12 handteknir vegna hryðjuverka í London

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands.
Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Búið er að handtaka tólf einstaklinga í Barking í austur­hluta London í tengslum við hryðju­verkin í borginni í gærkvöldi.

Sjö eru nú látnir eftir hryðju­verkin, og tæplega 50 eru særðir.

Theresa May, forsætis­ráðherra Bretlands, hélt ræðu þar sem hún sagði að allt of mikið umburðar­lyndi væri gagnvart öfgum í Bretlandi, og lofaði að hún myndi leggja meira í baráttuna gegn íslömskum hryðjuverka­samtökum. Nú væri nóg komið. Hún gagnrýndi internet­fyrirtæki og sagði þau þurfa að koma í veg fyrir að öfga­samtök næðu að þrífast, en einnig að það þyrfti að takast á við örugg svæði fyrir hryðju­verkamenn í raun­heimum, og það myndi krefjast erfiðra samtala.

Verkamanna­flokkurinn hefur sakað May um að hafa svikið samkomulag flokkanna á þingi um að gera hlé á kosninga­baráttu sinni vegna hryðju­verkanna.

Hvítum sendi­ferða­bíl var ekið á gang­andi veg­far­endur á Lund­úna­brúnni um klukkan tíu í gær­kvöldi, og svo hlupu þrír menn út úr bílnum og stungu fólk með hníf­um. Að sögn lög­reglu voru menn­irnir þrír klæddir gervi­sprengju­vest­um. Menn­irnir voru allir skotnir til bana af lög­reglu í gær­kvöldi, átta mín­útum eftir að henni hafði fyrst verið gert við­vart um árás­ina.

Lög­regla óskar nú eftir því að fólk sem gæti átt myndir eða mynd­skeið af mönn­unum þremur afhendi efn­ið. Þá hefur verið greint frá því að lög­reglu­eft­ir­lit verði aukið næstu daga, en á fimmtu­dag fara fram þing­kosn­ingar í Bret­land­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár