Jónína Ben ósátt við umræðu um kukl: „Læknar eru að ráðast gegn heilu starfsstéttunum“

Selur detox meðferðir og skilgreinir heilsu sem tilfinningu og upplifun

Jónína Ben gagnrýnir lækna harðlega í myndbandi sem hún birti á Facebook-síðu sinni í gær. Hún segir að læknar séu að ráðast gegn starfs­stéttum, en þar á hún við svokallaða heilara. Jónína hefur í seinni tíð verið einnar þekktust fyrir detox-meðferð sem hún stendur fyrir í Póllandi.

Meðal þeirra sem hafa sagt ristil­skolunar­meðferðir bæði óhjálplegar og skaðlegar eru Svanur Sigurbjörnsson læknir. Jónína hefur hins vegar haldið fram hollustu ristilskolana gegn ýmsum veikindum.

Læknar þekkja ekki

„Ég ákvað að tala nokkur orð í stað þess að skrifa þar sem mér er algjör­lega misboðið,“ segir Jónína. „Umræðan um óhefðbundnar lækningar eru komnar út um víðan völl. Af hverju segi ég þetta? Einfald­lega vegna að læknar fordæma hluti sem þeir þekkja ekki. Ef að læknar eru að ráðast gegn heilu starfs­stéttunum, eins og undan­farna daga, þá verð ég að segja nokkur orð fyrir hönd okkar sem höfum líka eytt fjármagni og tíma í það að mennta okkur úr virtum háskólum jafnvel. Þegar við tölum um óhefðbundnar lækningar þá þarf stundum að skilgreina okkur sem græðara. Þegar ég hugsa orðið græðari þá sé ég fyrir mér miðil eða Siggu Kling, fólk sem kemur inn í líf okkar og lofar okkur á óvísindalegan hátt einhverju betra,“ segir Jónína í mynd­bandinu sem sjá má hér fyrir neðan.  

Spyr hvort silíkon í brjóst sé hefðbundin lækning

Jónína heldur áfram og spyr hvort lýta­lækningar flokkist sem hefð­bundin lækning. „En hvað eru óhefðbundnar lækningar? Eru þær ekki oft á tíðum þær hefð­bundnu? Þeim alda, alda gömlu frá tímum Hippókrates. Þurfum við alltaf að einblína nútíma­lækningar  sem einu lausnina? Mér finnst það ekki. Eru til dæmis lýta­lækningar alltaf hefð­bundnar, að sprauta silíkoni í varir og setja silíkon í brjóst, er það mjög hefð­bundin læknis­fræði? Ég bara spyr? Er hreyfing til dæmis óhefðbundin lækning? Ég veit að svo er ekki,“ segir Jónína.

„Er hreyfing til dæmis óhefðbundin lækning?“

Detox gefur góða tilfinningu

Jónína segist hafa orðið fyrir miklum fordómum vegna detox-meðferðarinnar sem hún hefur staðið fyrir um árabil. „Ég er lærður íþrótta­fræðingur með kennara­réttindi og býð fólki ekki upp á kukl, þó vissulega hafi ég þurft að finna fyrir fordómum og mjög neikvæðri umræðu oft á tíðum um detoxið. Sem betur fer þá er það á undan­haldi vegna þess að fleiri og fleiri vita að meðferðin ein og sér gefur ofboðs­lega góða tilfinningu og heilsa er tilfinning, hún er upplifun,“ segir Jónína. 

Árið 2010 birti embætti Land­læknis greinar­gerð um hina svokölluðu detox-meðferð. „Megin­gagnrýni á hina svokölluðu detox-meðferð varðar ristil­hreinsanir. Enginn fótur er fyrir gagnsemi þeirrar meðferðar. Líkaminn sér að jafnaði sjálfur um að hreinsa út eiturefni,“ segir meðal annars í þeirri greinar­gerð.

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár