Landsréttarmálið flutt í yfirdeild MDE 5. febrúar 2020

Ákveðið hefur verið hvaða dóm­arar muni sitja í yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu þegar Lands­rétt­ar­málið svo­kall­aða verður tekið þar fyrir snemma á næsta ári. Á meðal þeirra er Róbert Spanó, sem sat einnig í dómnum sem felldi áfell­is­dóm í mars.

Mál­flutn­ingur í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða fyrir yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu mun fara fram klukkan 9:15 þann 5. febr­úar á næsta ári í Strass­borg. Lögmenn máls­að­ila hafa til 4. nóv­em­ber næst­kom­andi til að skila skrif­legum grein­ar­gerðum til dóms­ins. Alls munu 17 dóm­arar sitja í yfir­deild­inni við með­ferð máls­ins. Á meðal þeirra er Róbert Spanó, vara­for­seti Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Hann var einnig á meðal þeirra þeirra dóm­ara sem felldu áfell­is­dóm í mál­inu 12. mars síð­ast­lið­inn.

Greint var frá því 9. sept­em­ber að yfir­deildin hefði ákveðið að taka Lands­rétt­ar­málið fyrir. Dóm­stóll­inn felldi upp­haf­legan dóm sinn í vor þar sem bæði Sig­ríður Á. Andersen, fyrr­ver­andi dóms­­­­mála­ráð­herra, og Alþingi á sig áfell­is­­­­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan 15 dóm­­­­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017.

Sig­ríður fyrir að hafa brotið stjórn­sýslu­lög með því að breyta list­­­­anum um til­­­­­­­nefnda dóm­­­­ara frá þeim lista sem hæf­is­­­­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­­­­ara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rann­saka og rök­­­­styðja þá ákvörðun með nægj­an­­­­legum hætti. Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dóm­­­­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig. Sig­ríður sagði af sér emb­ætti dag­inn eftir dóm­inn og óvissa ríkir um starf­­­­semi milli­­­­­­­dóm­­­­stigs­ins vegna dóms­ins.

Íslenska ríkið ákvað í apríl að áfrýja þeirri nið­­ur­­stöðu og beina því til yfir­deildar dóms­ins að taka málið aftur fyr­­ir.

Dómur MDE, sem var í máli manns sem heitir Guð­­mundur Andri Ást­ráðs­­son, var á þann veg að það væri brot á mann­rétt­indum þeirra sem koma fyrir Lands­rétt að fjórir ólög­­­lega skip­aðir dóm­­­arar dæmi í málum þeirra hefur mik­illi spennu í íslensku sam­­­fé­lagi. Dóm­­­ar­­­arnir fjórir geta ekki dæmt og um tíma starf­aði Lands­­­réttur ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár