Þess krafist að grein um gyðinga verði fjarlægð af Vísindavefnum

Ítrekað hefur verið farið fram á að svar Gísla Gunn­ars­sonar pró­fess­ors um gyð­inga­of­sóknir verði fjar­lægt af Vís­inda­vef Háskóla Íslands. Kemur Gísla á óvart að rit­stjórn vefs­ins neiti ekki for­taks­laust slíkum beiðnum.

Undrast erindið
Undrast erindið Gísli er undr­andi á að rit­stjórn Vís­inda­vefs­ins hafi ekki for­taks­laust neitað að fjar­lægja grein hans um ofsóknir gagn­vart gyð­ingum.

Ítrekað hefur verið farið fram á að grein Gísla Gunn­ars­sonar, pró­fess­ors emeritus í sagn­fræði við Háskóla Íslands, um gyð­inga­of­sóknir á Vís­inda­vef Háskóla Íslands verði fjar­lægð. Gísli greindi frá því í gær­kvöld á Facebooksíðu sinni að honum hefði hinn sama dag borist fyr­ir­spurn frá rit­stjórn Vís­inda­vefs­ins um skoðun hans á kröfu þess efnis. Það mun ekki vera í fyrsta skipti, að sögn Gísla.

Greinin, eða svarið, sem um ræðir ber heitið Hvers vegna hafa Gyðingar verið ofsóttir í gegnum ald­irnar? Var greinin skrifuð sem svar við umræddri spurn­ingu og birt árið 2001. Í umræðum á síðu Gísla kemur fram að hann hafi áður fengið kvart­anir yfir umræddri grein en aldrei hafi fylgt með rök­stuðn­ingur sem hafi dugað til þess að hún væri fjar­lægð eða henni breytt. Með beiðn­inni nú hafi eng­inn rök­stuðn­ingur fylgt.

Sú sem krefst þess að greinin verði fjar­lægð nú heiti Merill Kaplan, upp­lýsir Gísli, og er aðstoð­ar­pró­fessor í ger­mönskum og nor­rænum fræðum við Ohio Uni­versity. Í bréfi hennar þar sem farið er fram á að greinin verði fjar­lægð kemur fram að hún hafi áður farið fram á það. Gísli upp­lýsir jafn­framt að hann hafi óskað raka fyrir kröf­unni og bíði þeirra nú.

Miklar umræður hafa skap­ast um málið á síðu Gísla. Töluvert púður fer í karp um zíonisma og gyð­ing­dóm almennt en einnig er rætt um akademískt frelsi og vinnu­brögð. Þannig lýsir Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, þeirri skoðun að aðal­at­riði málsin sé að Gísli skuli hafa frelsi til að láta í ljósi rök­studda skoðun sína og það frelsi megi Háskóli Íslands ekki af honum taka. Gísli seg­ist þessu sam­mála. „Sammála. Enda kom erindi rit­stjórnar mér mjög á óvart, fyrri til­raunum var svarað strax með form­legri neitun en ég lát­inn vita,“ skrifar Gísli.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Vís­inda­vefnum eru það hefð­bundin vinnu­brögð þegar kvartað er yfir greinum sem þar er að finna, eða við þær gerðar athuga­semdir, að hafa sam­band við grein­ar­höf­unda og láta þeim eftir að taka ákvarð­anir um við­brögð, þó í sam­starfi við rit­stjórn vefs­ins. Þau vinnu­brögð hafi verið við­höfð í þessu til­viki.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár