Ráðherra óskaði eftir flýtimeðferð á boðuðu dómsmáli

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur óskað eftir flýti­með­ferð á dóms­máli sínu gegn skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu til að fá hnekkt úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra óskaði í gær eftir flýti­með­ferð á boð­uðu dóms­máli sínu til að fá hnekkt úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála, sem komst að því að ráð­herr­ann hefði brotið gegn skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þegar hún skip­aði ráðu­neyt­is­stjóra í fyrra. Frá þessu er greint í frétt RÚV.

Lilja höfð­aði mál gegn Haf­dísi Helgu Ólafs­dótt­ur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurð­aði að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög með því að snið­ganga í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Með því að stefna Haf­dísi Helgu ætlar ráð­herra að reyna að ógilda úrskurð kæru­nefnd­ar­inn­ar.

Greint var frá því í byrjun júní að Lilja hefði brotið jafn­­rétt­is­lög við skipun Páls Magn­ús­­sonar í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra í fyrra, sam­­kvæmt úrskurði kæru­­nefndar jafn­­rétt­is­­mála. Hún hafi van­­metið Haf­­dísi Helgu í sam­an­burði við Pál. Hæf­is­nefnd hafði ekki talið Haf­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­urra sem hæf­astir voru taldir í starf­ið.

Páll, sem var skip­aður í emb­ættið síðla árs í fyrra, hefur um ára­bil gegn trún­­­að­­­ar­­­störfum fyrir Fram­­­sókn­­­ar­­­flokk­inn en hann var vara­­þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins í tvö kjör­­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­­ar­­maður Val­­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins.

Í frétt RÚV kemur fram að Lilja hafi farið fram á það við kæru­nefnd­ina að rétt­ar­á­hrifum af úrskurð­inum yrði frestað á meðan, sem nefndin hafi sam­þykkt með því skil­yrði að málið yrði borið undir dóm­stóla innan þrjá­tíu daga og óskað yrði eftir flýti­með­ferð. Þrjátíu dagar verða liðnir á fimmtu­dag.

Rík­is­lög­maður fer með málið fyrir Lilju, að því er fram kemur í frétt­inni, en vegna tengsla emb­ættis rík­is­lög­manns við for­sæt­is­ráðu­neytið var því útvi­stað til Víðis Smára Petersen lög­manns á Lex. Hann stað­festir við frétta­stofu RÚV að form­lega hafi verið óskað eftir því við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í gær að málið fengi flýti­með­ferð. Dóm­stjóri taki sér jafnan fáeina daga til að meta slíkar beiðnir og verði fall­ist á hana hafi Lilja og lög­maður hennar nokkra daga til við­bótar til að stefna Hafdísi fyrir dóm. Fallist dóm­stjóri ekki á flýti­með­ferð verði málið engu að síður höfðað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár