NASA boðar til blaðamannafundar - Ráðgátan um Mars leyst?

Geim­vísinda­stofnun Banda­ríkjanna, NASA, hefur boðað til blaðamanna­fundar á mánudaginn klukkan 11:30 að staðar­tíma. Á fundinum munu koma fram upplýsingar um vísindalegar uppgvötanir úr leiðangri geim­farsins Curiosity sem farið hefur um á Mars frá því það lenti í 5. ágúst 2012. Yfir­skrift fundarins vísar til þess að upplýsingar muni koma fram sem leysi „ráðgátu“ um Mars.

Á fundinum munu fimm sérfræðingar tjá sig, þar af eru þrír helstu sérfræðingar NASA sem stýra verkefnum sem tengjast leiðangri Curiosity, Jim Green, Michael Meyer og Mary Beth Wilhelm. Síðan eru tveir sérfræðingar til viðbótar, Lujendra Ojha frá Tækni­háskólanum í Georgíu (Goergia Institute of Technology) og Alfred McEwan, sem er sérfræðingur á sviði mynd­greiningar og starfar við háskólann í Arizona.

Engar frekari upplýsingar hafa verið veittar um hvað það er sem tilkynnt verður um, en nokkurrar spennu gætir um hvað það sé nákvæmlega sem muni koma fram.

Leiðangur Curiosity þykir hafa verið einstak­lega vel heppnaður, enda hefur aldrei áður tekist að rannsaka plánetuna Mars í jafn­mikilli nálægð og jafnframt hafa náðst afar nákvæmlega myndir af vettvangi sem hafa opnar nýjar dyr í geim­vísindum.

https://www.youtube.com/watch?v=LAL4F6IWC-Y

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár