Tómas er fallinn frá: „Einstakur öðlingur til orðs og æðis“

„Sorgar­fregn sem erfitt er að meðtaka,“ segir Björgvin Halldórsson um vin sinn og einn virtasta tónlistar­mann Íslands, Tómas Magnús Tómasson, sem er látinn.

Tómas Magnús Tómasson
Tómas Magnús Tómasson Bassa­leik­ar­inn magn­aði er fall­inn frá. Mynd: Facebook

Einn virtasti tónlistar­maður landsins, Tómas Magnús Tómass, bassa­leikari Stuðmanna, Þursa­flokksins og fleiri hljómsveita, er fallinn frá.

Meðal þeirra sem kveðja Tómas eru Valgeir Guðjónsson stuðmaður. „Í dag var óvenju­legur dagur - á árvissu afmæli mínu fékk ég fregnina um að Tómas Magnús Tómasson aldavinur minn og félagi hefði kvatt þessa okkar skömmu jarðvist. Ég syrgi hanni og kveð með virktum - einstakur öðlingur til orðs og æðis, Á 66 ára afmælis­degi sé ég á bak förunauti í hálfa öld og mun sakna hans allar götur.“

Þá kveður Björgvin Halldórsson hann með orðunum: „Vinur minn og samstarfs­maður til margra ára Tómas Magnús Tómasson er fallinn frá. Þetta er sorgar­fregn sem erfitt er að meðtaka. Hann var með eindæmum skemmtilegur og orðheppinn og afbrags tónlistar­maður. Ég geymi margar minningarnar um Tomma og sérstak­lega okkar tíma í Englandi þegar við bjuggum saman í Dartford og þegar við unnum að Vísna­plötunum góðu. Guð blessi minningu Tomma...Hvíl í friði vinur.“

Tómas glímdi við krabba­mein og lést á líknar­deild.

Tómas var bæði bassa­leikari, hljóðfæra­leikari, tónlistar­maður og upptöku­stjóri. Hann fæddist 23. maí 1954 og var því 63 ára þegar hann lést. Að auki átti Tómas til að taka hljóð­nemann og syngja. Frægasti flutningur hans á því sviði er pönk­útgáfa hans af laginu Jón var kræfur karl og hraustur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár