Bjarni gaf villandi mynd af uppboðinu í Færeyjum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, spurði hvort bjóða ætti útlendingum kvótann og hvatti Íslendinga til að fagna velgengni útgerðar­fyrirtækja: „Eru það ekki góð tíðindi annars? Er það ekki frábært?“ sagði hann í Forystu­sætinu á RÚV.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, spyr hvort hugmyndir um uppboð afla­heimilda snúist um að selja útlendingum fisk­veiði­heimildir Íslendinga.

Bjarni sat fyrir svörum í Forystu­sætinu á RÚV í kvöld. Þegar rætt var um uppboðs­leið Færeyinga talaði Bjarni eins og einungis eitt fyrirtæki, í eigu útlendinga, hefði keypt veiði­heimildir á uppboðunum. Sú er ekki raunin.

Þegar spyrill minntist á uppboð veiði­heimilda í Færeyjum sagði Bjarni: „Þú ert að tala um heimildirnar sem voru seldar útlendingunum, sem fóru til eins fyrir­tækis. Eru menn í alvörunni að tala um það að við eigum núna að taka þessa fiskveiði­auðlind sem skapar störf út um allt land og bjóða hana til útlendinga?“ 

Í sumar buðu Færeyingar upp hluta af afla­heimildum sínum í tilrauna­skyni. Hér á landi vakti talsverða athygli að kíló­verðið sem fékkst fyrir afla­heimildirnar reyndist a.m.k. tíu sinnum hærra en tekjurnar sem íslenska ríkið aflar sér í formi veiði­gjalda frá íslenskum útgerðar­fyrirtækjum fyrir hvert kíló af sömu fiskitegundum. 

Fisk­veiði­heimildirnar í Færeyjum voru ekki seldar einu fyrirtæki heldur mörgum. Þá gátu aðeins færeysk fyrirtæki, félög í meirihluta­eigu Færeyinga, tekið þátt í uppboðinu.

Eins og Hermann Oskarsson, hagfræðingur og fyrr­verandi hagstofu­stjóri Færeyja, benti nýlega á í viðtali við Stundina eru í gildi lög í Færeyjum um að erlendir aðilar megi í mesta lagi eiga 33 prósenta hlut í sjávar­útvegs­fyrirtækjum. Aðeins fyrirtæki skráð í Færeyjum gátu tekið þátt í uppboðinu. „Vissulega eiga erlendir aðilar hlut í sumum þeirra, en aldrei meira en þriðjung. Þess vegna er ekki rétt að erlendir aðilar séu að sanka að sér fisk­veiði­kvótanum,“ sagði Hermann þegar Stundin ræddi við hann í sumar.

Á Íslandi eru einnig í gildi lög sem setja aðkomu útlendinga að fisk­veiðum og vinnslu sjávar­afurða mjög þröngar skorður. Annar af spyrlum RÚV, Jóhann Hlíðar Harðarsson, benti Bjarna á þetta í kvöld. „Við erum með girðingu fyrir því, útlendingar eiga ekki hér í sjávar­útvegi svo það á ekki við,“ sagði hann og vísaði þar væntanlega til 4. gr. laga um fjár­festingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri sem takmarkar verulega möguleika útlendinga á aðkomu að íslenskum sjávar­útvegi. Þannig er óljóst hvernig fisk­veiði­kvótinn á Íslandi ætti að lenda í höndum erlendra fyrir­tækja. 

Bjarni sagði að ef uppboðs­leiðin yrði illa útfærð gæti hún valdið verulegri röskun byggðanna. 

Þegar hann var spurður um lækkun veiði­gjalda í viðtalinu sagði hann að ríkis­stjórnin hefði hækkað veiði­gjaldið á uppsjávarveiðar en lækkað á bolfisk og fullyrti að veiði­gjaldið sem sett hefði verið á bolfiskinn hefði verið óframkvæmanlegt. Þá hvatti hann til þess að Íslendingar fögnuðu velgengni sjávar­útvegs­fyrirtækja.

„Íslendingar, við verðum að fara að gleðjast yfir því að þessari grundvallar­atvinnu­grein okkar gangi vel. Eru það ekki góð tíðindi annars? Er það ekki frábært? Þegar ég var í æsku þá voru þetta bæjar­útgerðir sem voru í ströggli, það gekk illa“ sagði Bjarni og benti á að nú væri staða útgerð­anna allt önnur, ekki síst vegna þeirra kerfis­breytinga sem lagt hefðu grunninn að stórkostlegri verðmæta­sköpun í sjávar­útvegi. 

Myndin hér að neðan sýnir hvernig veiði­gjöld lækkuðu eftir að ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs og Bjarna Benedikts­sonar tók við vorið 2013. Um leið hélt afkoma sjávar­útvegs­fyrirtækja áfram að batna og arðgreiðslur til eigenda þeirra jukust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár