Þetta ætlar Facebook að gera næsta áratuginn

Facebook kynnti niður­stöðu þriðja ársfjórðungs í rekstri fyrir­tækisins í gær. Alls voru tekjur Facebook á tíma­bilinu 1. júlí til 30. september 2014 3,2 milljarðar dala, eað um 387 milljarðar króna. Þar af voru 358 milljarðar króna auglýsinga­tekjur og jukust þær um 64 prósent frá sama ársfjórðungi 2013.

Á kynningunni sögðu Dave Wehner, fjármála­stjóri Facebook, og Mark Zuckerberg, forstjóri fyrir­tækisins, einnig frá því að kostnaður Facebook myndi líklega aukast um 70 prósent á næsta ári, 2015. Ástæðan væri sú að fyrir­tækið ætlaði sér að ráðast í umsvifa­miklar ráðningar á hæfileika­fólk og uppkaup á tækni­fyrirtækjum sem hentuðu starfsemi Facebook.

Zuckerberg opinberaði líka þriggja ára, fimm ára og tíu ára áætlanir Facebook. Í mjög grófum dráttum vill hann að ýmsar Facebook vörur,WhatsApp, Messenger, Search, Video, NewsFeed, Oculus og Instagram), muni hver um sig tengja um einn milljarð notenda. Þegar því takmarki verði náð ætlar Zuckerberg sér, af mikilli áræðni, að búa til peninga úr öllum þessum tengslum.

Zuckeberg vill líka bæta auglýsinga­upplifun, sérstak­lega á snjall­símum. Til að gera þetta mun Facebook miða út og mæla markhópa með nákvæmari hætti í gegnum þær upplýsingar sem fyrir­tækið býr yfir. Í dag eyða auglýsendur í Banda­ríkjunum einungis ellefu prósent af auglýsingafé sínu í að birta á snjall­símum. Í því sér Facebook mikil tækifæri.

Að lokum ætlar Facebook sér að leiða næstu stóru nýjung í tölvu­framþróun fyrir massann, og er nokkuð ljóst að þar á að veðja á sýndar­veruleika Oculus, en Facebook keypti Oculus á um 240 milljarða króna í mars síðastliðnum. Fyrir­tækið ætlar líka að færa fleira fólki aðgang að internetinu í gegnum www.internet.org, sem á að lækka kostnað vegna slíks aðgangs mikið.

Hægt er að lesa útskrift af áætlun Zuckerberg á vef Business Insider.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár