Nike Free bjargaði íþróttavörurisanum

Ótrúlegar sölutölur Nike sýna að það er Nike Free skólínan sem hefur skipt sköpum fyrir þetta stærsta íþrótta­vörumerki heimsins.

Bandaríski íþrótta­vörurisinn Nike hefur átt góðu gengi að fagna á undan­förnum árum, og þar hefur Nike Free skólínan verið í lykil­hlutverki. Í upphafi var skórinn hugsaður sem góður gönguskór í borgum, einkum fyrir konur. En með fleiri útgáfum, og útfærslum, var skórinn gerður að flaggskipi risanans á alþjóð­legum mörkuðum.

Í Banda­ríkjunum starfa 62 þúsund manns hjá Nike og heildar­tekjur fyrir­tækisins í fyrra námu 30,6 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur 3.600 milljörðum króna.

Í Banda­ríkjunum er staða Nike gríðar­lega sterk, en 13,7 milljarðar Bandaríkja­dala koma inn í sjóði fyrir­tækisins frá Banda­ríkjunum.

Og þar eru skór í aðal­hlutverki. Í fyrra keyptu Bandaríkja­menn og ferðamenn sem heimsækja landið, skó fyrir 8,5 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 1.100 milljörðum króna.

Búist er við því að þetta ár toppi fyrri vaxtarár. Árið 2010 seldust skór fyrir­tækisins fyrir tæplega 5 milljarða Bandaríkja­dala í Banda­ríkjunum, og vöxturinn hefur verið mikill.

Vöxturinn hefur nær alfarið verið í skóm, og einkum og sér í lagi Nike Free. Fyrsta línan kom fram árið 2005 og svo aftur 2007. En það var ekki fyrr en árið 2009, og svo aftur 2013, sem sölu­tölurnar tóku loksins mikinn kipp. Skærlituð útgáfa af skónum seldist í bílförmum, og gerir ennþá.

Stjórn­efndur Nike hafa sagt að Nike Free skórinn hafa að mörgu leyti bjargað fyrir­tækinu, enda gekk það í gegnum erfið­leika á árunum 2005 til 2009, og náði ekki sýna mikinn söluvöxt milli ára. Með endur­fæðingu skólínunnar árið 2009 hófst mikið vaxtar­skeið sem virðist líklegt til að vara árum saman í viðbót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár