Pornhub-skiltið fær ekki að standa á Times Square

Risavaxið auglýsinga­skilti sem klám­risinn Pornhub setti upp á Times Square í New York í byrjun viku fékk ekki að standa upprétt lengi. Það var tekið niður á miðvikudags­kvöldið. Samkvæmt frétt Guardian um málið er talið að það sé vegna þess að DoubleTree Hilton hótelið, sem auglýsinga­skiltið, hékk framan á, hefði sett sig á móti því.

Skiltið sýndi mynd af tveimur höndum að mynda hjarta utan um vörumerki Pornhub með yfir­fyrir­sögninni „All you need is hand“, sem útleggst á íslensku sem „allt sem þú þarft er hönd“. Pornhub, sem er með höfuð­stöðvar í Kanada, er ein stærsta klámveita internetsins.

Auglýsinga­skiltið er afrakstur samkeppni sem Pornhub stóð fyrir í febrúar á þessu ári og miðaði að því að búa til auglýsingar fyrir fyrir­tækið sem væri ekki klám­fengnar en næðu samt að fanga kjarna­starfsemi þess. Sigurvegari keppninnar, tyrkneski auglýsinga­maðurinn Nuri Galver var valinn úr hópi yfir þrjú þúsund þátt­takenda. Tilgangur innreiðar Pornhub inn á hinn almenna auglýsinga­markað, en fyrir­tækið hefur einvörðungu einbeitt sér að klám­fengnum inter- og snjallsíma­auglýsingum fram að þessu, var að gera vöru­merkið sitt þekkt utan þess hóps sem þegar sækir í þjónustu Pornhub.

Til að fylgja skiltinu stóra, sem 16,5x14,6 metrar að stærð, var ráðist í aðra hugmynd sem kom frá Galver. Hún snérist um að láta fólk af mismun­andi þjóðernum, með mismun­andi hendur, syngja bítla­lagið „All You Need Is Love“ með nýju viðlagi sem útleggst „All You Need Is Hand“. Hægt er að horfa á myndband af gjörn­ingnum hér að neðan.

http://www.youtube.com/watch?v=XeHwQ-Jln60

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár