Niðurskurður hafi kallað fram „hughrif“ um ótryggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu

Bjarni Benediktsson flutti fyrstu stefnu­ræðu sína sem forsætis­ráðherra í kvöld.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra segir að niður­skurður í heilbrigðis­kerfinu eftir hrun hafi kallað fram þau „hughrif“ hjá stórum hluta þjóðarinnar að samfélags­sáttmáli um tryggt aðgengi að heilbrigðis­þjónustu hafi brostið.

Þetta kom fram í stefnu­ræðu Bjarna á Alþingi í kvöld. Sagði hann miklar áskoranir framundan í heilbrigðis­þjónustu en ekki væri hægt að leysa þær allar með nýju fjármagni, enda væri fjár­magnið af „of skornum skammti“.

„Sterkar vísbendingar eru um að niður­skurður eftir hrun hafi kallað fram hughrif hjá stórum hluta þjóðarinnar um að samfélags­sáttmáli um tryggt aðgengi að heilbrigðis­þjónustu hafi brostið. Aukin útgjöld til heilbrigðis­mála á síðustu árum hafa ekki náð að lækna þessi hughrif,“ sagði Bjarni í ræðu sinni og bætti við:

„Ríkis­stjórnin hefur með stefnu­yfirlýsingu sinni gert heilbrigðismál að forgangs­verkefni. Hluti af því verkefni er að móta skýrari stefnu um hvernig við stýrum síaukinni eftir­spurn og hvert skútan skuli sigla. Þjóðin eldist, tækninni fleygir fram, verðmæta­sköpun þjóðar­búsins – sem standa verður undir heilbrigðis­útgjöldum – eykst hægar en getan til að vinna á sjúk­dómnum. Og áskoranir í heibrigðisþjónustu eru margar, við leysum þær ekki allar með nýju fjármagni, til þess er fjár­magnið af of skornum skammti.“

Í viðtali við Morgun­blaðið skömmu fyrir kosningar fullyrti Bjarni Benediktsson að 20 prósent sjúk­linga treysti sér ekki til að leita heil­brigðis­þjón­ustu vegna bágr­ar fjár­hags­stöðu og að lang­ir biðlist­ar hefðu mynd­ast eft­ir lífs­nauðsyn­leg­um aðgerðum eins og hjarta­þræðing­um. Í stefnu­ræðu sinni í kvöld vísaði hann hins vegar til ótryggs aðgengis að heilbrigðis­þjónustu sem „hughrifa“ og sagðist vilja „lækna þau hughrif“. 

 

 

Hér má lesa stefnuræðu forsætisráðherra í heild:

 

Virðu­legur forseti, góðir landsmenn.

Ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar tók við á Bessa­stöðum þann 11. janúar síðastliðinn. Hin nýfædda ríkis­stjórn fær góðar ytri aðstæður í arf. Þannig er staða efnahags­mála sterk og góðar horfur til framtíðar. Ný ríkis­stjórn tekur með sér frá alþingis­kosningum sterka kröfu um uppbyggingu grunn­þjónustu og samfélagslegra innviða.

Stjórnar­sáttmálinn fjallar um innviða­uppbyggingu og stöðug­leika. Innviða­uppbyggingin er kjarninn í sátt­málanum, sama hvort litið er til heilbrigðis­mála, mennta­mála, almanna­trygginga, fjölskyldu­mála, samgöngu­mála eða nýsköpunar. Jafnframt vill ríkis­stjórnin byggja upp áfram­haldandi jafnvægi í efnahags­málum.

Með hliðsjón af þessu eru leiðar­stef, eða gildi, ríkis­stjórnarinnar tvö; jafnvægi og framsýni. Jafnvægi skapar nauðsyn­lega festu og aga – sígandi lukka er best. Framsýni veitir kraftinn til að byggja upp, komast lengra, gera betur.

Beinum fyrst sjónum að jafnvægi. Jafnvægi er flókið hugtak, enda felur það í sér jafnvægi í ólíkum aðstæðum og ólíkum verkefnum. Við sækjumst eftir framförum en um leið viljum við að þær færi okkur nýtt jafnvægi – og aðlögun að bættri útkomu.

Þjóð­félagið er safn þeirra einstaklinga sem það byggja, einstaklinga með ólíka sýn, hæfileika og skaphöfn.

 „En þó eru sumir sem láta sér lynda það, að lifa úti í horni, óáreittir og spakir”“ segir í ljóði Tómasar Guðmunds­sonar. „Því það er svo misjafnt sem mennirnir leita að, og misjafn tilgangurinn sem fyrir þeim vakir.“

Jafnvægi í þjóð­félaginu snýst ekki eingöngu um ytri gæði. Það snýst einnig um það hvernig við nýtum þau til að rækta það sem býr innra með okkur. Vísbendingar streyma inn sem benda til að við getum gert miklu betur, bæði sem þjóð og einstaklingar, til að láta okkur líða vel. Of margir upplifa vanlíðan, kvíði og þunglyndi þjaka marga og því miður ekki síst unga fólkið okkar.Það er ekki léttvægt í huga unglings, ef hann finnur til depurðar vegna þess að viðbrögð við því sem hann setur inn á samfélags­miðil standa ekki undir væntingum. Þetta er nýr veruleiki sem við þurfum að hjálpa börnunum okkar að fóta sig í.

Ríkis­stjórnin stýrir ekki hamingju einstaklinga en aðgerðir ríkis­stjórnar hafa vissulega áhrif á siglingu þjóðar­skútunnar, hvert hún stefnir, hvort á henni sé slagsíða og hvernig búið er að áhöfninni. Svo má leiða líkur að því að umræðan á Alþingi geti einnig haft áhrif á sálarlíf þjóðarinnar.

Jafnvægið í þjóð­félags­gerðinni kemur nefnilega bæði að ofan og að neðan. Það kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að vinna í því. Það er margt sem hefur þar áhrif. Sterkar vísbendingar eru um að niður­skurður eftir hrun hafi kallað fram þau hughrif hjá stórum hluta þjóðarinnar að samfélags­sáttmáli um tryggt aðgengi að heilbrigðis­þjónustu hafi brostið. Aukin útgjöld til heilbrigðis­mála á síðustu árum hafa ekki náð að lækna þessi hughrif.

Ríkis­stjórnin hefur með stefnu­yfirlýsingu sinni gert heilbrigðismál að forgangs­verkefni. Hluti af því verkefni er að móta skýrari stefnu um hvernig við stýrum síaukinni eftir­spurn og hvert skútan skuli sigla. Þjóðin eldist og tækninni fleygir fram. Verðmæta­sköpun þjóðar­búsins, sem standa verður undir heilbrigðis­útgjöldum, eykst hægar en getan til að vinna á sjúkdómum. Áskoranir í heilbrigðis­þjónustu eru margar. Við leysum þær ekki allar með nýju fjármagni. Til þess er fjár­magnið af of skornum skammti.

Góð efnahags­lega staða Íslands og gott lífeyris­kerfi gera okkur samt sem áður betur í stakk búin en flestar aðrar þjóðir til að takast á við þennan vanda. Fram­leiðsla á hvern Íslending, leiðrétt fyrir kaupmætti, var ein sú hæsta í heimi árið 2015, um fjórðungi hærri en að meðaltali í Evrópu­sambandinu. Þetta þýðir að við getum gert kröfu um að lífsgæði hér á landi endur­spegli þessa sterku stöðu.

Jafnvægi felst einnig í að styðja þá til sjálfs­hjálpar sem aðstoðar þurfa við. Ríkis­stjórnin hyggst taka upp starfsgetumat og gera örorku­lífeyris­kerfið sveigjanlegra til að ýta undir þátttöku á vinnu­markaði. Einnig mun hún leitast við að fólk með fötlun geti stýrt þjónustunni sem það fær sjálft. Markmiðið er að auka lífsgæði og samfélags­lega virkni.

Ísland er fjöl­menningar­samfélag, ríkt af mannauði sem verður að fá að njóta sín. Ríkis­stjórnin ætlar að auðvelda innflytjendum að verða full­gildir og virkir þátt­takendur í íslensku samfélagi.

Góðir landsmenn,

Hér má enn taka dæmi af því hversu miklu jafnvægið getur skipt fyrir samfélags­gerðina.  Ein helsta áskorunin í flóknum heimi íslenskra fjöl­skyldna er jafnvægið á milli vinnu og einkalífs. Þar skipta aðgerðir í jafnréttis- og fjölskyldu­málum miklu máli. Svo vitnað sé til Bríetar Bjarnhéðins­dóttur: „Vér heilsum glaðar fram­tíðinni, þar sem karlar og konur vinna í bróðerni saman að öllum lands­málum, bæði á heimilunum og á Alþingi.“ Þessi aldar­gamla draumsýn Bríetar er nær því að verða að veruleika nú en nokkru sinni áður og kannski nær því í okkar samfélagi en nokkru öðru. Ríkis­stjórnin mun gera sitt til að stuðla að því.

Síðast en ekki síst snýst jafnvægi um efnahagsmál. Það er mikil áskorun fyrir ríkis­stjórn að taka við góðu búi í efnahags­málum. Það er ekki sjálf­gefið að því sé hægt að viðhalda og aldrei gefi á bátinn. Hér hefur ríkt góður hagvöxtur í mörg ár og hagsagan kennir að magrari ár kunni að vera handan við hornið. Við þurfum að leita leiða til að auka jafnvægi og minnka sveiflur, t.d. með betri samstillingu peninga­stefnu, fjármála­stefnu hins opinbera og vinnu­markaðar, með endur­skoðun ramma peninga­stefnu Seðla­bankans, með nýju vinnu­markaðs­líkani að norrænni fyrirmynd og með nýjum stöðugleika­sjóði sem haldi utan um arð af orku­auðlindum.

Fjárlög ársins 2017 voru samþykkt í góðri sátt á Alþingi í desember. Í þeim er kveðið á um rúmlega 50 milljarða króna útgjalda­aukningu frá árinu 2016, eða um 8% af útgjöldum ríkisins. Þessi hækkun er fyrst og fremst til velferðar­mála og er fordæma­laus. Hækkunin er tilkomin vegna skýrra krafna samfélagsins um aukin útgjöld til grunn­þjónustu og innviða. Aukin útgjöld ríkisins á tímum mikils hagvaxtar eru almennt gagnrýnd af hagfræðingum því hagkerfið þurfi ekki á innspýtingu að halda við slíkar aðstæður. Mikilvægt er þó að hafa í huga að þessi innspýting í grunn­þjónustu er svar við ákalli samfélags sem gekk í gegnum sársauka­fullan niður­skurð eftir­hrunsár­anna.

Tekist hefur vel að lækka skuldir ríkisins, sérstak­lega með stöðugleika­framlögum, en vaxta­gjöld eru þó enn alltof há. Í fjárlögum er gert ráð fyrir að við greiðum um 70 milljarða króna í vexti á árinu.   Það er 10 milljörðum minna en fyrir tveimur árum en við erum samt með hæstu vaxta­gjöld í Evrópu sem hlutfall af lands­framleiðslu. Það er því áfram brýnt verkefni að lækka skuldir og þar með vaxta­gjöld ríkisins. Og það leiðir af sjálfu sér að það er stórt velferðarmál að lækka skuldir því þannig eykst svigrúm til að gera betur á öllum sviðum. 

Jafnvægið á milli aukinna útgjalda í grunn­þjónustu og efnahags­legs stöðug­leika er stærsta verkefni þessarar ríkis­stjórnar eins og margra annarra ríkis­stjórna á undan henni. Verkefnið krefst ögunar og samstillts átaks. Ríkis­stjórnin kemur ekki ein að þessu verkefni. Samstilling hagstjórnar er á margra höndum. 

Góðir landsmenn,

Víkjum þessu næst að hinu leiðar­stefi stjórnar­sáttmálans, framsýni.

„Framtíðin er ekki eins og hún var hér áður fyrr“ segir hnyttið spakmæli sem mörgum er eignað. Spakmælið lýsir síbreytilegum heimi, framtíðin á morgun verður örugglega öðruvísi en framtíðin í gær.

Einstaklingar búa sig undir óræða framtíð með framsýni. Þeir reyna iðulega að gera það sem þeir telja að muni koma sér og sínum að gagni. Mennta sig, leggja fyrir, koma sér upp þaki yfir höfuðið og koma börnum sínum sóma­samlega til manns.

Sama á við um þjóðfélög. Þau eiga að setja sér markmið á grunni bestu fáanlegu upplýsinga og rannsókna. Vinna síðan af krafti að því að ná settum markmiðum.

Eitt þessara markmiða er um bætta lýðheilsu. Nýjar rann­sóknir sýna að við Íslendingar erum eftir­bátar annarra Norður­landaþjóða þegar kemur að mataræði og hreyfingu. Við sem ríkis­stjórn höfum sett okkur það verkefni að móta heilbrigðis­stefnu þar sem haft verður að leiðar­ljósi að veita góða þjónustu þegar eitthvað bjátar á, en gera jafnframt forvörnum og lýðheilsu­markmiðum hátt undir höfði. Þannig horfum við til framtíðar í þeim tilgangi að bæta heilsu lands­manna og draga úr álagi á heilbrigðis­kerfið vegna lífstíls­tengdra sjúkdóma.

Tökum annað dæmi úr allt annarri átt. Í upphafi tíunda áratugarins var mikil umræða um einhæfan útflutning. Við fluttum fyrst og fremst út fisk. Eggin voru öll í sömu körfunni. Talað var um að við þyrftum að stórauka útflutning til að lífskjör okkar gætu staðist samanburð við nálægar þjóðir. Við þyrftum jafnframt að auka fjöl­breytni útflutnings. Aðgerðir okkar þyrftu að beinast að þessu.

Nú aldar­fjórðungi síðar hefur verðmæti útflutnings á föstu verðlagi þrefaldast. Okkur hefur tekist að halda uppi góðum lífsgæðum á nær alla mæli­kvarða sem máli skipta.  Það sem meira er, okkur hefur tekist að skjóta fleiri og  sterkari stoðum undir útflutning. Við sýndum framsýni og það skilaði góðum árangri. 

En við verðum að halda áfram og standa okkur í samkeppni þjóðanna. Við þurfum að tvöfalda verðmæti útflutnings á næstu 15 árum. Hvernig gerum við það? Varasamt er að treysta á að okkur takist það með því einu að auka magn útfluttrar vöru, svo sem sjávar­fangs eða málma.  Nær er að leggja áherslu á aukna verðmæta­sköpun úr því sem við höfum úr að spila.   Og við verðum að byggja á hugviti til að framleiða vörur og þjónustu í alþjóðlegri samkeppni. Þar liggja sóknar­færi okkar til aukins útflutnings til framtíðar. Nýsköpun og þróun eru lykil­orðin. Ríkis­stjórnin hyggst styðja myndar­lega við rann­sóknir og þróun og hlutverk samkeppnis­sjóða verður víkkað út til rannsókna á sviði skapandi greina.

Til að ná þessum árangri og bæta samkeppnis­hæfni Íslands þurfum við að bæta menntun. Menntun er lykillinn að fram­tíðinni. Hún gerir okkur kleift að skapa það hugvit sem útflutningur okkar byggist á. Menntun gerir börnin okkar betur fær að standast alþjóð­lega samkeppni en setur jafnframt þá pressu á okkur að bjóða ungu kynslóðinni samkeppnishæf lífskjör í alþjóða­væddum heimi. Menntun gerir okkur líka betur í stakk búin að takast á við tækni­breytingar. Ný bylting í atvinnu­háttum er framundan en við vitum ekki hvaða áhrif hún mun hafa á einstakar atvinnu­greinar. Eitt dæmi er sjálfakandi bílar. Við vitum ekki hvort þeir muni leiða til fjölgunar eða fækkunar bíla. Menntun hjálpar okkur að takast á við hið óvænta og óþekkta þótt óljóst sé hvernig hún verði að lokum nýtt. Ríkis­stjórnin mun því beita sér fyrir því að öll skólastig verði efld. Það er framsýni.

Ein stærsta ógn samtímans er hlýnun jarðar af völdum gróðurhúsa­lofttegunda. Við þurfum að axla ábyrgð í samfélagi þjóðanna. Svo aftur sé vitnað í Tómas: „En mörgum finnst hún dýr þessi hóteldvöl, þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða. En við sem ferðumst eigum ei annars völ. Það er ekki um fleiri gististaði að ræða.“ Í aðgerðar­áætlun í tengslum við Parísar­samkomu­lagið hyggst ríkis­stjórnin setja græna hvata og hvetja til skóg­ræktar, land­græðslu og orku­skipta í samgöngum. Í stjórnar­sáttmálanum er kveðið á um að ekki verði efnt til nýrra ívilnandi fjár­festingar­samninga vegna mengandi stóriðju.

Ljóð Tómasar á einnig vel við um ferða­þjónustuna, hinn nýja burðarás gjaldeyris­tekna í íslenskum þjóðar­búskap og helstu ástæðu ört vaxandi gjaldeyris­forða. Velgengni þessarar atvinnu­greinar byggist á þrot­lausri vinnu og öflugu markaðs­starfi. Við þurfum hins vegar að fara að öllu með gát. Við þurfum að hugsa fram á veginn og ekki glutra niður einstæðu tækifæri til langtíma­hagsældar með skammtíma­sjónarmiðum og einskiptis­gróða. Jafnframt er nauðsynlegt að öðlast betri skilning á áhrifum ferða­þjónustunnar á aðrar atvinnu­greinar, ekki hvað síst á sprota­fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni.

Ég get ekki látið hjá líða að minnast með miklu þakklæti á þrotlaust starf lögreglu, björgunar­sveita og landhelgis­gæslu undan­farna daga við leit og rannsókn á máli Birnu Brjáns­dóttur. Með hjálp fjölmiðla höfum fylgst með þraut­þjálfuðu fólki leggja nótt við dag til að upplýsa þetta átakanlega mál sem hefur hreyft við okkur öllum. Í sorginni yfir að sjá svo sviplega á bak ungri konu í blóma lífsins hefur verið huggun í þeim samhug og samstöðu sem þjóðin hefur sýnt, í viðbrögðum almennings sem  hefur leitað Birnu, veitt upplýsingar og sýnt foreldrum hennar og ástvinum hlýju og stuðning.

Ég votta fjöl­skyldu Birnu og aðstand­endum innilega samúð mína.

Hæstvirtur forseti, góðir landsmenn.

Ríkis­stjórnin er að hefja nýtt kjör­tímabil, nýja vegferð sem stendur fram á þriðja áratug þessarar aldar. Á kjör­tímabilinu minnumst við 100 ára full­veldis Íslands og 75 ára afmælis lýðveldisins. Við getum verið stolt af forfeðrum okkar og -mæðrum, baráttu­þreki þeirra og fram­tíðarsýn. Þau tóku við þröngu búi en með vilja og framsýni tókst að bæta kjör þjóðarinnar.

Við getum einnig verið stolt af því hvernig við, kynslóðirnar sem á eftir fylgdu, höfum byggt upp velferðar­samfélag í fremstu röð. Við getum verið stolt af landinu okkar.

Við eigum að halda þessu góða starfi áfram og hlúa vel að umhverfi okkar sem er í sífelldri þróun. Ríkis­stjórnin setur sér þannig það markmið að Ísland verði eftirsóknar­vert fyrir alla þá sem vilja taka þátt í að byggja upp íslenskt samfélag til framtíðar. Samfélag þar sem mann­réttindi, jöfn tækifæri, fjöl­breytni, frelsi og ábyrgð ásamt virðingu fyrir ólíkum lífs­skoðunum mynda sterkan grunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár