Junker: Evrópa bregst við flóttamannavandanum - 160 þúsund manns flytjast innan álfunnar

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins (ESB), kynnti í morgun viðbragðs­áætlun við straumi flótta­manna til Evrópu. Áætlunin gerir ráð fyrir að 120 þúsund hælis­leitendur flytjist frá Grikk­landi, Ítalíu og Ungverja­landi til annarra ríkja ESB. Af þessum fjölda hælis­leitenda tekur Þýskaland við um 31 þúsund, Frakkland við um 24 þúsund manns og Spánn við um 15 þúsund manns.

Áður höfðu sambands­ríkin samþykkt kvóta sem gerði ráð fyrir að flytja um 40 þúsund hælis­leitendur frá Grikk­landi og Ítalíu til annarra Evrópu­ríkja. Ný áætlun framkvæmda­stjórnar ESB tekur þannig alls til 160 þúsund hælis­leitenda í löndunum tveimur auk Ungverja­lands. Junker hvatti þjóðir sambandsins til að gangast við settum kvótum. Hér að neðan má sjá hvernig kvóti dreifist milli landanna, samkvæmt áætlun framkvæmda­stjórnarinnar.


Those migrant quotas by country. (Ireland, which has opt-out, says it will accept at least 600 relocated migrants.) pic.twitter.com/0DAwjBgHCE


— Tom Nuttall (@tom_nuttall) September 9, 2015

Í árlegri stefnu­ræðu sinni fyrir Evrópu­þinginu í morgun viðurkenndi Junker að fyrri áætlun ESB, um að lönd taki við alls 40 þúsund hælis­leitendum, sé úrelt og dugi skammt. Hann sagði Evrópu vera í huga flótta­manna staður vonar og að það sé eitthvað sem Evrópu­búar eigi að vera stoltir af en ekki ótta­slegnir yfir. Þrátt fyrir mörg deilumál þá sé Evrópa stöðugasti og ríkasti staður heims. Evrópa verði að hjálpa þeim sem flýji í dag stríð. Junker benti á að í dag telji flótta­fólk aðeins 0,11 prósent íbúa Evrópu.

„Merkel“ truflaði Junker


Heldur óvenju­legur atburður átti sér stað á Evr­ópu­þing­inu í morgun þegar ítalski þing­mað­ur­inn Gianluca Buonanno reis úr sæti sínu, með and­lits­grímu af Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­land, og tók í hend­ina á Junker. Í umfjöllun Mashable um atvikið þá liggur ekki fyrir hvað Evr­ópu­þing­mann­inum gekk nákvæm­lega til en það vakti nokkra kátínu í þing­sal. Myndband af atvik­inu má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár