Húsavík á kortið í alþjóðlegu strandhreinsunarátaki

Húsavík heimsækja árlega yfir 100 þúsund ferðamenn í þeim tilgangi að skoða hvali. Ferða­þjónustu­fyrirtæki á svæðinu sameinuðust í átaki í að hreins strand­lengjuna, og vel tókst til.

Hinn 14. júlí síðastliðinn tók hópur um 30 starfs­manna ferða­þjónustu­fyrirtækja, stofnana og umhverfis­samtaka þátt í alþjóð­legu strand­hreinsunar­átaki sem upphaf­lega var skipulagt af Ric O’Barry’s Dolphin Poject, bandarískum samtökum sem einblína á verndun höfrunga og hvala í höfum heimsins.

Að þessu sinni var farið að ósum Laxár í Aðaldal, í landi Laxamýrar, með þátttöku land­eigenda en þetta er í þriðja sinn sem fjörur eru gengnar í þessum tilgangi en þátttakan hefur aukist með ári hverju og er hópurinn nú orðinn fjöl­þjóðlegur. Með samstilltu átaki og góðri stemmningu þeirra sem tóku þátt, söfnuðust um 600 kíló, hvar um 70 prósent af því voru neta­dræsur og veiðar­færi. Ruslinu var svo komið í viðeigandi flokkun og meðhöndlun með aðstoð og stuðningi Norður­siglingar og Íslenska Gáma­félagsins.

Rusl í höfunum er talið bera ábyrgð á dauða nærri milljón sjávar­dýra á hverju einasta ári. Á Húsavík, sem víðar, er vaxandi áhugi á hafinu og umhverfi þess. Arctic Whale, Gentle Giants, Háskóli Íslands, Hvala­safnið á Húsavík, Norður­sigling, Ocean Missions, Salka, Saltvík og Whale Wise.

Húsavík hefur fyrir löngu skipað sér á kortið í ferða­þjónustu á heimsvísu, sem hvala­skoðunar­staður, en staðinn sækja árlega vel yfir 100 þúsund gestir í þeim tilgangi að skoða hvali á Skjálfanda­flóa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár