Flóttamannakvóti ESB er „dropi í hafið“

Áætlun framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins (ESB) um að ríki innan sambandsins taki við alls um 160 þúsund flótta­mönnum sem nú eru í Grikk­landi, Ítalíu og Ungverja­landi, er aðeins „dropi í hafið“ í saman­burði við stærð flóttamanna­krísunnar. Þetta segir Sigmar Gabriel, vara­kanslari Þýska­lands í dag og frétta­stofa BBC fjallar um.

Gabriel segir að 450 þúsund manns hafi þegar óskað eftir hæli í Þýska­landi á þessu ári, þar af um 37 þúsund manns á fyrstu átta dögunum í september og 105 þúsund í ágúst­mánuði. Í ræðu sinni á þýska þinginu í dag sagði Gabriel að áætlun framkvæmda­stjórnar megi kurteisis­lega kalla fyrsta skrefið. „Eða þú getur kallað það dropa í hafið,“ sagði hann.

Jean-Claude Junker, forseti framkvæmda­stjórnar ESB, kynnti í árlegri stefnu­ræðu sinni í gær áætlun um hvernig dreifa skyldi flótta­mönnum í löndunum þremur um álfuna. Þýskaland, Frakkland og Spánn munu taka við flestum flótta­mönnum, sem að stórum hluta eru Sýrlendingar. Junker hvatti stjórn­völd til að gangast við settum kvóta á hvert ríki. Hann sagði Evrópu vera í huga flótta­manna staður vonar og að það sé eitthvað sem Evrópu­búar eigi að vera stoltir af en ekki ótta­slegnir yfir. Þrátt fyrir mörg deilumál þá sé Evrópa stöðugasti og ríkasti staður heims. Evrópa verði að hjálpa þeim sem flýji í dag stríð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár