustu árum end­ur­greitt fjár­styrki FL Group og Lands­bank­ans.

Vanskil við afborganir af 125 milljóna láni
Vanskil við afborg­anir af 125 millj­óna láni Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lenti fyrr á árinu í van­skilum við Íslands­banka vegna afborg­ana af 125 millj­óna króna láni sem flokk­ur­inn tók árið 2011 við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu sína. Bjarni Bene­dikts­son er for­maður flokks­ins. Mynd: Pressphotos

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lenti fyrr á árinu í van­skilum með lán frá Íslands­banka sem leiddi til þess að flokk­ur­inn gerði skil­mála­breyt­ingu á lán­inu. Um var að ræða van­skil upp á rúmar þrjár millj­ónir króna af láni sem var með upp­haf­legan höf­uð­stól upp á 125 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í skil­mála­breyt­ingu af lán­inu sem þing­lýst var á höf­uð­stöðvar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vallhöll, í febr­úar á þessu ári. Undir skil­mála­breyt­ing­una rit­aði Þórður Þóra­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár