Björgvin Páll að skoða framboð fyrir Framsókn í borginni

Björgvin Páll Gústavsson hand­knattleiks­maður íhugar að gefa kost sér sem borgar­stjóra­efni Fram­sóknar. Hann vilji taka þar þátt í byltingu í málefnum barna.

Vill taka þátt í byltingu í málefnum barna
Vill taka þátt í bylt­ingu í mál­efnum barna Björgvin Páll íhugar nú alvar­lega að gefa kost á sér sem borg­ar­stjóra­efni Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Wikipedia

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðs­markvörður í hand­knattleik, er að velta fyrir sér að gefa kost á sér sem oddviti Framsóknar­flokksins í komandi borgar­stjórnar­kosningum. Frá þessu greinir hann Twitter.

Björgvin segir í færslu sinni að hann hafi, kvöldið sem hann lenti á Íslandi eftir Evrópu­mótið í hand­knattleik á dögunum, fengið símtal frá þjóð­þekktum einstaklingi sem hann bæri mikla virðingu fyrir. Tilgangur símtalsins hafi verið að skora á Björgvin að gefa kost á sér sem borgar­stjóra­efni Framsóknar­flokksins.

Björgvin segir að umræddur maður þekki vel ástríðu hans fyrir málefnum barna og hafi viljað sjá hann taka slaginn enda þyrfti „að taka borgina“ og snúa við málum þar. „Það skrýtna er að þessi hugmynd hljómaði einhverra hluta vegna ekki svo galin og ég er virkilega hrærður yfir þeirri trú sem þessi góði vinur hefur á mér.“

„Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitt­hvað sem hljómar alla vega vel“

Björgvin rekur að hann hafi sýn á hvernig auka megi vellíðan barna, bæta skóla­kerfið og hlúa að foreldrum. „Því meira sem ég hugsa þetta því meiri trú hef ég á því að þetta gæti smollið. Minn tilgangur í lífinu er að vera góð fyrirmynd og auka vellíðan en síðustu vikur og mánuði hef ég velt því mikið fyrir mér hvert sé næsta skref hjá mér í að hafa sem mest áhrif.“

Björgvin lýsir því að hann sé „ekki bara haandboltakall“, hann sé líka öll reynsla sín í lífinu, sex ára strákurinn sem beit kennarann sinn, strákurinn sem átta ára var tekinn með hníf í skólanum og lagður inn á BUGL. „Strákurinn sem skóla­kerfið brást, strákurinn sem fékk aldrei greininguna mína og lyfin mín.“

Björgvin segir að hann hafi unnið síðustu ár með börnum innan skóla­kerfisins og utan þess og vilji hafa áhrif. „En er ég efni í næsta borgar­stjóra í Reykjavík? Ég hreinlega veit það ekki... Ef ég tæki slaginn þá væri það einna helst til þess að taka þátt í byltingu er kemur að málefnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitthvað sem hljómar alla vega vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Þú þart ekkert að geta, bara vera þekktur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár