Hughrif í vinnslu

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Ég kem alltaf aftur – leik­sýningu í boði alþjóð­lega leik­hópsins Reykjavík Ensemble undir stjórn Pálínu Jóns­dóttur.

Ég kem alltaf aftur
Ég kem alltaf aftur Mynd: Owen Fiene

Listahátíð Reykjavíkur 2020: Reykjavík Ensemble: Ég kem alltaf aftur

Höfundur: Pálína Jóns­dóttir og leik­hópurinn.

Leik­stjóri: Pálína Jóns­dóttir.

Leikmynd: Robert Zadorozny og Wiola Ujazdowska.

Búningar: Mao Alheims­dóttir.

Hljóðmynd og tónlist: Adam Switala.

Leikarar: Adam Switala, Ewa Marcinek, Jördis Richter, Magdalena Tworek, Mao Alheims­dóttir, Karolina Boguslawska, Robert Zadorozny, Wiola Ujazdowska, Piotr Pawlus.

Við innganginn eru áhorf­endur spurðir um vegabréf, kennitölu eða eitthvað annað það sem þarf að gera grein fyrir áður en lagt er upp í ferðalag. Svo kemur í ljós, að það er aðeins leikur – það þarf enginn að róta í vasanum eftir vegabréfi eða þylja kenni­töluna. En það er þegar búið að minna á tvennt: í vændum er ferðalag. Og leikur. En umfram allt: leik­sýning, sem líkist engu öðru sem gerist og gengur á íslensku leiksviði. Leik­sýning í boði alþjóð­lega leik­hópsins Reykjavík Ensemble undir stjórn Pálínu Jóns­dóttur.

Fyrir réttum þrjátíu árum kom pólski fjöl­lista­maðurinn Tadeusz Kantor til Íslands með leikhóp sinn, Cricot 2, í boði Lista­hátíðar og sýndi hér verk sitt, „Ég kem aldrei aftur“. Meðal áhorfenda að þeirri sýningu var Pálína Jóns­dóttir og sýningin breytti sýn hennar á lífið og listina. Pálína hélt nokkru síðar erlendis og bjó þar lungann af æfinni en er nú nýkomin heim aftur og hefur starfað hér sem leik­stjóri og m.a. sett upp Ég heiti Guðrún 2018 hjá Þjóð­leikhúsinu og á liðnu ári stofnaði hún Reykjavík Ensemble, alþjóð­legan hóp lista­manna sem hefur sett upp þrjár sýningar – Opening Ceremony, Polishing Iceland og nú síðast „Ég kem alltaf heim“, en síðastnefnda sýningin er einskonar andsvar eða viðbragð Pálínu við sýningu Tadeusz Kantors sem hún sá fyrir þrjátíu árum.

Tadeusz Kantor fæddist 1915 og mótaðist í bernsku af fyrri heim­styrjöldinni; faðir hans var hermaður og yfirgaf fjöl­skylduna að stríðinu loknu. Hann nam listmálun og leik­myndagerð við lista­háskólann í Krakow og sá í fyrstu fyrir sér sem leikmynda­teiknari við Þýska leikhúsið í Krakow. Auk þess stofnaði hann ásamt öðrum ungum lista­mönnum leik­hópinn Óháða leikhúsið, sem sýndi í heima­húsum, í felum fyrir eftirliti yfirvalda. Kantor varð smám saman þekktur fyrir frumlegar og listrænar leik­myndir auk þess sem hann hélt sýningar víða í Evrópu. Í leik­starfseminni vann hann að því að sameina myndlist og leiklist í því sem hann nefndi al-list, þar sem ekki var hægt að greina á milli hinna ólíku list­greina, þær runnu saman og urðu að einni heild. Hann skrifaði einnig fræðilegar greinar um listsýn sína. List Kantors sótti andagift í upphafi í smiðju súrrealismans og eftir því sem á leið nálgaðist list hans gjörninga­list; algengt þema í sýningum hans var að maður eða hlutur var hulinn umbúðum – poka, kassa eða vafinn í teppi eða tau af öðru tagi. Hann átti það líka til að vísa í klassíska myndlist málara á borð við Velázquez eða Goya.

Kantor­fræðingurinn Jan Klossowicz mun hafa sagt að leikhúsi Kantors megi helst lýsa sem sjálf­virku (e. autunom) í þeim skilningi að það er algerlega sjálfu sér nægt, í sýningum sínum fæst Kantor hvorki við að túlka raun­veruleikann utan leik­sýningarinnar né heldur er leiklist hans endurgerð raun­veruleikans, verk hans eru eingöngu háð eigin raunheimi sem er óháður öllu öðru.

Það mætti hafa mörg orð um list Tadeuszar Kantors, svo fjöl­breyttur var ferill hans. List hans spannar yfir vítt svið mannlegrar verundar. Aðeins skal minnt á viðhorf hans til hlutanna: þeir hlutir, sem notaðir voru í sýningunni áttu að vera einfaldir, slitnir, gjarnan bilaðir.

Það er sérstök tilfinning að ganga inn í salinn í Iðnó. Iðnó er með elstu minjum um leiklist á Íslandi og það fer vel á því að fyrsta leik­sýning eftir samkomu­bann fari fram hér, þar sem frumkvöðlar íslenskrar leik­listar stigu fyrst fæti á þær fjalir sem sýna heiminn – svo vitnað sé eftir minni í orð skáldjöfursins enska. Salurinn er auður, nema hvað hrúga af stólum er fyrir miðju – þangað eiga nú áhorf­endur að sækja sér stól og setja hann niður hjá einhverjum af þeim svörtu deplum sem búið er að setja á gólfið. Það eru tveir metrar milli depla og hér er farið eftir tveggjametrareglunni. Stóla­hrúgan er reyndar bein tilvitnun í verk Tadeusz Kantor, en hann gerði m.a. skúlptúra úr stólum.

Fyrir sýningu býður listrænn stjórn­andi Reykjavík Ensemble og leik­stjóri sýningarinnar, Pálína Jóns­dóttur, áhorf­endur velkomna og gerir nokkra grein fyrir því, sem í vændum er. Hún rekur persónu­lega upplifun sína af sýningu Kantors þegar hann kom með leikhóp sinn á Lista­hátíð 1990 og hvernig sú sýning, „Ég kem aldrei aftur“, breytti viðhorfi hennar til lífs og listar. Á henni má skilja að Kantor tali frekar til tilfinninga en til rökhyggjunnar, list hans er eins fjarri því að vera línuleg og unnt er. Hún bendir jafnframt á að sýningin, „Ég kem alltaf aftur“ er samin sem eins konar viðbragð við sýningu Kantors, eða öllu heldur óður til hennar.

„Ég kem alltaf aftur“ fylgir engri línulegri þróun eins og búast má við í hefð­bundnu leikhúsi. Sýningin líkist meira gjörningi, hún samanstendur af marg­víslegum brotum, ósamstæðum á köflum, sem leik­ararnir hafa lagt í púkkið og miðlað af sinni reynslu. Leik­ararnir eru pólskir nema einn sem er þýskur og efnis­brotin bera keim af því, þau eru meginlands­evrópsk í grunninn og segja sögu sem má jafnvel fullyrða að búi í genum evrópubúa, hafi komið sér þar fyrir á löngum tíma, þróast og þroskast og halda því áfram meðan mannkyn blívur. Leik­hópurinn hefur tínt saman brot úr eigin sögu, sögu foreldra sinna og langfeðra sinna og langmæðra, sótt í upplifanir, minningar og dulvitund. Gott ef ekki má finna í sýningunni þjóð­sagnaminni í bland við brot úr nútíma­sögu og allt þar á milli. En sá áhorfandi sem leitar að rökréttri frásögn í klassískum skilningi þess orðs hefur farið í geitarhús að leita ullar. Hér gildir að opna skilningarvit tilfinninga og skynjunar, meðtaka án þess að falla í þá gildru að beita skynsemi til að túlka. „Ég kem alltaf aftur“ er líkt og málverk, það hreyfist, það lifir, það vekur kenndir – en það er ekki fyrr en ljósin slökkna á leik­sviðinu og kvikna í salnum að áhorf­andinn getur farið að melta með sér og vinna úr því sem á var horft. Og það getur orðið langt og áhugavert ferli. Ferðalag eins og þau gerast best!

Það er vel hægt að hugsa sér að verkin bæði, annars vegar sýning Kantors og hins vegar sýning Pálínu og leik­hópsins spegli ekki aðeins hvort annað, heldur einnig mismun­andi aðstæður í henni veröld – sýning Kantors er frumsýnd 1989, um það bil samtímis sem Berlínar­múrinn fellur og Evrópa er í óðaönn að gera upp við seinni heims­styrjöldina, sýning Pálínu er frumsýnd á því herrans covid-ári 2020; titillinn á verki Kantors vísar reyndar til þess að í heimaborg hans, Krakow, var verkum hans tekið verr en annars staðar en í ljósi þess að verk hans voru marg­brotin og marglaga er ekkert sem mælir gegn þeirri ályktun að verkið sæki hughrif í þá upplausn sem þá ríkti í evrópskum stjórn­málum og menningu. Ef það má verða til einhverrar hjálpar.

Hér var minnst á speglun og í verki Pálínu Jóns­dóttur og leik­hópsins, Reykjavík Ensemble, má sannarlega finna hvernig allt speglast, í sjálfu sér og hvert í öðru – það er einskonar stef í sýningunni, draumurinn um Ísland og ætlunin að flytja þangað: „Mig langar að giftast Íslendingi sem fer með mig í Kringluna ... til að þrífa og þræla“ og þar er sannarlega kominn spegil­mynd mismun­andi þjóðernis, aðstæðna og möguleika. Þegar slíkri spegil­mynd hefur verið varpað upp gerist það að hún bjagast, jafnvel afskræmist, og varpar fram nýrri hugmynd um annan veruleika – sem þó er vandlega njörvaður í veruleika sýningarinnar sjálfrar, leitar ekki útfyrir hana og er ekki nema óbeint – í gegnum reynslu okkar áhorfenda – vísun í þann veruleika sem einkennir samfélag okkar. Og það er fleira sem er speglað á þennan hátt: liðin tíð gagnvart nútíðinni, nútíðin gagnvart fram­tíðinni, liðin tíð gagnvart fram­tíðinni. Sýningin verður þannig marglaga, gjörn­ingur í núinu sem sækir hughrif í allar áttir og alla tíma og beinlínis frussar út úr sér hughrifum af alls konar tagi, sem við verðum að fanga og moða úr – það er ekki eitt einasta dautt augnablik þann tíma sem sýningin varir og allt sem á sér stað, hver hreyfing, hvert hljóð ber með sér merkingu sem ekki má missa af.

Hver einasti hlutur í leik­myndinni gæti verið sóttur í Góða hirðinn – og leik­myndin er ekki einasta snjöll og hugvit­samlega gerð, heldur lifir hún með í sýningunni og verður eins og leik­ararnir, merkingar­berandi. Draslara­legir og smekklega hannaðir búningarnir styrkja þau áhrif. Hið sama má segja um hljóð­myndina og er þá ekki aðeins átt við þau hljóð sem berast um hátalara út í sal, heldur einnig þau hljóð, sem koma frá leikurunum – þar verður ekki greint á milli, heldur myndar allt sömu heildina, hvort sem horft er á eða hlustað. Lýsingin, einföld og mætti ekki öðruvísi vera.

Í upphafi var á það minnst að í vændum væri leikur; það er hverju orði sannara, en hér kemur meira til: leikurinn verður á köflum ærsla­fenginn þannig að helst má ætla að sýningin hafi farið algerlega úr böndunum og leik­ararnir sleppt af sér öllum beislum listræns aga! Þessi ærsl standa á móti hátíðlegu og stílíseruðu ritúali þar sem hver hreyfing er hnitmiðuð, æfð og öguð þannig að nákvæmnin magnar augna­blikið. Leikurinn og ritúalið fléttast hvað inn í annað þannig að á köflum verður ekki greint á milli, hvað rennur saman við annað og skapar sérstaka og súrrealíska upplifun. Öllum ólíkum hughrifum er svo haldið saman með stefinu sem gengur í sífellu aftur; „Við erum að fara til Íslands“ – þar sem Ísland stendur fyrir hina óræðu framtíð.

Fortíðin er kvödd; hún er kaosið, hrörnunin, ellin. Sérstak­lega hugnæmt er atriðið þegar amma deyr (?) og er kvödd, fallega sviðsett með nálgun við áhorf­endur þannig að svið og salur Iðnós rennur saman – þar er á ferð bæði fallegur samruni leikara og áhorfenda og glæsileg sviðs­lausn, einföld og tilgerðar­laus.

Það mætti hafa mörg fleiri orð um „Ég kem alltaf aftur“. En einhvers staðar þarf að reka botninn í og það má gera með því að slá föstu að sýning Pálínu Jóns­dóttur og Reykjavík Ensemble er hvort tveggja í senn – spennandi samræða við Tadeusz Kantor, einn fremsta leiklistar­mann Evrópu á tuttugustu öldinni og um leið sjálfstætt leikverk sem kallast á við íslenskan nútíma og veruleika; hugvit­samlega gert og spennandi tilraun um manninn. Það má alltaf koma aftur og aftur að sjá slíka sýningu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár