Danska ríkisstjórnin boðar aðgerðir til að takmarka straum hælisleitenda og flóttafólks

Lars Løkke Rasmussen forsætis­ráðherra kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að fækka því flótta­fólki sem leitar til Danmerkur. Ráðherrann sagði að ástandið væri þannig að ekki yrði hjá því komist að grípa til aðgerða. „Ef við gerum það ekki missum við þetta allt úr böndunum,” sagði ráðherrann á fundi með frétta­mönnum. Fyrir kosningarnar sl. sumar var það eitt að loforðum flokks forsætis­ráðherrans að draga úr straumi flótta­fólks og hælis­leitenda til landsins.

„Ef okkur tekst það ekki er það algjört fíaskó,” sagði Lars Løkke fyrir kosningar. Á fréttamanna­fundinum í dag upplýsti ráðherrann að á þessu ári hefðu komið fleiri hælis­leitendur til landsins en allt árið í fyrra og straumurinn hefði verið stríðastur undan­farnar vikur.

Tillögur í 34 liðum

Tillögurnar sem kynntar voru í dag miða allar að því, eins og ráðherrann sagði, að gera það minna aðlaðandi og eftirsóknar­vert fyrir flótta­fólk og hælis­leitendur að horfa til Danmerkur. Ráðherrann sagði að allir vissu að flótta­fólk velti því fyrir sér hvar best væri að bera niður. „Við höfum gert vel við flótta­fólk og hælis­leitendur, betur en margir aðrir og kannski stundum of vel” sagði ráðherrann. Alls eru í tillögum stjórnarinnar talin upp 34 atriði sem segja má að flest miði að því að herða skilyrðin fyrir hælis­umsækjendur og fjöl­skyldur þeirra og. Styrkir til matar­kaupa verða lækkaðir,reglur um leyfi til að fá langtíma­dvalarleyfi verða hertar, skráningar­reglur verða strangari en verið hefur o.fl o.fl.

Forsætis­ráðherrann sagði að allt væri þetta innan þeirra alþjóð­legu reglna og samninga sem Danmörk hefði skuld­bundið sig til að fylgja. Hann sagði jafnframt að stjórnin hefði ákveðið að leyft yrði að hýsa hælis­leitendur tíma­bundið í tjöldum, sem ekki hefur verið leyfilegt fram til þessa en jafnframt væri unnið að því að útvega húsnæði og nefndi sérstak­lega herinn í því sambandi.

Lars Løkke sagði að nýjustu tölur sem hann hefði undir höndum segðu að nú væru um það bil þrettán þúsund hælis­leitendur í landinu, þeir væru dreifðir um allt land. Hann var á fréttamanna­fundinum spurður hvort til stæði að koma á sérstöku eftirliti við landa­mærin, líkt og Svíar hafa gert. Lars Løkke sagði að slíkt væri ekki ætlunin „en ástandið breytist frá degi til dags og maður veit aldrei hvað morgun­dagurinn ber í skauti sér,” bætti hann við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár